Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Side 19

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Side 19
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember 2010 19 Allt í lagi að vera klikkaður - Bara ef þú veist af því, segir Stefán Sigurjónsson, skósmiður en hægt var að skyggnast bak við tjöldin hjá honum á Skóvinnustofunni á sunnudaginn NÚVERANDI og fyrrverandi afgreiðslufólk. Freyja Stefanía Jónsdóttir, sem í eina tíð starfaði í verslun þar sem Skóvinnustofa Stefáns er nú til húsa, heimsótti Stefáni Sigurjónsson, skósmið á sunnudaginn.. Stefán Sigurjónsson, skósmiður var með opið hús á Skóvinnustofu sinni á horni Skólavegs og Brekastígs. „Bak við tjöldin hjá Skósa“ hét uppákoman en hægt var að skyggnast bak við tjöldin á sunnudaginn. Blaðamaður Frétta leit við um fjögurleytið og það endaði í klukkustundar löngu spjalli um menn og málefni. Skóvinnustofan lætur ekki mikið yfir sér utan frá en bak við tjöldin leynist heill hafsjór af safngripum sem Stefán hefur ekki tímt að henda. Og þar er ekki um að ræða eingöngu blöð eða frímerki, heldur sitt lítið af hverju, allt frá nafnspjöldum til sjóðsvéla fyrirtækisins. Flestir sem litu við þegar blaðamaður var á staðnum stoppuðu helst við tíma- rita- og blaðasafn Stefáns en þar kennir margra grasa. T.d. var þar að finna nokkuð gott safn yfir blöð sem Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur gefið út og í kjölfarið fylgdi auðvit- að skemmtisaga úr starfi sveitar- innar. Stefán er nefnilega ekki ósvipaður og búðin, berst ekki mikið á en þar leynist sannur húmoristi og sagnamaður. „Ég var mjög ánægður með viðtökumar. Það komu um þrjátíu manns til mín og mér fannst það bara passlegt. Annars var þetta bara til gamans gert og aðallega til að sýna hvað ég er klikkaður. Eins og einn sagði við mig, það er allt í lagi að vera klikkaður ef þú veist bara af því,“ sagði Stefán í samtali við Fréttir. Ekki allt til sýnis Þótt Stefán hafi tínt til það helsta úr safni sfnu, sagðist hann hafa gleymt einhverju sem hefði verið gaman að leyfa fólki að sjá. „Ég á til dæmis heila möppu með teikningum af baujuflöggum sem við saumuðum mikið hér áður fyrr fyrir netabátana. Þá vom líklega einir 70 netabátar gerðir út frá Eyjum og hver og einn hafði sinn lit. Én þeir em víst ekki mjög margir netabátamir í dag.“ Hvað var það helst sem fólk staldr- aði við? „Það voru margir sem skoðuðu pappírana þegar lóðin undir húsið var keypt. Einar rfki keypti þessa lóð og ég var með ljósrit af lóðar- leigusamningnum, byggingarleyfinu og einhverju fleiru. Freyja á Ný- lendu vann héma í búðinni við að vigta sykur og við önnur búðarstörf eins og þau vom áður fyrr. Hún kom auðvitað við á sunnudaginn og sagði mér frá því að hér hafi hún skrifað ástarbréf til hans Jóhanns síns. Þetta var víst þannig að hún var í bréfaskriftum við annan mann sem síðan fékk sér kærustu og nennti ekki lengur að skrifast á við Freyju. Jóhann lauk hins vegar bréfinu og bauðst til að koma í hans stað. Það var gaman að heyra þessa sögu héma inni,“ sagði Stefán. Skóvinnustofan er þó ekki alfarið laus við að gestir skyggnist bak við tjöldin því einu sinni í viku hittist hópur manna hjá Stefáni þar sem farið er yfir þjóðmálin. „Við fund- um alltaf einu sinn í viku, á föstu- dögum. Hér eru m.a. útvarps- stjórinn, organistinn og fleiri góðir og mikið spjallað." Skóvinnustofa Stefáns hefur verið starfrækt í 35 ár en Stefán flutti hingað til Eyja 1975. „Ég hafði verið í einhverja tvo mánuði á Selfossi en þar voru tveir aðrir fyrir og ekki mikið að gera. Eyjamenn voru vanir að hafa skósmið hjá sér en eftir gos var enginn skósmiður í Eyjum. Því voru móttökurnar sem ég fékk höfðinglegar. Ein konan sagði við mig eftir að ég opnaði, að nú væri allt orðið eins og það var fyrir gos. NÝJASTA TÍSKAN? Ester Fríða Ágústsdóttir var ein þeirra sem heimsóttu Skósa á sunnudaginn. Hér hefur hún fundið skófatnað sem hugsaidega er aftur orðinn að tískuvöru. MARGT AÐ SKOÐA. Stefán hafði hengt upp ýmsar myndir og annan fróðleik á veggi Skóvinnustofunnar. MERKILEGAR HEIMILDIR? Vilhelm G. Kristinsson, Kristmann Kristmannsson og Jakobína Guðfinns- dóttir sokkin í lesefnið við búðarborðið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.