Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Síða 1
Bílaverkstæðið BRAGGINN sf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
36. árg. I 10. tbl. I Vestmannaeyjum 19. mars 2009 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
MIKIÐ óveður gekk yfir Vestmannaeyjar á aðfaranótt laugardagsins og fóru hviður á Stórhöfða yfir 50 metra. Lögregla og
Björgunarfélagsmenn höfðu í nógu að snúast og hér er einn galvaskur björgunarsveitarmaður, Guðjón Sigtryggsson, að störfum.
Nánar inni í blaðinu. Mynd Oskar Pétur.
Trollbátarnir í mokfiskiríi við Ingólfshöfða:
Fyllti á þrjátíu klukkutímum
Trollskipin Smáey VE og Vest-
mannaey VE voru á leið í land í gær,
miðvikudag eftir gott fiskirí austan
við Ingólfshöfða. Drangavík var á
miðunum og var að fá fínan afla. A
þessum árstíma hefur oftast fiskast
vel vestan við Surtsey og vonast sjó-
menn til þess að hann fari að gefa
sig til þar. Mikill þorskur er um
allan sjó en lítill kvóti veldur því
hann er heldur til vandræða.
„Þar var góð veiði í gær, þriðju-
dag, og við fylltum á þrjátíu
tímum,“ sagði Jón Snædal Logason,
skipstjóri á Smáey, þegar Fréttir
náðu tali af honum.
„Við vorum austan við Ingólfs-
höfða, túrinn gekk mjög vel, og
nánast allt ýsa. Við vorum nánast að
flýja þama austur frá undan veðri og
lentum þá í fínni veiði,“ sagði Jón.
Þegar hann var spurður út í vertíð-
ina sagði hann að veiði hefði verið
þokkaleg undanfarið. „Haustið og
það sem af er vetri hefur verið fín-
asta veður ef frá er talin brælan um
helgina. Það er tíu til tólf tíma stím
austur og vonandi fer að fiskast hér
við Eyjar eins og verið hefur á
þessum tíma. Við höfum yfirleitt
verið vestan við Surtsey á þessum
tíma og það er aðeins að byrja þar en
ekki af neinum krafti,“ sagði Jón og
hefur trú á að nú fari veiðar að
glæðast þar.
Vestmannaey VE var líka á leið í
land á miðvikudagsmorgun og
veiðar höfðu gengið vel í túmum en
hefur annars verið þokkaleg.
„Það hefur háð okkur hvað það er
mikill þorskur og hann er ekki til
samkvæmt fræðunum," sagði Egill
Guðnason, stýrimaður, þegar leitað
var frétta af aflabrögðum hjá
honum.
„Við vorum austur við Ingólfs-
höfða og komumst í ýsu og emm
með fínan afla og þar af leiðandi á
leið í land. Mér skilst það hafi
dregið úr veiðinni þar núna, fleiri
skip eru komin á svæðið en við
vomm fyrstir þangað eftir brælu.
Það er erfitt að eiga við þetta þar
sem við emm á stöðugum flótta
undan þorskinum og vandamálið að
við erum að fá of mikið af honum
miðað við kvótastöðuna," sagði
Egill en var annars ánægður með
góðan túr.
„Það hefur verið mjög gott fiskirí í
gær og nótt, “ sagði Stefán Birgis-
son, skipstjóri á Drangavík VE, sem
var á miðunum á miðvikudags-
morgun.
„Við erum við Ingólfshöfða og
þetta er blandaður afli. Við fórum út
á sunnudag og vorum vestur á
Selvogsbanka og að öllu jöfnu er
góð veiði þar en þar var lítið um
ufsa og þar af leiðandi færðum við
okkur um set. Veðrið var slæmt, fór
varla undir 30 metra á klst. fyrstu
tvo sólarhringana. En hér við
Ingólfshöfða er blankalogn og við
komum inn til löndunar á föstudag,"
sagði Stefán.
Keppnis-
leyfið
komið
í hús
I síðustu viku bárust þær
fréttir frá Knattspyrnusam-
bandi íslands að IBV hefði,
ásamt átta öðrum liðum, ekki
fengið keppnisleyfi fyrir sum-
arið.
Leyfisráð KSÍ hafði þá farið
yfir umsóknir félaga í efstu
tveimur deildum karlaknatt-
spyrnunnar en fjórum félögum
í efstu deild var synjað um
keppnisleyfi.
Sigursveinn Þórðarson, for-
maður knattspyrnudeildar,
sagði í síðustu viku að um smá-
mál væri að ræða. Einungis
þyrfti að skila inn nokkrum
eyðublöðum með réttri undir-
skrift og þá væri keppnisleyfið
í höfn. I gær bárust svo þær
fréttir að leyfisráð KSÍ hefði
farið yfir umsóknir liðanna
átta sem ekki fengu keppnis-
leyfi í síðustu viku og veitt
öllum félögunum keppnisleyfi,
þar á meðal ÍBV. Reyndar
fengu tvö félög viðvörun fyrir
að uppfylla ekki skilyrði um
ráðningu aðstoðarþjálfara
meistaraflokks en Sigursveinn
sagði að stefnt væri að því að
ráða aðstoðarþjálfara sem
fyrst.
Vilja 40
milljóna
viðbót
A fundi framkvæmda- og
hafnarráðs á þriðjudaginn fór
Ólafur Þ. Snorrason, fram-
kvæmdastjóri yfir fram-
kvæmdir við útisvæði sund-
laugarinnar, sem nú eru í
fullum gangi.
Fyrir liggur að heildarkostn-
aður mun fara fram úr áætlun,
meðal annars vegna meira
umfangs og gengisbreytinga.
Þá fór Ólafur einnig yfir
endurbætur á búningsklefum
eins og sagt er frá á síðu 2 í
Fréttum.
Vegna þessara verkefna óskar
ráðið eftir viðbótarfjárveitingu
á árinu 2009, samtals að upp-
hæð 40 milljónir svo að hægt
verði að Ijúka vinnu bæði við
útisvæðið og búningsklefana.
s
Lýsa vantrausti á forseta ASI
í ályktun frá Drífanda stéttarfélagi
er fagnað góðum uppgjörum sjáv-
arútvegsfyrirtækja undanfarið. Um
leið er lýst yfir vonbrigðum með
störf ASÍ.
„Staða margra fyriitækja er góð
þrátt fyrir þrengingar í þjóðfélag-
inu. Það sýnir að málflutningur
þeirra stéttarfélaga er kröfðust þess
að launahækkunin kæmi til fram-
kvæmda 1. mars, var hárréttur.
Drífandi stéttarfélag lýsir yfir
miklum vonbrigðum og vantrausti
á störf forseta og samninganefndar
ASÍ í aðdraganda endurskoðunar
kjarasamninganna.
Sérstaklega er alvarlegt að ein-
stakir aðilar innan samninganefnd-
arinnar virðast hafa verið að gera
samninga við fyrirtæki um launa-
hækkanir til handa sfnum fé-
lagsmönnum, en á sama tíma
frestað gildistöku samninga annars
launafólks í skjóli Alþýðusam-
bandsins.
Drífandi krefst þess að nú þegar
verði sagt upp samkomulaginu við
Samtök atvinnurekenda um frestun
kjarasamninga og farið verði í við-
ræður við samtökin með nýrri
samninganefnd," segir í ályktun-
inni.
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
TOYOTA í EYJUM
n
mar
VELA- OG BILAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR 21 / S.481 -1216 / GSM. 864-4616