Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Side 24

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Side 24
[FRÉTTIRl plús & mM iua UlVJ30Ðf£YJUlVþ Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 fttúnnniii £jjjjJuuuéBUjj 3 VÍsjbjjJ&jJJjjJ/J3Lb BERTHA með börnin tvö, Bjarteyju Bríeti og Nökkva. Salka, glæsileg ný tískuverslun Ný og glæsileg tískuverslun var opnuð í miðbæ Vestmannaeyja á föstudag. Salka er til húsa við Bárustíg 9 en Smartmedia var þar síðast til húsa. Það eru hjónin Bertha I. Johansen og Elliði Vignisson sem eiga verslunina en þegar blaðamann bar að garði á föstudag, var fullt út að dyrum í Sölku. Verslunarrýmið hefur tekið gríðar- legum breytingum en búið er að sameina tvö rými í eitt auk annarra breytinga innandyra. Verslunin er góð viðbót við fjölbreytta flóru fataverslana í Eyjum en fá bæjar- félög hafa jafn fjölbreytt úrval af fatabúðum og Vestmannaeyjar. Fatnaðurinn sem er á boðstólum er glæsilegur en í Sölku má finna föt á bæði karla og konur. Bertha sagði í samtali við blaða- mann að það hafi ekki tekið svo langan tíma að standsetja búðina, miðað við það mikla verk sem að baki væri. „Þetta tók kannski tvo mánuði en ég er mjög sátt með út- komuna. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta hefur gengið vel, bæði að fá iðnaðarmenn og fjölskyldu og alla til að hjálpa manni.“ Hvaða vörur ertu með í búðinni? „Ég er með alls konar vörur, bæði fyrir dömur og herra en mér finnst svolítið erfitt að segja til um það fyrir hvaða aldur fötin eru. En ég myndi segja svona 16 til svona 35 til 40 en ég get varla tengt föt við aldur. Eigum við ekki bara að segja að það geta allir á fullorðinsárum fundið eitthvað við sitt hæfi héma.“ Nafnið Salka sækir Bertha úr bók- menntunum en Bertha er ís- lenskukennari við Framhalds- skólann í Vestmannaeyjum. „Ég sæki auðvitað í minn grunn, ís- lensku og bókmenntagrunninn. Þetta er persóna í samnefndri bók Halldórs Laxness, Salka Valka. Salka bjó í sjávarplássi eins og Vestmannaeyjum, stundaði sjóinn, varði sitt pláss og var hörkudugleg. Þetta er töff kona í okkar bókmennt- um og þær eru víða til, m.a. í þessu bæjarfélagi.“ Nú ert þú, kennarinn, búin að vera bak við búðarborðið. Hvað með hinn eigandann, bæjarstjórann? Verður hann við afgreiðslustörf í Sölku? „Nei, hann vill ekki sjá það,“ svaraði Bertha hlæjandi. „Hann segir að þetta sé alfarið mitt bam.“ Notum orðið já eins oft Jákvæð vika stendur nú yfir í stofn- unum Vestmannaeyjabæjar og em það starfsmenn Gmnnskóla Vest- mannaeyja sem standa fyrir átakinu. „Við emm að vinna að jákvæðum samskiptum innan skólans og lang- aði til að fá samfélagið í það með okkur“ sagði Dóra Björk, verkefnis- stjóri í samskiptum við GRV þegar hún var spurð út í vikuna. „Ég er með tengiliði í öllum stofn- unum og er dagskrá fyrir hvem dag. Fólst til dæmis verkefni dagsins í því að búa til orðatiltæki eða máls- hátt þar sem orðin já og Vest- mannaeyjar koma fyrir og er starfs- fólkið á Kirkjugerði búið að búa til ljóð í tilefni dagsins. Við bjóðum starfsmönnum að sækja jógatíma, gegn vægu gjaldi og höfum fengið tilboð frá kaffi- og veitingahúsum hér í bæ, en þetta er allt gert til að brjóta upp, skapa skemmtilegt við- mót og andrúmsloft á vinnu- og hægt er stöðunum. Þetta hefur gengið mjög vel í skólanum og verið mjög gaman og hef ég heyrt að það sé mikið fjör í öðmm stofnunum og að starfsfólk- ið sé að reyna að nota orðið já eins oft og hægt er. Við ætlum að ljúka jákvæðu vikunni á föstudaginn en þá ætlar Vestmannaeyjabær að bjóða öllum bæjarbúum frítt í sund,“ sagði Dóra Björk og auðvitað ætla allir að vera jákvæðir áfram eftir helgi. Landeyja- höfn lokað? Samkvæmt heimildum Frétta hafa skipstjórar á Herjólfi, í samráði við Eimskip, lagt til að Landeyja- höfn verði lokað þar til aðstæður lagast. Fundur um tillöguna var haldinn með fulltrúum Siglingastofnunar í gær, miðvikudag, en niðurstaða fundarins lá ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. Dýpi í hafn- armynni minnkaði um tvo metra á einum sólarhring í vikubyrjun en dýpkunarskipið Perla byrjaði að dæla í gær. Á háfjöru er aðeins tæpur metri frá skipsbotni og niður í sjávarbotn og telja skip- stjórar Herjólfs varhugavert að sigla inn í höfnina við þær aðstæður. UNIFEM kemur til Eyja UNIFEM verður með skemmti- og fræðslukvöld á kaffihúsinu Vina- minni, þriðjudaginn 16. nóvember kl. 20.00. Inga Dóra Pétursdóttir, fram- kvæmdastýra UNIFEM á fslandi, mun halda kynningu um UNIFEM sem miðar að því að breyta lífi kvenna og bama um allan heim til hins betra sem og auknu jafnrétti. „Við höfum fengið til liðs við okkur frábært fólk úr Eyjum til þess að gera kvöldið enn betra. fris Róbertsdóttir, kennari, verður kynn- ir kvöldsins, Sólveig Unnur, söngkona, mun flytja nokkur lög á gríska vísu og hin upprennandi hljómsveit VangaVeltur ætlar að spila fyrir okkur. Einnig verður spennandi happdrætti með frá- bærum vinningum og kostar miðinn aðeins 700 krónur. Kaffihúsið Vinaminni verður með frábær tilboð SÓLVEIG Unnur söngkona mun flytja nokkur lög á gríska vísu. á kaffi, kleinum og gómsætum kökum. Það eru allir velkomnir og ókeypis aðgangur," sagði Hanna Eiríksdóttir, verkefnisstjóri UNI- FEM á íslandi og hvetur alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi UNIFEM til að mæta. VIKUTILBOÐ 11. -17. nóvember — 0PNUNARTÍMI: Món. - Föst. kl. 7.30 - 19.00 Laugordaga kl.10.00 -19.00 Sunnudaga kl.11.00 -19.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.