Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Page 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 19. mars 2009
Opnir dagar í Framhaldsskólanum - Mikið líf og fjör:
Lýkur með árshátíð
Þessa dagana er mikið fjör í Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum.
Miðvikudag, fimmtudag og föstu-
dag er hefðbundið skólastarf lagt til
hliðar og haldnir svokallaðir Opnir
dagar. A opnum dögum er nemend-
um skipt í hópa sem eru fjölmiðla-
hópur, íþróttahópur, kvikmynda-
hópur, tónlistarhópur, kaffihúsa-
hópur, listahópur, árshátíðarhópur
og ljósmyndahópur.
Blaðamaður Frétta leit við í skól-
anum á miðvikudagsmorgun, þegar
starf hópanna var að hefjast.
Það kom bersýnilega í ljós að það
var líf og fjör í skólanum, það er að
segja meira en að öllu jöfnu og galsi
var í nemendum. Alls staðar fólk á
ferðinni enda undirbúningur fyrir
starf næstu tvo daga í fullum gangi.
Þó voru nokkrir sem voru þegar
byrjaðir, t.d. tónlistarhópur sem
blaðamaður rakst á í kjallara skóla-
byggingarinnar. Reyndar voru þeir
enn að bíða eftir hljóðfærum sem
var verið að bera inn í hús en þeir
Ingi Þór Þórarinsson, Daði Gísla-
son, Sveinn Friðriksson, Andri
Fannar Valgeirsson, Hjörtur Ari
Hjartarson, Sigursteinn Marinósson
og Ólafur Sigurðsson voru farnir að
ákveða hvaða lög ætti að æfa. Þeir
voru þó þögulir sem gröfin þegar
þeir voru spurðir hvað þeir ætluðu
að spila en lofuðu heimsklassa tón-
list.
Eina konan víðs fjarri
Fjölmiðlahópur var á fullu á
bókasafni skólans við að undirbúa
útgáfu skólablaðsins sem heitir
Áslaug. Þá ætla þeir líka að setja
upp síðu í Fréttum í næstu viku og
voru í óða önn að undirbúa það en
það vakti athygli að aðeins ein
stelpa var í fjölmiðlahópnum en á
annan tug drengja.
Stelpan var reyndar fjarverandi
þegar blaðamaður átti leið hjá, eins
og fleiri í hópnum enda þarf að
sækja fréttirnar.
Blaðamaður er matmaður mikill og
var ekki lengi að þefa uppi Kaffi-
húsahópinn sem var í óða önn að
baka pizzur fyrir hádegið. Þar aftur
á móti voru eingöngu stelpur og af
lyktinni að dæma áttu gestir kaffi-
hússins von á góðu.
Árshátíð Framhaldsskólans verður
haldin á föstudagskvöldið í Höllinni
FJÖLMIÐLAHÓPURINN Þar fór ekki mikið fyrir konum.
TONLISTARHOPURINN lofar heimsklassatónlist.
en árshátíðarhópur sér um að
skreyta sal Hallarinnar. Þegar
blaðamann bar að garði voru stelp-
urnar að skipuleggja skreytinguna
en enga stráka var að sjá í hópnum.
Þema árshátíðarinnar er Góðærið
KAFFIHÚSAHÓPURINN stóð í
bakstri.
2007 en stelpurnar lofuðu því að
salurinn yrði flottari en nokkurn
tímann áður.
Búningsklefarnir endurbyggðir
Framkvæmdir við útisvæði íþrótta-
miðstöðvarinnar eru nú í fullum
gangi og jarðvinnu að ljúka. Það er
verið að vinna að frekari endurbót-
um því í síðustu viku var hafist
handa við að lagfæra búningsklefa
sundlaugarinnar.
Byrjað var á kvennaklefanum en
framkvæmdir við karlaklefann hefj-
ast líklega í næstu viku. Það sem
upphaflega átti að vera lagfæring,
hefur hins vegar breyst í meiri háttar
endurbyggingu og í raun verða
byggðir nýir búningsklefar.
„Það stóð til að breyta klefunum
aðeins og lagfæra þá en þegar
vinnan hófst þá kom í Ijós að þeir
voru svo illa farnir, milliveggir og
fleira, að það var ekki annað hægt
en að endurbyggja klefana," sagði
Ólafur Þór Snorrason, fram-
kvæmdastjóri umhverfts- og fram-
kvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar.
„Gólftn voru nánast ónýt og vegg-
irnir lfka þannig að það var öllu
mokað út og er kvennaklefmn í raun
ÞANNIG lítur kvennaklefmn út í dag.
fokheldur. Svo byggjum við upp
nýja klefa nánast frá grunni. Við
endurskipuleggjum klefana, setjum
epoxy-húð á gólf og á veggi, svipað
því sem er í nýju klefunum. Við
setjum líka hita í öll gólf og mark-
miðið er að stækka klefana, fjölga
sturtum og bæta aðgengi fyrir fatl-
aða. Við verðum líka með skipti-
klefa fyrir einstaklinga, tvo í
kvennaklefanum og einn í karla-
klefanum."
Verður komið fyrir skápum í nýju
klefunum? „Það hefur engin á-
kvörðun verið tekin varðandi skápa í
klefana. Svona skápar eru mjög
dýrir en við erum að skoða málið.“
Það er byggingafyrirtækið Steini
og Olli sem sér um endurbygg-
inguna en áætlað er að vinnu við
klefana verði lokið um leið og nýtt
útisvæði verður opnað. Á meðan
unnið er í klefunum munu sund-
gestir nota klefa við nýja íþrótta-
salinn en stutt er frá þeim og út í
laug.
Ottast að
mæling á
loðnu hafi
misfarist
Veiðiskip hafa nú hætt loúnu-
leit en hafrannsóknaskipin
komu úr sinni síðustu loðnuleit
fyrir tveimur vikum svo ljóst
má þykja að enginn loðnukvóti
verði gefinn út, segir Björn
Jónsson, hjá Landssambandi
íslenskra útvegsmanna, í við-
tali við Vísi.is.
Það er í fyrsta sinn síðan
veturinn 1982 til 1983. Á sama
tíma er mikið af loðnu rétt
fyrir utan fjöruna í Vest-
mannaeyjum og jafnvel má
sjá mikið af henni í fjörunni
sjalfri.
I vetur hafa menn í fyrsta
sinn veitt gulldeplu en töluvert
minna fæst fyrir hana en
Ioðnu. Til dæmis flutti Vinnslu-
stöðin í Vestmannaeyjum út
um 15 þúsund tonn af loðnu í
fyrra og nam útflutningsverð-
mæti hennar um 2,5 milljörð-
um á verðlagi ársins í ár. I ár
flutti hún álíka mikið út af
gulideplu en útflutningsverð-
mæti hennar nam einungis um
370 milljónum.
Auk þess sem mikið er af
loðnu utan við fjörur Vest-
mannaeyja segir Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar, að trillusjómenn hafl
orðið hennar mikið varir og
óttast hann að ekki hafi tekist
að mæla göngurnar nógu vel.
„Eg er enginn talsmaður
ofveiða,“ segir hann. „En ég
óttast að menn nái ekki að
mæla loðnuna eftir að hún er
farin í gönguástand vestur með
suðurströndinni með sömu
vissu og þegar hún er mæld í
djúpinu fyrir austan land."
www.visir.is greindi frá.
Árnað heilla
Þessi ungi drengur, sem gat sér
gott orð í handboltanum hér á
árum áður, verður 45 ára þann 21.
mars nk.
ÍJigefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0545) - Vcstmannaeyjum. Ritfitjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Gudbjörg Sigúrgeirsdóttir og Júlíus Ingason. Iþróttir: Ellcrt Scheving.
Áhyrgdarmenn: Ómar Gardarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjnm. Aðsetnr ritBtjómar: Strandvegi 47.
SÍTnai- 481 1300 & 481 3Í110. Myndriti: 481-125)3. Netfang/rafpóstnr: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: http/Av'ww.evjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtiijdága. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarvershininni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i Fridarhöfn.. FRÉTi'IU eru prentaðar í 3000 eintökum.
FRÉTTER cru aðilar að Saintökum hirjar- og héraðsfrettahlaða. Eftirprenhin, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé gehð.