Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009
15
|Fimleikar
Glæsilegur árangur í hópfimleikum
Um síðustu helgi fór fram ung-
lingamót í hópfimleikum en mótið
fór fram á Selfossi. Fimleika-
félagið Rán sendi tvö lið á mótið og
óhætt að segja að árangurinn hafi
verið glæsilegur. Ránarkrakkar
komu heim með tvö gull- og tvö
bronsverðlaun.
Eins og áður sagði sendi Rán tvö lið
til keppni, yngra lið og eldra. Yngra
liðið var að taka þátt í sínu fyrsta
móti og var sá hópur blandaður
stelpum og strákum. Krakkamir eru
á aldrinum 11 til 14 ára og stóðu sig
með mikilli prýði, enduðu í fimmta
sæti á trampólíni og 8. sæti á dýnu
en fjórtán lið tóku þátt. Einnig er
keppt í dansi en yngri hópurinn tók
ekki þátt í þeirri grein.
Eldri hópurinn var eingöngu skip-
aður stelpum en þær gerðu sér lítið
fyrir og unnu bæði á dýnu og á tram-
pólíni en urðu svo í 6. sæti í dansi.
Stelpurnar urðu svo í 3. sæti í
samanlagðri keppni en það munaði
aðeins 0,05 stigum á 1. og 3. sæti
sem er minnsti mögulegi munur.
Alls kepptu tólf lið í eldri flokknum
en með árangrinum tryggði eldri
hópur Ránar sér sæti á Islandsmót-
inu í aprfl en sex bestu liðin í þessu
móti komust þangað.
Kom skemmtilega á óvart
Svanfríður Jóhannsdóttir, þjálfari
Ránar sagði í samtali við Fréttir að
hún væri mjög ánægð með árangur-
inn. „Yngri hópurinn var að taka
þátt í sínu fyrsta móti og voru þau
bara búin að æfa í einn mánuð. Við
vorum t.d. ekki búin að æfa dans
fyrir þau en þessi árangur þeirra kom
skemmtilega á óvart. Eldri hópurinn
stóð sig svo virkilega vel en á þessu
móti er keppt í þremur, aldursskipt-
um flokkum, 5., 4. og 3. flokki en
sex stigahæstu liðin komast á
íslandsmótið, óháð aldri. Eldri
hópurinn tryggði sér sæti á
íslandsmótinu þannig að nú taka við
stífar æfingar. I maí förum við svo á
Vormót á Egilsstöðum þar sem keppt
verður um deildarbikar í 3. flokki í
hópfimleikum. Þannig að það er nóg
framundan hjá okkur í Rán,“ sagði
Svana.
Efri mynd, eldri hópur:
Efri röð: Svana þjálfari, María
Rós, Arna Hlín, Kristrún Osk,
Arna Björg aðstoðarþjálfari
Neðri röð: Nanna Berglind, Þóra
Fríða, Díana, Þórey Helga og
Ingibjörg Osk.
Neðri mynd, yngri hópur:
Efri röð: Gígja Sunneva,
Henrietta, Una, Sara Dís, Alma
Rós, Ása Elín og Thelma Rut
þjálfari.
Neðri röð: Tindur Snær, Gunnar
Þór, Hjálmar Karl og Daníel
Smári.
Skák
SIGURVEGARAR í ELSTA FLOKKI. Frá vinstri, Nökkvi Sverrisson,
2. sæti, Daði Steinn Jónsson, 1. sæti og Kristófer Gautason, 3. sæti.
Góð þátttaka í
ísfélagsmótinu
Stúkumál við Hásteinsvöll
ÍBV setur á fót
byggingarnefnd
- með sjálfstæðan fjárhag en áætlaður
kostnaður við stúku er 36 milljónir
Á laugardag fór fram ísfélagsmótið
í skák. Nítján krakkar mættu á
mótið, voru tefldar átta umferðir og
tefldar 10 mínútna skákir. Daði
Steinn Jónsson bar sigur úr býtum,
sýndi mikið öryggi og sigraði með
7,5 vinningum af átta mögulegum
en Daði Steinn gerði aðeins jafntefli
við Nökkva Sverrisson, sem aftur
gerði jafntefli við Kristófer Gauta-
son en þessir þrír enduðu í þremur
efstu sætunum.
I stúlknaflokki sigraði Hafdís
Magnúsdóttir með 4 vinninga en
Eydís Þorgeirsdóttir var aðeins
hálfum vinningi á eftir henni. I
þriðja sæti varð svo Telma Lind
Þórarinsdóttir.
í flokki bama fædd 1999-2001
varð Jón Smári Olafsson, frá
Salaskóla, sigurvegari en honum
leist það vel á félagsskapinn að hann
gekk í raðir Taflfélags Vestmanna-
eyja. Annar varð Bjarki Freyr
Valgarðsson og þriðji Daníel Hregg-
viðsson en nokkra sterkustu skák-
menn TV vantaði í mótið vegna fót-
boltaferðar.
I yngsta flokknum sigraði svo Leó
Viðarsson, annar varð Amór Viðars-
son og þriðji Máni Sverrisson.
Á sunnudagskvöldið hófst svo
Vormót Taflfélags Vestmannaeyja
en mótið er nýjung í starfi félagsins
og er sett af stað til að mæta kröfum
félagsmanna að tefla fleiri kapp-
skákir yfir veturinn. 28 keppendur
em skráðir til leiks en nokkuð er
síðan jafn fjölmennt mót með kapp-
skáktímamörkum hefur verið haldið
í Eyjum. Keppendur eru gott
samansafn af eldri og yngri félögum
og reyndum og óreyndum.
Á síðasta fundi bæjarráðs var tekið
fyrir bréf frá ÍBV-íþróttafélagi til
Knattspyrnusambands íslands en
þar er fjallað um stúkumál við
Hásteinsvöll. Vestmannaeyjabær
segist ekki geta tryggt að ný stúka
verði byggð fyrir árið 2012 en
samkvæmt leyfiskerfi KSÍ, sem
félög í efstu deild þurfa að undir-
gangast, þurfa öll félög að hafa yfir-
byggða stúku með ákveðinni lág-
marksfjölda sæta. Vestmannaeyja-
bær á hins vegar íþróttamannvirkin
og ber ábyrgð á þeim og staða ÍBV
því ansi snúin enda uppfyllir
núverandi stúka hvorki kröfur um
fjölda sæta né yfirbyggingu.
Bærinn vill ekki gefa innan-
tómt loforð
Samkvæmt bréfi IBV er nú hug-
mynd félagsins að innan þess verði
skipuð sérstök bygginganefnd með
sjálfstæðan fjárhag á næsta aðal-
fundi félagsins. Samkvæmt deili-
skipulagi Vestmannaeyjabæjar við
Hástein er gert ráð fyrir yfirbyggðri
stúku sunnan megin við völlinn en
bygginganefndin mun bæði skoða
möguleikann á að stækka núverandi
stúku og byggja nýja hinum megin
við HásteinsvöII.
„Það liggur einnig Ijóst fyrir, að
Vestmannaeyjabær, sem aðaleigandi
mannvirkja á Iþróttasvæðinu við
Hástein, telur ekki fjárhagslegt svig-
rúm á næstu árum til að ráðast í
frekari framkvæmdir við mannvirki
á íþróttasvæðinu við Hástein.
Vestmannaeyjabær er aukin heldur
ekki tilbúinn að setja fram
framkvæmdaáætlun, er gerði ráð
fyrir umræddri framkvæmd innan
tilskilins frests enda væri slfkt
loforð innantómt. Ýmislegt kemur
þar til, ekki þarf að fjölyrða um
ástand efnahagsmála íslensku
þjóðarinnar um þessar mundir.
Ennfremur er Vestmannaeyjabær í
stórframkvæmdum við byggingu
knattspyrnuhúss á svæðinu, sem
kunnugt er. Það er einfaldlega mat
bæjarstjórnar Vestmannaeyja, að
ekki sé fjárhagslegt svigrúm til að
standa að frekari uppbyggingu
íþróttamannvirkja fram til ársins
2012,“ segir í bréfi ÍBV til KSÍ.
Kostnaðurinn áætlaður um
35 milljónir
Þar kemur einnig fram að
fyrirhuguð bygginganefnd komi til
með að þurfa að sækja fjármagn til
stúkuframkvæmda annað en til
Vestmannaeyjabæjar og nokkuð
ljóst er að IBV-íþróttafélag getur
ekki fjármagnað framkvæmdina.
Því þarf að sækja fjármagn annað en
áætlaður kostnaður er um 35
milljónir. M.a. eru hugmyndir að
sækja fjármagn í Mannvirkjasjóð
KSI, að Vestmannaeyjabær gefi eftir
öll gjöld af hálfu bæjarins og leggi
auk þess til aðstoð Tæknideildar
bæjarins. Þá er hugsanlegur
möguleiki á að selja sæti í stúkunni
og að sjálfboðavinna við bygging-
una spari útgjöld.
Bæjarráð jákvætt fyrir
aðstoð
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur lýst
sig viljugt til að beita sér fyrir fram-
gangi þessa máls. Bæjarráð telur
koma til greina að Vestmanna-
eyjabær greiði þau opinberu gjöld
sem falla á stúkubygginguna og
Umhverfis- og framkvæmdasvið
leggi fram aðstoð sína við undir-
búning framkvæmdarinnar. Slíkt
yrði þó sjálfstæð ákvörðun þegar
þar að kemur.
íþróttir
Nýr leikmaður
í kvennaliðið
Hlíf Hauksdóttir er gengin í raðir
ÍBV en Hlíf kemur frá Hvolsvelli.
Þess má til gamans geta að Hlíf á
að sjálfsögðu ættir að rekja til
Eyja en afi hennar er Jón
Sighvatsson í Ási. Hlíf hefur leik-
ið með Val undanfarin ár og er
góður liðsstyrkur fyrir IBV.
Kvennalið ÍBV hefur leikið
fjóra æfmgaleiki undanfarnar tvær
vikur. Stelpurnar töpuðu 2:0 gegn
Stjörnunni, sem af mörgum er
talið sterkasta kvennaliðið í fót-
boltanum í dag. IBV lagði hins
vegar Breiðablik að velli 2:3 eftir
að hafa verið 2:0 undir í hálfleik.
Kristín Erna Sigurlásdóttir gerði
sér lítið fyrir og skoraði þrennu í
leiknum en bæði lið tefldu að
mestu fram leikmönnum í 2.
flokki.
Helgina eftir lagði ÍBV Keflavík
að velli 1:5 en Thelma Sigurðar-
dóttir gerði þrjú mörk og Þór-
hildur Ólafsdóttir tvö. Daginn
eftir gerði IBV svo 1:1 jafntefli
gegn Haukum en eina mark IBV
skoraði Herdís Gunnarsdóttir.
Tvö töp hjá
strákunum
Karlalið ÍBV í knattspymu lék
sinn fyrsta leik í Deildarbikamum
þegar liðið lék gegn Þrótti en
leikurinn fór fram í Egilshöll.
Viðar Örn Kjartansson skoraði
eina mark IBV.
Eyjamenn léku svo æfmgaleik
daginn eftir gegn B-liði Fjölnis en
leikurinn fór fram í Egilshöll.
Fjölnir hafði betur 2:0.
Töpuðu stórt
Karlalið ÍBV í handbolta steinlá í
Mosfellsbænum um helgina þegar
liðið sótti Aftureldingu heim.
Lokatölur urðu 31:14 fyrir
Mosfellinga en staðan í hálfleik
var 17:9.
Nýr leikmaður
í körfunni
Karlaliði ÍBV í körfubolta hefur
bæst við liðsstyrkur fyrir
lokaátökin í 2. deild en ÍBV á
möguleika á að komast í úrslita-
keppni 2. deildar. Ævar Örn
Eriendsson, 17 ára, er genginn í
raðir félagsins, hann leikur mest í
stöðu framherja en getur leyst
allar stöður.
Framundan eru þrír úrslitaleikir
hjá IBV, sem verður að vinna alla
leikina ef liðið ætlar sér í úrslita-
keppnina. Þeir fara allir fram í
Eyjum og sá fyrsti á laugardaginn
gegn KKF Þóri en seinni tveir
leikirnir fara svo fram eftir tvær
vikur.
Framundan
Föstudagur 27. febrúar
Kl. 20.30 FH-ÍBV
4. flokkur kvenna, fótbolti.
Kl. 21.30 Þróttur-ÍBV
3. flokkur karla, handbolti.
Laugardagur 28. febrúar
Kl. 12.30 Grótta-ÍBV
3. flokkur kvenna, handbolti.
Kl. 12.30 Grótta-ÍBV
4. flokkur karla, fótbolti.
Kl. 14.00 ÍBV-ÍR
4. flokkur kvenna, handbolti.
Kl. 15.40 Grindavík-ÍBV
4. flokkur kvenna, fótbolti.
Kl. 16.00 ÍBV-KKF Þórir
2. deild karla, körfubolti.