Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Síða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Síða 21
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember 2010 21 Söngvagleði um Safnahelgina Tónlistarunnendur í Eyjum fengu mikið fyrir lítið um síðustu helgi þegar Safnahelgi var haldin um allt Suðurland. Tónlistarveislan hófst strax á fimmtudaginn með Eyja- kvöldi á Kaffi Kró. Eyjakvöldin hófust síðasta vetur og eru fyrsta fimmtudag hvers mánaðar en nú er svo komið að húsnæðið er að verða fullþröngt um þessa skemmtilegu uppákomu. Á fimmtudaginn var fullt út að dyrum og stemmningin eftir því hjá Obbo-Síí og gestum þeirra en textum laganna er varpað upp á skjá þannig að allir geta sungið með. Við formlega setningu Safnahelgarinnar í Stafkirkjunni léku svo þeir Gísli Helgason og Hafsteinn G. Guðfmnsson á blokkflautu og gítar en þeir félagar áttu eftir að troða upp aftur síðar um helgina. Það gerðist á laugar- daginn þegar Föruneyti Gísla Helgasonar tróð upp í Kiwanis en þar var búið að skapa skemmtilega kaffihúsastemmningu. Föruneytið lék lög úr öllum áttum við góðar undirtektir viðstaddra. f Vinaminni tróð Hippabandið svo upp og Jógvan og Vignir Snær voru svo á Volcano. Semsagt, helgarveisla fyrir tóneyra Eyjamanna. FÖRUNEYTI Gísla Helgasonar stóð fyrir sínu í Kiwanis en þar var kaffihúsastemmning. ÍBk | f V 1 17T n U -'--A Pflj g'. & /n ff, k frr-:"’TÉi ALLTAF FULLT. Eyjakvöldin á Kaffí Kró þar sem Obbó-Síí spilar Eyjalögin hafa slegið í gegnn og eru alltaf vel sótt. SJARMÖR. Færeyingurinn Jógvan Hansen lék á Volcano. NOTALEGT. Setning Safnahelgarinnar fór fram í Stafkirkjunni en þar léku þeir Hafsteinn Guðfínnsson og Gísli Helgason. A Hláturinn lengir lífið í Höllinni: Útvarpsmaðurinn Freyr fór á kostum - en allir voru þeir góðir grínistarnir. - Aðeins um 200 manns sáu frábæra skemmtun Á laugardaginn mættu nokkrir af bestu grínurum landsins til Eyja og tróðu upp á uppákomunni „Hláturinn lengir lífið“. Þetta voru þeir Laddi, Þorsteinn Guðmundsson, Freyr Eyjólfsson og Bergur Ebbi sem tróðu upp. Sigurvegari kvöldsins var að flestra mati útvarpsmaðurinn Freyr. Bergur Ebbi byrjaði kvöldið og byrjaði með látum. Aldursbil þeirra sem á hlýddu var líklega martröð uppistandara, fólk á öllum aldri, táningar og ellilífeyrisþegar og allt þar á milli. Engu að síður tókst þeim öllum að ná til áhorfenda. Fyrirfram hefði mátt ætla að Bergur Ebbi væri frekar fyrir yngri kynslóðina en þeir eldri voru ekki síður ánægðir með hann. Þorsteinn Guðmundsson var næstur á svið. Þorsteinn er að margra mati fyndnasti maður Islands og átti fína spretti. Eins og áður sagði var Freyr senuþjófurinn. Freyr er útvarpsmaður á Rás 2 og líklega þekktari sem slíkur en sem gnnari. Hann reytti hins vegar af sér brand- arana, gerði góðlátlegt grín að sjálf- um sér og öðrum reyndar líka en allt innan skynsamlegra marka. Þannig að ef útvarpsferlinum lýkur skyndi- lega, þá á Freyr möguleika á að troða upp sem grínisti. Laddi kom svo síðastur upp og gaf hinum yngri grínurum ekkert eftir. Laddi er auðvitað einn ástsælasti grínisti landsins en hann sýndi það á laug- ardaginn að hann er enn á fullu í þessum bransa og er ófeiminn við að endumýja sjálfan sig. I heildina var kvöldið bráðskemmtilegt en um 200 manns sóttu uppákomuna. SKEMMTILEGIR SKEMMTIKRAFTAR. Frá vinstri: Laddi, Bergur Ebbi, Þorsteinn Guðmundsson og Freyr Eyjólfsson. FYNDINN ÚTVARPSMAÐUR. Freyr Eyjólfsson er orðinn einn af betri grínistum landsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.