Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Page 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember 2010
Safnahelgin - Gerður Kristný, Ásgrímur, Árni Þórarins, Steinunn
Jóhannesdóttir og Yrsa lásu upp úr verkum sínum:
Vel metið framtak
ÁRNI Þórarinsson las upp úr Morgunengli í Herjólfsbæ.
Frosti og Hrafn.
Fundaröð um Tækifæri atvinnulífsins:
Sá fyrsti á föstudaginn
Safnahelgi er sannkölluð menn-
ingarveisla þar sem listagyðjan
leikur við hvern sinn fingur hvort
sem snýr að ritlist, myndlist eða
tónlist. Rithöfundar stigu á stokk í
Safnahúsi og í Herjólfsbæ á laug-
ardag og fengu góða mætingu og
bæjarbúar virtust kunna vel að meta
lesturinn. Reyndar tók Gerður
Kristný forskot á sæluna og las úr
bókum sínum fyrir böm í Ham-
arsskóla á fímmtudag.
I Safnahúsi las Ásgrímur Hart-
mannsson úr bók sinni 31 nótt en
þetta er fyrsta bók höfundar og er
ætluð unglingum. Ásgrímur las um
ævintýrapersónur í ævintýraheimi
þar sem allt virtist geta gerst og
örugglega togstreita milli góðs og
ills.
Steinunn Jóhannesdóttir las úr
bókinni Heimanfylgju sem er
skáldsaga um sr. Hallgrím Péturs-
son sálmaskáld en kona hans var
Guðríður Símonardóttur. Steinunn
las kafla þar sem Hallgrímur, ungur
að árum, varð vitni að galdrabrennu
og gosi í Eyjafjallajölkli en þess má
vænta að Steinunn skrifi þriðju
bókina um líf hans með Guðríði.
Reisubók Guðríðar byggir á lífi
hennar frá því að hún er hertekin í
Vestmannaeyjum og þar til hún
kynnist Hallgrími í Kaupmanna-
höfn.
Stemmningin í Herjólfsbæ er alltaf
dálítið skemmtileg og gaman að
koma þangað inn í rökkvaðan
bæinn þar sem kertaljós eru eini
ljósgjafinn og betra að vera vel
búin svo kuldaboli bíti ekki í
tæmar. Árni Þórarinsson las upp úr
Morgunengli og færði lesendur inn
í sögusviðið á Ákureyri. Einar
blaðamaður var strax kominn inn í
óvænta og spennandi atburðarás þar
sem póstburðarkona kom við sögu
og ómögulegt að segja til um hvort
hún lifði bókina af.
Yrsa Sigurðardóttir las úr bókinni
Eg man þig en þar er sögusviðið
líka á landsbyggðinni. Kaflinn sem
Yrsa las var mjög áhrifaríkur en þá
var verið að ferja fólk yfir á
Hesteyri og ýmsar vísbendingar um
að ekki væri allt með felldu á
staðnum.
Áheyrendur urðu viðskila við fjöl-
skylduna á Hesteyri rétt eins og
póstburðarkonuna og Einar blaða-
mann á Akureyri og vilja auðvitað
vita meira enda báðar sögurnar
grjótharðar spennusögur.
Höfundurnar svöruðu spurningum
áheyranda eftir lesturinn en vom
ófáanlegir til að upplýsa um sögu-
lok.
Á næstu mánuðum munu Nýsköp-
unarmiðstöð Islands og Atvinnu-
þróunarfélag Suðurlands, í sam-
starfi við Fréttir og Eyjafréttir,
halda fundaröð um tækifæri
atvinnulífsins í Eyjum.
Fundimir verða haldnir á Kaffi
Kró. Verður fyrsti fundurinn á
morgun, föstudaginn 12. nóvember,
og verður hann tileinkaður verslun
og þjónustu. Tilgangur með fund-
unum er að halda uppi umræðu um
tækifæri atvinnulífsins í Eyjum og
skiptast á upplýsingum sem geta
stutt við atvinnulífið í Eyjum.
Frosti Gíslason, hjá Nýsköpunar-
miðstöð íslands, segir að hugmynd-
in með þessu sé að skapa vettvang
fyrir fólk úr atvinnulífmu til að
koma saman og skipast á skoðun-
um og sýn. „Með þessu er ætlunin
að leita tækifæra fyrir atvinnulífið
og styðja við aukna nýsköpun og
vöruþróun,“ sagði Frosti.
Hrafn Sævaldson, hjá Atvinnuþ-
róunarfélagi Suðurlands, bendir á
að búið sé að undirbúa fjölmarga
fundi fyrir mismunandi geira
atvinnulífsins, stefnt sé að því að
halda einn fund í hverjum mánuði,
annan föstudag í hverjum mánuði,
fram á sumar.
„Á fyrsta fundinum verði áherslan
á verslun og þjónustu. Verður
fenginn fyrirlesari frá Háskólanum
á Bifröst, prófessor Emil Karlsson,
sem jafnframt er forstöðumaður
Rannsóknaseturs verslunarinnar.“
Hrafn segir Emil ætla að fjalla um
verslunarhætti, verðlagsmál, breytta
neysluhegðun o.fl. „Reynt er að
beina athyglinni að líðandi stund og
einhverjum spennandi málum
hverju sinni. Þá mun Emil einnig
kynna nám sem farið verður af stað
með á Bifröst fyrir verslunarfólk,
nám sem er hannað fyrir verslun og
þjónustu. Umræður og fyrirspurnir
verða síðan í lokin," sagði Hrafn.
Frosti segir að þessi fyrsti fundur
muni gagnast verslunareigendum í
Eyjum sérstaklega. „Við höfum
einnig undirbúið fundi þar sem
verður fjallað um flugsamgöngur,
þátttöku fjármálastofnana í at-
vinnulíftnu, málefni ferðaþjón-
ustunnar, sjávarútvegsins o.fl. Þeir
fundir verða betur kynntir þegar
nær dregur.“
Hrafn segist vonast til þess að
þessu framtaki verði vel tekið og
hvetur alla áhugasama og þá sem
málið varðar að mæta og taka
virkan þátt.
Fundimir verða með þétta dag-
skrá, verða í hádeginu á föstu-
dögum, hefjast stundvíslega
kl: 12:05 og lýkur stundvíslega
kl: 12:55. Á fundunum verður hægt
að fá súpu, brauð og kaffi á mjög
sanngjömu verði eða á 1200 kr.
Fundimir verða haldnir á Kaffi
Kró.
Skráning á fundinn er hjá Hrafni
hjá Atvinnuþróunarfélaginu,
hrafn@sudur.is, sími 481 2961 eða
hjá Frosta Gíslasyni, frosti@nmi.is,
sími 481 3355.
Vel heppnað konukvöld í Volare og Krakkakoti
Volare ehf. stóð fyrir konu-
kvöldi á fimmtudag í húsnæði
verslunarinnar við Vesturveg.
Guðmunda Hjörleifsdóttir,
framkvæmdastjóri, sagði
kvöldið hafa tekist mjög vel en
eitthvað á þriðja hundrað
konur mættu og áttu góða
kvöldstund saman.
„Karl Kristmanns umboðs- og
heildvcrslunin bauð upp á
smárétti og ístertur og Þóra
Hrönn Sigurjónsdóttir kynnti
Böddabita frá Godthaab í Nöf,
reyktan og grafinn sjólax og
heilsusnakk sem vakti mikla
athygli. Við vorum með
tískusýningu frá Jazz og
Barnaborg sem tókst frábær-
lega og það var skemmtilegt að
vera bæði með fatnað fyrir
börn og fullorðna. Svo vorum
við með kynningu á Star-Glass
vörum og auk þess með fulla
búð af jólavörum sem voru á
sérstökum kynningarafslætti, “
sagði Guðmunda og bætti því
við að hún hafi fengið mjög góð
viðbrögð frá þeim sem mættu.
Þetta er í fjórða skipti sem
Volare stendur fyrir konukvöldi
en í fyrsta skipti sem það er
haldið í húnæði Volare og
Barnaborgar við Vesturveg.
OSKAR PETUR mætti í hófið
og tók þessar myndir sem segja
meira en mörg orð.