Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Qupperneq 1
\
FRÉTTIR
\
y
Bllaverkstæði - Flötum 20
Viðgerðir
og smurstöð
-Sími 481 3235
Réttingar
og sprautun
- Sími 481 1535
37. árg. I 45. tbl. I Vestmannaeyjum 11. nóvember 2010 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
ÞAÐ er mikið um dýrðir í Bæjarleikhúsinu um þessar mundir þar sem Leikfélagið sýnir Konung ljónanna. Sjá nánar í blaðinu í dag.
Til varnar sjúkraþjónustu á landsbyggðinni - Afhenda undirskriftalista:
Sameinast í baráttunni
í dag, fimmtudag, segja Sunn-
lendingar nei við lokun sjúkrahúsa á
Suðurlandi og undirskriftalistar með
nöfnum um 8400 manns verða
afhentir við Alþingishúsið klukkan
16.00. Listamir, sem koma víðs
vegar af svæðinu, verða fluttir í
gamalli sjúkrabifreið í bílalest frá
Selfossi til Reykjavíkur.
Sjúkrabifreiðin er táknræn því með
fyrirhuguðum niðurskurði er verið
að færa heilbrigðisþjónustu á lands-
byggðinni a.m.k. sextíu ár aftur í
tímann að mati aðstandenda sem eru
Samband sunnlenskra kvenna,
Verkalýðsfélögin á Suðurlandi,
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga,
Búnaðarsamband Suðurlands,
Atorka og Félag atvinnurekanda á
Suðurlandi.
Guðný Óskarsdóttir, varaformaður
Dnfanda stéttarfélags, sagði söfnun
undirskrifta hafa gengið mjög vel í
Vestmannaeyjum. „Fólk var mjög
duglegt að skrifa á listana og trún-
aðarmenn félagsins tóku þá út á
vinnustaði auk þess sem listar lágu í
verslununum. Það verður stór hópur
frá verkalýðsfélögunum á Suður-
landi viðstaddur þegar listarnir
verða afhentir,“ sagði Guðný en hún
verður sjálf viðstödd afhendinguna.
Á sama tíma skipuleggja þeir sem
vilja halda í sjúkrahúsþjónustu
einnig stöðu við Alþingishúsið og
vilja með því stuðla að samstöðu
íbúa um að verja þjónustuna á
landsbyggðinni.
Guðrún Bryndís Karlsdóttir, verk-
fræðingur, sem vakti mikla athygli
þegar hún ræddi skipulag og
niðurskurð í þættinum Návígi í sjón-
varpinu í síðustu viku er hrædd um
að niðurskurðurinn stuðli að sundr-
ungu þar sem svo lítið er til skiptan-
na fyrir landsbyggðarsjúkrahúsin á
meðan stærsti hlutinn fer til
Landsspítala. Hún vill að fólk hugsi
um í hvaða farvegi það vill sjá heil-
brigðisþjónustu á Islandi í fram-
tíðinni. Áð hver og einn meti það út
frá sjálfum sér og velti fyrir sér
hvemig þjónustu hann vill fá, hvort
hún er persónuleg, eykur öryggi
íbúanna o.s.frv.
Fjárhagsáætlun 2011:
Lægri
útsvarstekjur
Bæjarráð samþykkti á föstudag
forsendur fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2011. Gert er ráð fyrir a.m.k.
15% samdrætti í útsvarstekjum og
ræður mestu pólitísk óvissa í sjáv-
arútvegsmálum sem hefur dregið
verulega úr þeim miklu sóknar-
færum sem sú atvinnugrein gæti
annars nýtt sér.
„Á meðan yfir útgerðum, og þar
með landsbyggðinni, vofir hótun
um fyrningu aflaheimilda mun
atvinnugreinin ekki dafna heldur
búa við samdrátt. Útgerðir og
vinnslur halda í auknum mæli að
sér höndum í framkvæmdum, og
öllu öðm sem ýtir undir hagvöxt
og virðisauka í greininni,“ segir í
bókun ráðsins um tekjusam-
dráttinn.
Framlög úr jöfnunarsjóði dragast
saman um 7% til 10% frá áætlun
2010 og ræður þar mestu ákvörð-
un um breyttar reglur um úthlutun
aukaframlags og tekjusamdráttur
ríkisins.
Bæjarráð sér því víða hættumerki
í rekstraráætlun fyrir næsta ár.
„Illu heilli hefur höfuðborgar-
kreppan náð að teygja sig til Vest-
mannaeyja og víðar. Sérstaklega
er vont til þess að vita að mesti
skaðinn fyrir Vestmannaeyjar er
til kominn vegna pólitískra
ákvarðana. Bæjarráð beinir því
enn og aftur til alþingismanna og
ríkisstjómar að deilum um gmnd-
vallaratvinnuveginn verði vikið til
hliðar á meðan landið vinnur sig
úr hinum bráða efnahagslega
vanda. Með því fá íslendingar
allir nýtt þau miklu tækifæri sem
fylgja auðlindinni, öllum til
velmegunar."
Pakka bleikju
„Við tökum á móti tonni af bleikju
sem verður unnin í frystihúsi
Godthaab," sagði Hlynur Sig-
marsson hjá Oceanus Gourmet
þegar hann var spurður út í
bleikjufarm sem Guðmundur
Adólfsson, athafnamaður, sendi
til Eyja á miðvikudag.
„Bleikja hefur ekki verið unnin
hér áður en við pökkum þessu í
frauðplastpakkningar og seljum
beint á Frakkland og Sviss, “
sagði Hlynur um tilraunaverkefni
sem felst í því að pakka bleikju og
flytja út ferska á markað í Evrópu.
Lentu í bílveltu á Suðurlandsvegi á föstudag
Sigurður Þ. Jónsson sat þjóðfundinn á laugardag en
hann og kona hans, Elín Egilsdóttir, lentu hins vegar í
óskemmtilegri reynslu á leiðinni frá Landeyjahöfn til
Reykjavikur á föstudeginum. „Við vorum komin vestur
fyrirVegamót þegar bíllinn lenti á hálkubletti með þeim
afleiðingum að hann fór að skauta til og fór svo eina og
hálfa veltu og lenti á toppnum úti í skurði," sagði
Sigurður og segir fólk hafa driflð að til að hjálpa þeim
út úr bflnum og svo lögregla og sjúkrabfll. Það er meira
en ég bjóst við á íslandi í dag,“ bætir Sigurður við en
hann og Elín sluppu betur en á horfðist í fyrstu.
„Við erum lemstruð og það á eftir að koma í ljós hvort
það verða einhver eftirköst af þessu. Ég er aumur í
skrokknum en við vorum skoðuð á sjúkrahúsinu á
Selfossi en bflinn er ónýtur og algjörlega í klessu,"
sagði Sigurður en lét sig ekki vanta á þjóðfundinn
daginn eftir. „Ég slugsaðist á þjóðfundinn sem var mjög
áhugaverð samkoma. Það kom mér mjög á óvart og ég
var hrifinn af vinnubrögðunum og hvemig þetta pró-
gramm var keyrt á fundinum, “ sagði Sigurður en vill
ekki segja til um hvort þeir háu herrar sem fá þessar
hugmyndir í hendumar taki mark á þeim.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
Oö'' ÞJÓNUSTUAÐILrOYG A (EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
VELA- OG BILAVERKSTÆÐI
FLATIR 21 / S.481 1216 / GSM. 864 4616
Friðarhöfn | Sími 481 3500
Ejeimskip
Yj-ir hafið ocj heim