Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Side 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember2010
Úr blogghcimum:
Ragna Birgisdóttir bloggar:
Eg hlustaði á...
□ ...Gnarrinn í
gærkvöldi, einu
geimveruna sem ég
veit til þess að sé
borgarstjóri ein-
hverrar borgar í
heiminum. Ég
hafði lúmskt
gaman af honum. Fyrir marga
hljómaði hann eins og „Geimvera"
illa talandi á íslenska tungu á
meðan öðrum fannst hann hljóma
eins og Guðinn Gnarr. Ég hlustaði
þó aldrei þessu vant. Fannst það
sem hann hafði fram að færa ekkert
verra en þeir pólitíkusar sem fara
að mala um leið og búið er að
stinga forritinu upp í gatið á þeim.
Ringulreið má kalla allt sem fer
fram í stjómsýslunni á Islandi í
dag. Það verða líklega ár og dagar
sem líða þangað til að ég trúi ein-
hverjum pólitíkusi hér á landi.
Finnst þetta vera sama gamla
lumman.
http.V/ragnabi. blog. is
Gísli Hjartarson bloggar:
Hvað ætli
íslenskir...
....pistla höfundar
sem hraunað hafa
yfir Roy Hodgson
síðustu vikumar
segi núna?
Liverpool skútan
allt í einu kominn
með dælumar í
gang og það virðist vera að nást
gott jafnvægi á skipið. Hvort það
endist veit ég ekki en vona það þó,
ekki veitir af fjölbreytninni þama
við toppinn - já ég veit að það eru
nokkur stig í það að Liverpool sjái í
afturendann á þeim liðum sem
flestar stigatröppurnar hafa klifið.
Að öðra en samt Liverpool tengdu.
Það verður gaman að hitta Bigga
Sveins þegar hann kemur til baka,
en hann fór með fjölskylduna á
völlinn í Englandi um helgina. Old
Trafford í gær, Anfield í dag.
Fjölskyldan sem skiptist á milli
United og Liverpool ætti að geta
borðað í rólegheitunum í kvöld þar
sem bæði liðin unnu!!!
http.V/fosterinn. blog. is
Georg Eiður Amarson bloggar:
Enn einu sinni
fastur uppi á
landi...
...og þetta er í 3.
skiptið á 2 mánuð-
um sem ég þarf að
kaupa mér gistingu
og missa af vinnu
ásamt öðrum
óþægindum. Tjón
mitt er orðið um
500 þús. krónur á þessu Landeyja-
klúðri, og mér er sagt að ferð
Herjólfs til Landeyjahafnar í
hádeginu í dag hafi verið aflýst
vegna þess, að skipið hafi verið við
það að taka niðri á flóðinu í
morgun í Landeyjahöfn. Einnig er
mér sagt að uppi séu hugmyndir
um að loka Landeyjahöfn hugsan-
lega restina af vetrinum. Hef ég því
ákveðið að skora á eftirtalda aðila
að axla sína ábyrgð og segja af sér:
Sigurð Ass Grétarsson, Siglinga-
málastofnun, Elliða Vignisson,
bæjarstjóra í Vestmannaeyjum,
Kristján Möller, alþingismann og
fyrrverandi samgönguráðherra,
Róbert Marshall, alþingismann og
Ama Johnsen, alþingismann.
http.V/georg. blog. is
Eyjamaður vikunnar:
Eitt af morgum drauma-
hlutverkum að leika Tímon
Eyjamaður vikunnar er Alexander Páll Tórshamar.
Leikritið Konungur ljónanna var
framsýnt á laugardaginn í Bæjar-
leikhúsinu en um þessar mundir
fagnar Leikfélag Vestmannaeyja
100 ára afmæli félgagsins. Því var
allt lagt í sölumar fyrir sýninguna
og niðurstaðan er glæsileg sýning
sem Eyjamenn ættu ekki að láta
framhjá sér fara. Leiksýning snýst
hins vegar alltaf að miklu leyti um
frammistöðu leikara og þeir vora
hver öðrum betri í sýningunni.
Tímon og Púmba era líklega fyndn-
ustu karakterar teiknimyndasög-
unnar en það eru þeir Alexander
Páll Tórshamar og Gunnar Friðberg
Jóhannsson sem túlka þá félaga og
gera það frábærlega. Alexander
Páll er Eyjamaður vikunnar að
þessu sinni.
Nafn: Alexander Páll Tórshamar.
Fæðingardagur: 1. október 1989.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar,
auðvitað.
Fjölskylda: Foreldrar mínir era
Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir og
Ósvald Alexander Tórshamar. Eg á
slatta af systkinum.
Draumabfllinn: Hef ekkert vit á
bflum.
Uppáhaldsmatur: Jólamaturinn
hennar mömmu og Lasagnia-ið
hans pabba.
Versti matur: Allur sveitamaturinn
hans pabba.
Uppáhalds vefsíða: Er það ekki
bara facebook eins og hjá öllum
öðram.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Það er Muse og Sálin.
Aðaláhugamál: Náttúrulega leik-
listin og íþróttir.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Það koma margir upp í hugann. Til
dæmis Bessa Bjama, Jesú Krist og
Adolf Hitler, ef hann væri á geð-
lyfjum.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Ég hef ekkert farið lengra
en til Patreksfjarðar þannig að
Vestmannaeyjar era fallegasti
staðurinn sem ég hef komið á.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Uppáhaldsfélagið
mitt er Manchester United. Mig
langar að segja að Ronaldo sé
uppáhaldsíþróttamaðurinn minn en
ég geri það ekki. Ég vel
Hemandez í staðinn.
Ertu hjátrúarfullur: Nei, alls
ekki. Halli leikstjóri sagði „Gangi
ykkur vel,“ fyrir framsýninguna.
Það má alls ekki í leikhúsinu enda
var hljóðið ekki eins og það átti að
vera á framsýningunni.
Stundar þú einhverjar íþróttir:
Leikhúshlaup frá morgni til kvölds.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Horfi
ekki á sjónvarp.
Ertu sáttur með fyrstu sýningar-
helgina: Mjög svo. Þrátt fyrir
tæknileg vandamál á framsýning-
unni, þá gekk sýningin vel og
önnur sýning ennþá betur.
Er gaman að leika Tímon: Það er
æðislegt.
Er þetta draumahlutverkið: Já,
það er alveg óhætt að segja það.
Eitt af mörgum.
Eruð þið Tímon og Púmba lengi
að koma ykkur í gervin: Við erum
svona um það bil klukkutíma að
koma okkur í búning og sminka
okkur.
Af hverju eiga Eyjamenn að
koma og sjá Konung ljónanna:
Því að þetta er eitt af því stærsta og
besta sem Leikfélag Vestmannaeyja
hefur sett á svið. Auk þess er þetta
í fyrsta sinn sem Konungur ljón-
anna er settur á svið á Islandi.
Eitthvað að lokum: Hakuna
matata!
Matgazðingur vikunnar:
Vðfflnr, brauð og Barbý-kjúllí
Ég vil þakka litlu systur minni
henni Ingu Jónu Hilmisdóttur fyrir
að kynna mig til leiks sem
glaðvœra, syngjandi húsmóður, ekki
leiðinleg ímynd það. Ég er svo
heppin að eiga gamla Kenwood, ég
get sungið eins og raddböndin þola
þegar hún er í gangi. Ég hefverið
að laga uppskriftir að frekar
viðkvœmri meltingu og fœðuóþoli
sem er að hrjá mig. Vöjflurnar
mínar eru vel þegnar og það er oft
glatt á hjalla í Holtagerðinu þegar
sonardœtur mínar, Salka Sól og
Klara, hjálpa mér við baksturinn.
Vöfflur
3 bollar spelt - fínmalað
Vi bolli hrásykur
3 tsk. vínsteinslyftiduft
Speltið sigtað í skálina - sykri og
lyftidufti blandað við með písk
4 egg
Vi bolli ólífuolía
2 tsk. vanilludropar
1 bolli mjólk (soyja-, hafra- eða
hrísmjólk ef vill)
Eggin, olían, vanillan og mjólkin
slegið saman í annarri skál og hellt
út í þurrefnin. Allt slegið saman
með písk (ekki hrærivél) þar til
deigið er kekkjalaust. Látið standa
um stund. Hræra meiri mjólk
saman við soppuna ef hún er þykk.
Vöfflujámið hitað aðeins yfir miðju
og smá olía látin hitna með því.
Tæplega ein ausa af deigi sett á
jámið og bakað. Ef vafflan situr
föst í járninu er í lagi að hræra smá
olíu saman við deigið.
Borið fram með berjamauki,
hunangi, sírópi, sykri, ávöxtum, ís,
rjóma, rifnu Síríus Konsum,
Toblerone eða bara því sem þér
dettur í hug.
Matgœðingur vikunnar
Hrefna Hilmisdóttir.
Banana-brauð
2 bollar spelt- fínmalað
1 bolli spelt- grófmalað
1 bolli haframjöl
50 gr möndluflögur
4 tsk. vínsteinsduft
1 tsk. kanill
1/2 tsk. salt
1 bolli hrásykur
2egg
2 msk. hunang
2 msk. kókósolía
5 bananar eða 3 bananar og 1 bolli
rifsber eða bláber.
*2 msk. haframjöl til að strá ofan á
brauðin
Stappið banana léttilega og blandið
hunangi, kókósolíu, eggjum, sykri,
salti og kanil saman við.
Sigtið speltið, fína og grófa, bland-
ið því ásamt haframjöli, vínsteins-
dufti og möndlum saman.
Hrærið blöndurnar saman og setjið
( 2 smurð og hveitistráð form.
Bakið við 150°C í ca. 50 mínútur.
Berið fram með t.d. smjöri og osti,
heimatilbúnu rifsberjahlaupi eða
bara því sem hugurinn gimist.
Barbý-kjúklingur
6 kjúklingabringur, skinnlausar
2 dl Barbecuesósa
1 dl Tamariasósa
1/4 dl Balsamikedik
1 dl agavesýróp/hunang
25 gr íslenskt smjör
1/2 dl olía af sólþurrkuðum tómöt-
um
6 msk. saxaðir sólþurrkaðir tómatar
eða eftir smekk
Vi stk mango
1 poki Doritos með salti og pipar.
Barbecuesósa, Tamari, Balsamik-
edik, sýróp, smjör og olía sett í pott
og hitað að suðumarki, hrærið í á
meðan hitinn er að koma upp.
Kjúklingabringur skomar í tvennt,
þversum og velt upp úr sósunni og
raðað í smurt eldfast fat. Mangóið
skorið í litla bita og dreift ásamt
sólþurrkuðu tómötunum á milli
kjúklingabitanna.
Fatið sett í ofninn á 150°C hita. Á
10 mínútna fresti er gott að snúa
bitunum og hella sósu yfir. Bakað í
ofninum í ca. 45 mínútur. Rétt áður
en rétturinn er borinn fram er
Doritos mulið yfir. Borið fram með
brúnum Tilda basmati hrísgrjónum,
fersku grænmetissalati og fetaosti.
Mér þykir vœnt um aðfá að taka
þátt sem matgœðingur vikunnar.
Tengslin við Eyjar styrkjast og ég
veit að þannig lítur hún Binna,
vinkona mín, líka á þetta. Þess
vegna skora ég nú á Brynhildi
Brynjólfsdóttur að verða nœsti mat-
gæðingur Frétta. Ekki veit ég hvort
hún syngur í eldhúsinu en það er
eins og hún dansi við potta og
pönnur þegar hún galdrar fram
réttina.
Kirkjur bazjarins:
landakirkja
Fimmtudagur 11. nóvember
Kl. 10.00. Mömmumorgunn. Kaffi
og spjall.
Kl. 13.30 STÁ (6-8 ára kirkjustarf)
í Safnaðarheimilinu.
Kl. 15.00 NTT (9-10 ára kirkju-
starf) f Safnaðarheimili Landa-
kirkju.
Kl. 20.00. Æfing hjá Kór
Landakirkju.
Kl. 20.00. Opið hús hjá æskulýðs-
félaginu í KFUM&K-húsinu (9.
oglO. bekkur)
Föstudagur 12. nóvember
Kl. 13.00. Æfing hjá stúlknakór
Landakirkju.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum.
Laugardagur 13. nóvember
Kl. 14.00. Útför Sveininnu Ástu
Bjarkadóttur (Ninnu).
Sunnudagur14. nóvember
Kristniboðsdagurinn
Kl. 11.00. Sunnudagaskóli. Söngur,
sögur og gleði, gleði, gleði!
Kl. 14.00. Messa með altarisgöngu
á Kristniboðsdeginum. Kór
Landakirkju syngur undir stjóm
Guðmundar H. Sr. Guðmundur Öm
prédikar og þjónar fyrir altari.
Kl. 20.00. Æskulýðsfundur hjá
æskulýðsfélagi Landakirkju og
KFUM & KFUK í Safnaðarheimili
Landakirkju.
Mánudagur 15. nóvember
Kl. 19.30. Fundur hjá vinum í bata,
12 spora andlegt ferðalag.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá
Kvenfélagi Landakirkju.
Þriðjudagur 16. nóvember
Dagur íslenskrar tungu
Kl. 11.30. Fermingarfræðsla.
Kl. 14.30. Fermingarfræðsla.
Kl. 15.00. ETT (11-12 ára kirkju-
starf) í Safnaðarheimili Landa-
kirkju
Kl. 20.00. Opið hús hjá æskulýðs-
félaginu í KFUM&K-húsinu (8.
bekkur)
Miðvikudagur 17. nóvember
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 13.30. Fermingarfræðsla.
Kl. 14.30. Fermingarfræðsla.
Viðtalstímar prestanna eru
mánudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 11. nóvember
Kl. 20:00 Skoðum „Tilgangsríkt
líf ‘ og biðjum saman.
Föstudagur 12. nóvember
Kl. 17:30 Krakkafjör, Royal
Rangers, fjör fyrir alla krakka!
Sunnudagur 14. nóvember
Kl. 13:00 Guðni Hjálmarsson
prédikar, söngur og vitnisburðir.
Mánudagur 15. nóvember
Kl. 20:00 Kvennasamvera. Allar
konur sérstaklega velkomnar.
Aðventkirklan
Laugardaginn 13. nóvember
Kl. 11:00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir böm og full-
orðna. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Einnig
verður Biblíu lexía fyrir fullorðna.
Efnið er aðgengilegt öllum á vef
kirkjunnar á www.adventistar.is
undir fræðsluefni/Biblíulexia.
Kl. 12:00 Guðsþjónusta. Bein
útsending frá aðventkirkjunni í
Reykjavík. Eric Guðmundsson
prédikar. Allir velkomnir.
Sími hjá safnaðarpresti er 8662800,
netfang thora@adventistar.is