Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember2010 15 Leikskólinn Sóli: Leikskóladagar á Hofi og Túni Hof og Tún eru heiti á yngstu barna deildunum á Sóla. A deildun- um eru samtals 27 böm á aldrinum 18-36 mánaða. Dagskipulagið á deildunum er mjög líkt. Deildirnar opna kl. 7.30 og er byrjað á rólegum leik. Fyrir morgunmatinn er samverustund, í dag er sungið. Morgunmaturinn er hafragrautur og lýsi. Þá er komið að listasmiðjunum, börnin á Túni fara í hreyfistund sem fer fram í stóra salnum. I hreyfistundunum er lögð áhersla á grófhreyfmgar, hlust- un og einbeitingu. Alltaf mikið fjör í salnum. Bömin á Hofi fara í tón- list, sem fer fram í tónlistarher- berginu. Þar er sungið, farið í hreyfileiki og bömin fá að kynnast hinum ýmsu hljóðfæmm. Mjög skemmtilegir tímar. Eftir smiðjurnar er útivist, hún er yfirleitt í 30 - 45 mínútur. í útivistinni er sandkassinn vinsæll sem og hjólin og kastalinn og svo má maður líka bara rölta um og skoða. Þá er komið að salernis- ferðum, skipt er á bleium eða farið á klósett og svo þvoum við hendur. I dag er sameiginleg söngstund, þá hittast Hof og Tún og syngja saman nokkur lög fyrir hádegismatinn. í dag er soðin ýsa með kartöflum og rófum, uppáhald allra. í matartím- anum er svolítil ókyrrð við eitt borðið. Starfsmaðurinn slær létt í borðið og segir HEI! Þá heyrist í litlum peyja á borðinu við hliðina; umbarassa, umbarassa, umbarass- sasa, Hei!“ (Þau eru óborganleg þessi kríli •) Þá er komið að hvíldinni, sumir fara út í vagn, en aðrir inn í leik- stofu þar sem búið er að leggja dýnur og setja rúmföt. Hvíldartíminn er frá kl.12-13 og lengri fyrir þau sem þurfa. Eftir hvíldina tekur við róleg stund, þau sem geta fara á klósettið hin fá nýja bleiu. Þá pússlum við, leirum, litum og skoðum bækur. Þegar allir eru komnir á kreik er farið í frjáls- an leik, þá geta börnin valið sér leikkróka sem eru t.d. heimilis- krókur, kubbar og dýr. Kl. 14.30 er komið að nónhressingu þá er í boði gróft brauð, ostur, ávöxtur og kex. Nú fer bömunum að fækka á deild- unum: Við hittumst aðeins í stóra sal í smá boltaleik áður en við dríf- um okkur út í góða veðrið. Góður dagur í leikskólanum er liðinn. Bestu kveðjur frá öllum á Hofi og Túni. Þorsteinn Ólafsson skrifar um Landeyjahöfn: Að gefnu tilefni Það er vonast eftir því að Land- eyjahöfn verði mikil samgöngubót fyrir Vestmannaeyinga. Vonandi verður svo í framtíðinni, en að undanfömu hefur það ekki verið. Það hafa verið endurtekin vonbrigði með samgöngurnar. Nú síðast hófust siglingar aftur í höfnina síðdegis föstudaginn 5. nóvember. Þær siglingar stóðu sleitulaust fram á sunnudagsmorgun að aftur varð ófært við aðstæður þegar ekkert vandamál hefði verið að sigla til Þorlákshafnar. Núna kl 17 á sunnu- degi var að koma tilkynning á heimasíðu skipsins um að ekki verði fleiri ferðir í dag. Öldumælingar- duflið hefur ekki virkað frá því á sunnudagsmorgun. Væntanlega er ekki vitað fyrr en sjór gengur niður hvert dýpið er við höfnina og þá hvenær ferðir geta hafist aftur. Næstu daga er spáð NA og A áttum og hvassviðri við suðurströndina þegar fer að líða á miðvikudag. Þeir sem ætla eða þurfa að fara til og frá Eyjum eru í algjörri óvissu um hvemig þeir eiga að ferðast. Það sama gildir um ferðaþjónustuna hvort sem er með flug eða siglingar Herjólfs. Þetta hlýtur að valda fólki verulegum kvíða og óöryggi. Til að bæta gráu ofan á svart er mjög erfitt að fá upplýsingar um hvort farið verður og hvemig ferðum verður háttað hverju sinni. Tilkynningar koma seint, illa eða ekki á heimasíðuna, símar svara engu öðru en hvenær skiptiborðið er opið. Jafnvel hefur komið fyrir að rútubílafyrirtækið hefur ekki fengið að vita um að ferð yrði felld niður fyrr en bíllinn var kominn austur undir Hvolsvöll. Ég legg til að nú þegar verði ákveðið að hætta siglingum í Landeyjahöfn fram í maí. I apríl verði fengið öflugt dýpkunarskip sem grefur vel út úr höfninni og hún gerð í stand til að þjóna sínu hlutverki næsta sumar og vonandi um alla framtíð eftir það. Sú óvissa sem nú er um ferðir til og frá Eyjum er gjörsamlega óásættanleg. Jón Bjarnason skrifar: Sjávarafurðir verða sífellt verðmætari Islenskur sjávarútvegur hefur lyft grettistaki á undanfömum árum í bættri nýtingu afla og aukinni verðmætasköpun úr hverju tonni sem dregið er úr sjó. Þó er þeirri vegferð hvergi lokið og eitt af stefnumiðum mínum sem ráðherra sjávarútvegsmála er einmitt að leggja hér lóð á vogarskálar. Orð eru til alls fyrst og að undan- fömu hafa tvær skýrslur komið út um bætta nýtingu, sú fyrri frá Matís í vor og sú síðari nú á haustdögum á vegum starfshóps ráðuneytisins um bætta nýtingu bolfiskafla þar sem fram koma tímasett markmið til næstu tveggja ára. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum sjávarútvegs- fyrirtækjanna, ráðuneytisins og Matís undir forystu Jóns Eðvalds Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Fisk Seafood. Niðurstaða vinnuhópsins var að hér sé enn verk að vinna og ráðuneytið mun í framhaldi af þessum gögnum hrinda þeirri vinnu af stað með það að markmiði að tryggja bestu mögulegu nýtingu í annars vegar full vinnslu- skipum og hins vegar ís- fiski. Sam- hliða þarf að auka fræðslu og hvetja sjó- menn, land- vinnufólk og útgerðir til a u k i n n a r áherslu á þessu sviði og vinna að tæknilegum úrbótum. Blóðgun og kæling hráefnis er mikilvægur þáttur í meðferð afla um borð og forsenda þess að tryggja megi gæði afurða. Hér þarf auknar rannsóknir sem leiði í ljós hvaða aðferðir henti best m.v. breytilegan sjávarhita og þarfir mismunandi skipa. Hjá ísfiskskipum og í landvinnslu hefur margt áunnist á undanfömum árum en mikilvægt er að fylgja þeim árangri enn betur eftir. Minnkandi afli á undanfömum ámm hefur fært okkur heim sanninn um að auka má virði og atvinnusköpun aflans og þar eigum við enn lönd að vinna. í skýrslu starfshóps um bætta nýtingu bolfisks er meðal annars bent á að skerpa þurfi á reglum varðandi frá- gang á afla, tímamörk, hitastig og aðra meðhöndlun. Sömuleiðis þarf að skerpa á rekjanleika og greinar- betri uppboðslýsingar þurfa að fylgja afla. í fullvinnsluskipum verður meðal annars horft til þess að hausanýting þar er lakari en í landvinnslu. Þegar er hafin vinna sem miðar að tækni- legum breytingum í hausun á hafi úti og um leið er unnið að endur- hönnun á flökunarvél. Hér vil ég einnig tiltaka að Matís, í samvinnu við Landssamtök smá- bátaeigenda, er að vinna hliðstætt verkefni er tekur til þess útgerðar- forms. Sem sjávarútvegsráðherra mun ég beita mér í þessum málaflokki enda liggja miklir möguleikar í bættri nýtingu afla, til virðisauka fyrir samfélagið og aukinnar atvinnusköpunar. Höfundur er sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra Sýnileiki barns í barnaverndar- málum Samningur Sam- einuðu þjóðanna um réttindi bams- ins eða Bamasátt- málinn, eins og hann er yfirleitt kallaður, hefur haft mikil áhrif á lagasetningu, rétt- indi og viðhorf til bama í vestrænum heimi. Hérlendis endurspeglast þetta ekki síst í barnaverndarlög- gjöfinni þar sem börnum er áskilinn réttur til þátttöku og til að tjá skoðanir sínar. Ekki aðeins er réttur bamsins til þátt- töku í eigin málefnum skil- greindur í lögum heldur er þátt- taka bamsins öflugt tæki til lýð- ræðisuppeldis, hún stuðlar að valdeflingu barnsins og sér- fræðingar hafa í auknum mæli viðurkennt að börn hafa hæfni til að fjalla um eigin málefni, þau em sérfræðingar í eigin lífi og sjónarmið þeirra því dýrmætt þeim sem ákvarðanir taka um málefni þeirra. Hins vegar benda rannsóknir, hérlendis sem erlendis, til þess að þessi réttur barnsins sé meira í orði en á borði og að böm fái hvorki nægjanlegar upplýsingar né tækifæri til að taka þátt í eigin málefnum í þeim mæli sem þeim ber samkvæmt íslenskum og alþjóðlegum lögum. Rannsóknin Sýnileiki bamsins í bamavemdarmálum fyrir dóm- stólum á íslandi 2002-2009 er lokaverkefni til meistaragráðu í félagsráðgjöf. Þar var kannað hvemig sjónarmið og hagsmunir bamsins koma fram í þeim mál- um sem þyngst eru í bamavernd- arvinnu hérlendis, þ.e. málum þar sem barnaverndarnefnd telur nauðsynlegt að taka barn af heimili, tímabundið eða til fram- búðar, gegn vilja fjölskyldunnar. Mál þessi koma til úrskurðar hjá dómstólum og vom skoðuð dómsskjöl fyrir tímabilið frá gildistöku núgildandi barna- verndarlaga árið 2002 og út árið 2009. Um var að ræða 65 dóma og úrskurði þar sem fjallað var um vistun bams utan heimilis, ýmist tímabundið 12-12 mánuði eða forsjársviptingar foreldra. Niðurstöðumar sýna að þrátt fyrir að í flestum málanna sé lögð áhersla á hagsmuni og rétt- indi barnsins í málflutningi virðist aðeins í tæpum helmingi mála rætt við börnin og í þriðjungi málanna er fjallað um viðhorf og sjónarmið bamanna á einhvern hátt, þ.e. þau fá endurgjöf á sjónarmið sín. Vís- bendingar eru um að böm njóti sfður tjáningarréttar síns ef þau eru yngri en 12 ára, einkum ef þau eiga ekki eldri systkini. Þó vom tilvik þar sem ekki var rætt „Málsmeðferðar- tíminn fyrir dómi er oft langur og mjög mislangur eða allt frá 7 dögum til 645 daga. Langur máls- meðferðartími eykur líkur á að börn þurfi að fara í endurteknar skammtímavistanir hjá mismunandi vistunaraðilum og má því fullyrða að slíkt sé skaðlegt hagsmunum barnanna.“ við böm sem vom eldri en 12 ára þrátt fyrir að slíkt sé áskilið í barnaverndarlögum. I flestum tilvikum (55 málum af 65) var fallist á kröfur barnaverndar- nefndar í málinu en oftast virðist þó þurfa óháð sérfræðiálit til að staðfesta röksemdir bamavemd- amefndar. Málsmeðferðartíminn fyrir dómi er oft langur og mjög mis- langur eða allt frá 7 dögum til 645 daga. Langur málsmeð- ferðartími eykur líkur á að börn þurfi að fara í endurteknar skammtímavistanir hjá mismun- andi vistunaraðilum og má því fullyrða að slíkt sé skaðlegt hagsmunum barnanna. Þá er ljóst að hlutverk tals- manns bams er mjög óljóst og óskilgreint og ekki trygging fyrir því að sjónarmið barnsins fái að njóta sín þó það hafi talsmann í máli sínu. Bent er á nauðsyn þess að barnaverndarnefndir leggi aukna áherslu á sjónarmið og hagsmuni bamsins á fræði- legan og faglegan hátt 1 málum fyrir dómstólum. Undirrituð fékk leyfi Vest- mannaeyjabæjar til að stunda framhaldsnám í félagsráðgjöf samhliða starfi og færir yfir- mönnum bestu þakkir fyrir. Endurmenntun og sfmenntun starfsmanna ætti að vera sjálf- sagður hluti af starfsskyldum, ekki síst í málaflokki sem er í sífelldri endurskoðun vegna nýrrar þekkingar. Nám eykur víðsýni og stuðlar að starfsgleði auk þeirrar þekkingar sem það færir inn í þjónustukerfin. Guðrún Jónsdóttir yfir- félagsráðgjafi Fjölskyldu- og frœðslusviðs Vestmannaeyja. Guðrún Jónsdóttir Yfirfjölskyldu- ráðgjafi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.