Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Qupperneq 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 19. mars 2009
Nínonar slá upp veislu
Á laugardagskvöldið héldu Nínonarnir, Sigurbjörn, Kristján og Árni
Hilmarssynir, veislu í Ofeigskrónni í Skvísusundi. Þetta varð ein af
merkilegustu veislum ársins og buðu þeir til sín vinum og vanda-
mönnum. Árni Johnsen mætti með gítarinn og skemmti á sinn hátt.
Það var við hæfi að bjóða Erpi Snæ, fuglafræðingi í veisluna enda
eingöngu boðið upp á fuglakjöt eins og skarf, súlu, lunda, svartfugl og
gæs.
Þetta var samkoma upp á gamla mátann þar sem lög við reykinga-
banni var virt af vetugi. Létt var í mannskapnum og vel var tekið
undir með söng þingmannsins.
Til Færeyja á tuðrum
Feðgarnir Hilmar og Kristján ætla að sigla á tuðrum frá Vestmanna-
eyjum til Færeyja með viðkomu á Höfn. Gert er ráð fyrir að leggja
upp frá Hornafirði upp úr 20. júní. Árni Johnsen verður í Færeyjum
og tekur á móti siglingarmönnum. Finnig verða eiginkonur þeirra
komnar út á undan þeim. Leiðangursmenn ætla að sigla um allar
eyjarnar, skoða þær og kynnast þessu frændum okkar.
Túðrurnar verða sendir heim með Eimskip og leiðangursmenn fljúga
til íslands með flugvél. Ekki er enn ákveðið hvort þeir sigla fleyjum
sínum frá Reykjavík eða Þorlákshöfn hingað til Eyja.
Á EFRI myndinni fer Árni fyrir fjöldasöng og hér til vinstri er Árni og
Kristján Nínon að lýsa veisluréttunum fyrir Jonseninum.
Nýtt met slegið í Skákmaraþoni
Hið árlega Skákmaraþon Tafifélags Vest-
inannaev ja hófst á hádegi á laugardag og stóð
til jafnlengdar á sunnudaginn. Þátttaka var
góð og voru tefldar 1429 skákir sem er nýtt
met.
Til að hrjóta maraþonið upp var því skipt í
hluta. Kl. 18:00 var Foreldraskákin, um
miðnætti var Krossgötumótið sem ætlað var
andvaka fólki. Miðnæturmótið var svo
klukkan tvii um nóttina en það var sérstaklega
fyrir sjómenn. A Síðnæturmótið, scm var
klukkan fjiigur, voru næturgcstir velkomnir.
Árdagsmótið hófst klukkan sex um morg-
uninn og var fyrir árrisula. klukkan hálf tíu
hófst niðurtalningin og háll' cllcfu hófst
Martröðin sem er nýjung í Maraþoninu.
Gífurleg harka færðist í skákmaraþonið
þegar Martröðin hófst og voru tefidar yfir
300 skákir á síðustu 100 mínútunum. Að
lokum fór það svo að nýtt met var slcgið og
niðurstaðan var 1429 skákir, en gamla nietið
var 1352.
„Tilgangur maraþonsins var að venju ntarg-
þættur en fyrst og fremst að koma saman og
hafa gantan. Þá vonumst við til þess að
krakkarnir verði duglegir að safna áheitum til
styrktar lélaginu. ICinnig vekjurn við nteð
þessu áltuga fyrir skákinni í hænunt okkar.
Alls tóku 97 þátt í maraþoninu í ár og vill
Tafifélagi þakka fyrir hinn gífurlega stuðning
sent félagið fmnur fyrir í hænunt við starf
félagsins," scgir Karl Gauti formaður TV.