Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Page 9
Fréttir / Fimmtudagur 19. mars 2009 9 HRESSIR nemendur í Hamarsskóla Á næsta skólaári 2009 til 2010 er gert ráð fyrir 611 nemendum og nemur samkvæmt reiknilíkani 1119,8 kennslustundum til almennrar kennslu, miðað við 28 bekkjardeildir. Kostnaður kennslustunda vegna almennrar kennslu er áætlaður um 201,6 milljónir. Lagt er til að úthlutun til sérkennslu verði samkvæmt reglugerð eða 152,8 kennslustundir og kostnaður vegna sérkennslutímanna er áætlaður um 27,5 milljónir. Geir Haarde: Kvaddi Eyja- menn Fræðslu og menningarráð - Tillögur til hagræðingar í rekstri GV: Frjósemi kennara hleypir upp kostnaði við afleysingar -Milli 25 til 30 milljóna króna afleysingakostnaður skýrist af því að sjö kennarar við skólann hafí átt börn eða eru barnshafandi SViðtöl Gúðbjörg STgii'rgéirsdotti r gudbjorg @ eyjafrettir. is Fræðslu og menningarráð fundaði í fyrri viku og tók fyrir tillögur Emu Jóhannessdóttur, fræðslustjóra og Jóns Péturssonar, framkvæmda- stjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, sem var falið að leita hagræðingar í rekstri Grunnskóla Vestmannaeyja. I fundargerð ráðsins kemur fram að tillögurnar em byggðar á ábending- um sérfræðings sem fenginn var til að benda á leiðir til hagræðingar. I tillögum Emu og Jóns er gert ráð fyrir að við úthlutun kennslustunda til skólastarfs verði stuðst sem fyrr við reiknilíkanið sem notast hefur verið við frá maí 2004. Á næsta skólaári 2009 til 2010 er gert ráð fyrir 611 nemendum og nemur samkvæmt reiknilíkani 1119,8 kennslustundum til almennr- ar kennslu, miðað við 28 bekkjar- deildir. Kostnaður kennslustunda vegna almennrar kennslu er áætl- aður um 201,6 milljónir. Lagt er til að úthlutun til sérkennslu verði samkvæmt reglugerð eða 152,8 kennslustundir og kostnaður vegna sérkennslutímanna er áætlaður um 27,5 milljónir. Kostnaður vegna sérstakrar úthlut- unar er áætlaður um 1,8 milljónir vegna nemenda með annað móður- mál en íslensku. Ef skólastjóri telur ofangreinda úthlutun ekki nægja þá sækir hann um viðbót til fræðslu- ráðs með greinargóðum rökum og kostnaðarútreikningi. í tillögunum var lagt til að skóla- stjóri leiti allra leiða til að minnka afleysingakostnað. Hann var um 25 til 30 milljónir vegna veikinda árið 2008 sem er um 7% af launa- kostnaði. Lækkun á þeim kostnaði um 10% þýðir spamað um 2,5 til 3 milljónir. Fram kemur að annar afleysinga- kostnaður vegna annarrar fjarveru starfsmanna liggur ekki fyrir. Þá er lagt til að áætlað hlutfall til forfalla- kennslu verði 5% í stað 6% en viðkomandi tímar em hugsaðir til forfalla- og sjúkrakennslu. Árið 2008 var framlagið til forfalla- kennslu rúmlega 1 1 milljónir. Prósentuminnkun þýðir 1,8 millj- ónir í lækkun. Potturinn Auk annarra aðhaldsaðgerða skal skólastjóri fyrir hvert skólaár gera fræðsluráði grein fyrir því hvemig hann hyggst nýta svokallaðan „pott“ sem kom til árið 2005 og er hugs- aður sem viðbótarlaun vegna stöðuheita, álags og verkefna utan hefðbundins vinnuframlags kenn- ara. Fyrir skólaárið 2008 til 2009 voru 6,3 milljónir í umræddum „potti“ eða sem nemur 105.000 kr á hvert stöðugildi. Þá skal skólastjóri gera grein fyrir því fyrir því hvemig hann hyggst nýta sérstaka úthlutun sem skólinn fær til félagsstarfa nemenda en árið 2008 var úthlutað 1,7 milljónum til félagsstarfa nemenda. Lagt er til að nafnið sérdeild verði lagt niður og nemendur fái óbreytta þjónustu í námsverum GRV. Miða skal við að fjöldi nemenda í hverjum hópi í námsveri sé að minnsta kosti 4 til 5 á kennara. Að auki verði einn stuðningsfull- trúi til aðstoðar fyrir fatlaða nem- endur en skólastjóri þarf árlega að sækja um leyfi til fræðsluráðs fyrir ákveðnu stöðuhlutfalli stuðnings- fulltrúa í samræmi við þarfír skólans með greinargóðum rökum og kostn- aðarútreikningi. Ef meiri starfs- mannaþörf skapast þá sækir skóla- stjóri um viðbót til fræðsluráðs með greinargóðum rökum og kostnaðar- útreikningi. Skólastjóri skal skila inn nauðsyn- legum upplýsingum varðandi vinnu- skýrslur og annað til fræðsluskrif- stofu í ágúst. Við lok september skulu allar vinnuskýrslur vera til- búnar og undirritaðar. Vinnuskýrslur taka ekki gildi fyrr en þær hafa verið staðfestar af fræðsluskrifstofu. Ráðið samþykkir tillögumar. 21,5 nemendur í bekk Erna sagði að ákveðið reiknilíkan sem var tekið upp 2004 væri notað við úthlutun kennslustunda og ef bekkjardeildir eru stórar þá reiknast fleiri stundir til sveigjanlegs skóla- starfs sem skólastjóri getur nýtt, t.d. til að búa til fleiri bekkjardeildir eða hópa. „Meðaltalið er 21,5 nemendur í bekk hjá okkur og það er ekki talið fjölmennt miðað við aðra skóla. Nú er einnig gert ráð fyrir sérstakri fjár- veitingu vegna kennslu nemenda sem eiga sér annað móðurmál en íslensku. I skýrslunni er farið yfir flesta þætti, t.d. úthlutun vegna félagsstarfs nemenda sem er notuð til að efla félagslífíð, t.d. með leik- list eða við annars konar verkefni en þau sem kennarar sjá yfírleitt um,“ sagði Ema. Færri bekkjadeildir Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja, sagði að nú stæði yfir skipulagsvinna innan skólans. Á síðasta ári voru 34 bekkjardeildir í skólanum en þeim mun fækka vegna þess að árgang- urinn sem kemur inn í haust er minni en sá sem útskrifaðist frá skólanum í vor. „í tillögunum ergert ráð fyrir 28 bekkjardeildum en ég geri ráð fyrir að þær verði fleiri, miðað við nemendafjöldann í skól- anum. Við erum að fara yfír næsta skólaár, það verða einhverjar breytingar en í tillögunum er líka gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika í tengslum við skólastarfið." Fanney segir 25 til 30 milljóna af- leysingakostnað við skólann skýrast af því að sjö kennarar við skólann hafí átt börn eða séu bamshafandi og þar af leiðandi hafí kostnaður aukist vegna forfalla starfsmanna. „Það er ánægjuleg ástæða fyrir auknum afleysingakostnaði því það er að fjölga í bæjarfélaginu og kennarar hafa lagt sitt af mörkum með því að fjölga mannkyninu. Kennarar hafa hætt fyrr að vinna af þessum ástæðum sem skýrir að stærstum hluta þennan kostnaðar- lið,“ sagði Fanney. Tveir mögulegir Eyjaþingmenn Geir Haarde, fráfarandi for- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði á kveðjufundi með flokksmönnum í Vestmanna- eyjum á mánudagskvöldið að það væri mikilvægt fyrir byggðarlagið að eygja mögu- leika á tveimur þingmönnum eftir prófkjör flokksins í Suðurkjördæmi. Þótt þetta sé síðasta ferð hans til Eyja í pólitískum lilgangi sagðist Geir eiga von á því að heim- sækja Eyjar oftar með bama- börnunum og til að spila golf. Geir Haarde hefur verið á ferðalagi um landið að undan- förnu til að kveðja flokksfé- laga sína en hann lætur af for- mennsku í Sjálfstæðis- flokknum á landsfundi flokksins í næstu viku. Geir sagði á fundi með sjálfstæðis- fólki í Ásgarði í Vestmanna- eyjum á mánudag að það stefndi í einn stærsta landsfund flokksins með um 1900 þátt- takendum. Formaðurinn fráfarandi fagnaði góðum árangri Eyjamanna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi um síðustu helgi, þar sem Árni Johnsen varð í 2. sæti og íris Róbertsdóttir í 4. sæti. Geir sagðist ekki reka minni til þess að tveir Eyjamenn hafi áður átt sæti á Alþingi samtímis fyrir flokkinn og vonaðist til þess að sjálfstæðismenn næðu inn fjórum þingmönnum í kjördæminu. Ragnheiður Elín Arnadóttir, núverandi þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, er nýr leiðtogi flokksins í Suðurkjördæmi og í þriðja sæti í prófkjöri flokksins um síð- ustu helgi varð Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra. Áf Suðurlandið.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.