Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 12
12 Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember2010 Saga Sigurðar Einarssonar er stór hluti af sögu Vestmannaeyja - Byggjum enn á gla Eyjamaður sem unn -Hann var líka fjölskyldumaður, traustur vinur, öflugur atvinnurekandi, segir Ein Verðugur fulltrúi útgerðarmanna I ljósi þeirra árása sem sjávarútveg- ur verður nú fyrir og hótanir ráð- herra í núverandi ríkisstjórn í garð útgerðarmanna var athyglisvert að hlusta á Einar Sigurðsson, rifja upp sögu föður síns, Sigurðar Einars- sonar, fyrrnrn forstjóra Hraðfrysti- stöðvarinnar og síðar ísfélagsins. Ræðuna flutti Einar þegar afhjúpað var brjóstmynd af föður hans, 1. nóvember sl. en þá hefði Sigurður, sem lést 4. október 2000, orðið sex- tugur. Sigurður tók við Hraðfrysti- stöðinni af föður sínum, Einar Sigurðssyni ríka, árið 1975 þegar endurreisnin var að komast í ful- lan gang í Vestmannaeyjum eftir gosið 1973. í hönd fóm erfiðir tímar í sjávarútvegi og á árunum eftir 1980 var greinin komin að fótum fram. Niðurstaða allra hagsmunaaðila og stjómmálaflokka var að koma á nýrri skipan í stjór- nun fiskveiða og varð kvótakerfið að veruleika árið 1984. Þá tók við langt og erfitt aðlögu- nartímabil hagræðingar sem byg- gði á að færri þarf til að veiða og vinna aflann sem komið er með að landi. Þetta þýddi erfiðleika og hér í Vestmannaeyjum fækkaði íbúum úr 5000 í 4000 frá ámnum eftir 1990 fram á þessa öld. Nú er komið á jafnvægi í sjávarútvegi, Vestmannaeyjar að rísa en þá hefur ríkisstjómin einsett sér að hleypa öllu í uppnám með fymingarleiðin- ni sem þýðir aukaskattlagningu á sjávarbyggðir og óvissu um framtíð greinarinnar. Þó Sigurðar nyti aðeins við í 25 ár markaði hann djúp spor í sögu Vestmannaeyja og sjávarútvegs sem ekki var alltaf dans á rósum. Kom hann m.a. að því að koma á kvótak- erfinu þar sem hann hafði leið sátta að leiðarljósi. í dag er ísfélagið eitt glæsilegasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins en hver verður staða þess eftir t.d. fimm ár? Einhvers staðar stendur að gott sé að hyggja að fortíðinni þegar byggja á upp. Það er ástæðan fyrir því að Fréttir fóm fram á að fá að birta hluta úr ræðu Einars. Þar er rakin saga manns sem var verðugur fulltrúi íslenskra útgerðarmanna sem flestir hafa sýnt í verki að þeir hafa metnað fyrir sín fyrirtæki og sitt byggðarlag. Þeir em líka eins og fólk er flest að vilja sjá sína ná árangri og eru f góðu sambandi við sitt nánasta umhverfi. Og nú þegar Island er á heljarþröminni er það sjávarútvegur sem kemur til bjargar. Samt sjá forsætisráðherra og ráðherra umhverfismála ástæðu til að senda útgerðarmönnum tóninn. I upphafi skyldi endinn skoða og því vilja núverandi ráðamenn varla að endirinn verði sama ófremdarás- tandið sem lengi var í sjávarútvegi og um leið í gengismálum þjóðarinnar. Sagan ætti að geta sýnt mönnum hversu mikilvægt er að byggja áfram á núverandi afla- markskerfi með það að markmiði að auka sátt um kerfið og um leið hafna fymingarleiðinni líkt og allir nefndarmenn nema tveir í sátta- nefnd Guðbjarts Hannessonar gerðu. Omar Garðarsson. SIGURÐUR Hreinn og beinn, hæverskur en samt svo fastur fyrir þegar hann vildi hafa það. Þannig lýsir Einar föður sínum. Mynd Sigurgeir. Ætlaði ekki að verða útgerðarmaður Sigurður fæddist í Reykjavík, þann I. nóvember árið 1950, sonur hjónanna Svövu Ágústsdóttur og Einars Sigurðsson útgerðarmanns. Hann ólst upp í stórum systkina- hópi, 11 böm sem fæddust og 10 sem komust til manns. Átta systur og tveir bræður. „Eins og gefur að skilja hefur verið líf og fjör í svo stómm hópi en alla tíð hefur samband systkin- anna verið náið. Var pabbi einstak- lega duglegur að heimsækja þær systur þegar hann hafði tíma til þegar hann stoppaði í Reykjavík. í dag eru þau átta á lífi og sjö hér í dag, Ólöf föðursystir mín átti ekki heimangengt en hún býr í Banda- ríkjunum," sagði Einar um fjöl- skyldu föður síns og samskipti þeirra. Og hann hélt áfram: „Þegar pabbi minn var 11 ára var afi minn, Einar, að tala við bömin um hvað þau ætl- uðu að verða þegar þau yrðu stór. Hefur hann skrifað í dagbækumar sínar af þessu tilefni: „Þá sagði Sigurður: -Ef til vill verð ég verk- fræðingur, og bætti síðan við hugs- andi: -Að minnsta kosti verð ég ekki útgerðarmaður. Það átti nú samt eftir að verða hlutskipti föður míns að verða útgerðarmaður." Á hraðferð í gegnum lögfræðina Sigurður flutti til Eyja árið 1975 eða um leið og hann hafði lokið prófi í lögfræði. Henni lauk Sigurð- ur á fjómm ámm sem þótti talsvert afrek á þeim tíma enda lögfræðin fimm ára nám. „Hann sagði að sér hafi leiðst lögfræðin og viljað klára hana sem fyrst. En miðað við góð- an árangur held ég að hann hafi bara verið hann sjálfur. Duglegur til verka og ekki að tefja þau umfram það sem þarf. Hann var þó ekki stoltastur að hafa klárað á fjómm ámm þó það hafi verið vel af sér vikið heldur lokaritgerðinni sinni sem fjallaði um skaðabótaábyrgð í viðskiptum með lausafé. Stuðst var við hana við kennslu í lagadeild all- mörg ár eftir að hún kom út. Baldur Guðlaugsson, sem var stjómarformaður Isfélagsins frá 1992 til 2000, skrifaði minningar- grein um Sigurð og sagði þar að rit- gerðin hafi nýst lögfræðingum vel til að fletta í ef á þyrfti að halda og það hafi í raun orðið hans fyrstu kynni af Sigurði.“ Meira hugsað um magn en gæði Einar sagði að það hefði ekki verið auðvelt hlutskipti að koma hingað að taka við þessu stóra fyrirtæki fyrir 25 ára gamlan mann. „Þetta er stuttu eftir gos en frystihús Hrað- frystistöðvarinnar, sem þá var eitt það stærsta á landinu, fór undir hraun og mikið uppbyggingarstarf fram undan. Á þessum ámm var reksturinn erfiður og mikið þurfti að gera til að byggja fyrirtækið upp. Á ýmsu gekk í sjávarútvegi og aðstæður aðrar heldur en í dag,“ sagði Einar. Hann sagði að þó fyrstu árin hafi verið erfið hafi verið mikið líf í sjávarútvegi á þessum ámm. Það kunni líka að hljóma undarlega þegar horft er á sjávarútveginn í dag að hugsa um það kapphlaup sem var þá á vetrarvertíðum hér í Vestmannaeyjum upp úr 1980. „Var hamagangurinn slíkur að ná sem flestum fiskum á land en í dag væri slíkt óhugsandi þegar menn reyna að ná sem vandaðasta og verðmætasta hráefninu. Þegar kapp- hlaupið var sem mest og fiskur kominn á öll bílaplön við frysti- húsin kom upp annað vandamál, að sárlega vantaði fólk til að vinna í mestu aflahrotunum,“ sagði Einar og kom með skemmtilega sögu af föður sínum í þessum slag. Fannst forstjórinn ekki standa sig „f einni aflahrotunni fór faðir minn að vinna í frystihúsinu sem var hvorki í fyrsta eða síðasta skiptið sem hann gerði það. Fór hann í það sem kallaðist innmötun en þá var hann ábyrgur við að moka fisknum inn á færiböndin í frystihúsinu. Vann þar ásamt pilti sem var nýkominn hingað á vertíð. Hafði ekki hugmynd um hver samstarfs- maðurinn í innmötuninni var. Það fór þó mjög í taugamar á hinum nýflutta hvað samstarsmaðurinn var oft kallaður í símann. Þegar líða fór á daginn byrjaði hann að skammast meira og meira í pabba að þetta símaráp gengi ekki. Pabbi sagði ekki orð heldur tók bara við skömmunum eins og þær komu frá samstarfsmanninum mitt á milli þess að hann hoppaði í sím- ann þegar hóað var í hann. Samstarfsmaðurinn var að vonum óánægður með þetta en þeir höfðu varla undan tveir og þetta væri ómögulegt þegar annar væri alltaf að fara í símann. Rétt fyrir kaffi- tíma hafði pabbi hoppað f símann og sat eftir símtalið á kaffistofunni þegar kaffið byrjaði. Þegar sá ný- flutti kom inn á kaffistofuna og sá pabba sitja þar, nýbúinn í símanum, brast þolinmæðin, hann skammaði hann fyrir framan alla að voga sér að taka kaffitíma, búinn að eyða hálfum deginum í símanum. Hann skyldi klaga hann fyrir verkstjór- anum og láta reka hann. Þá og ekki fyrr pikkaði einhver samstarfsfélagi í hann og sagði við aðkomumann- inn, leyfðu mér kynna Sigurð Ein- arsson, forstjóra félagins," sagði Einar. Hæverskur, fastur fyrir og hreinn og beinn „Hreinn og beinn, hæverskur en samt svo fastur fyrir þegar hann vildi hafa það. Pabbi var hrein- skiptinn og og fólk vissi ávallt hvar það hafði hann. Hann vann sér með því virðingu og traust þeirra sem hann átti samskipti við og hafði lag á því að segja erfiða hluti við fólk án þess nokkurn tíma að móðga það eða vera ókurteis.“ Þannig lýsti Einar föður sínum og hélt áfram: „Hann vildi yfirleitt segja mönnum það beint út þegar hann var óánægður með eitthvað eða teldi að eitthvað ætti að gera með öðrum hætti en gert var. Það var því í hans anda þegar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.