Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Síða 7
Afleiðingar
fyrningar blasa
við Eyjamönnum
Ný reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um makríl er fyrirboði þess sem koma skal þegar stjórnvöld
kynna hugmyndir sinar um að leggja af f iskveiðistjórnarkerfið (núverandi mynd. Frumkvöðlar
makrdveiða hár við land fá ekki að njóta afraksturs erfiðis slns með því að fá hlutdeild í aukningu
heildarkvótans. Aflaheimildir eru í raun hirtar af Eyjamönnum og færðar öðrum á silfurfati (anda
fyrningarinnar, pólitísks leiðarljóss þeírra afla sem ráða ferðinni í Stjórnarráði Islands. Ofan á allt
saman grípa stjórnvöld nú inn í sjálfa vinnslu makrílsins með valdboði. Reglugerðarsmiðir við
Skúlagötu í Reykjavík eru ekki hógværari í hugsun en svo að þeir telja sig bæði geta haft vit fyrir
neytendum og þeim fyrirtækjum sem árum saman hafa varið ómældum tíma og miklum fjármunum í
að þróa veiðar, vinnslu og markaðssetningu makríls, án þess að skriffinnar opinberrar stjórnsýslu
kæmu þarviðsögu.
Hver er samfélagsleg ábyrgð stjórnvalda sem þannig koma fram við fólk og fyrirtæki í mikilvægustu
atvinnugrein landsmanna? Hér er hvorki spurt um sanngirni, réttlæti né virðingu.
Sjávarútvegsfyrirtækin í Eyjum hafa staðið af sér af labresti af ýmsum náttúrulegum ástæðum,
mikla skerðingu aflaheimilda, bankahrun ogjafnvel eldgos en nöturlegt er að standa nú frammi fyrir
ógn af mannavöldum: yfirlýstri stefnu stjórnarflokkanna um sérhannaða skattlagningu og innköllun
aflaheimilda. Þetta heitir á mannamáli að atvinnugreinin verði ríkisvædd.
Makrílmélið er einungis forsmekkurinn. Við höfum ríka ástæðu til að óttast um árangurinn af nær
sjö áratuga uppbyggingarstarfi Vinnslustöðvarinnar og fleiri fyrirtækja sem eru burðarásar (
samfélögum sínum.
Milljarðar króna ■■■ RekstrartekjurVSV —m Fjöldi stöðugilda Fjöldi
Tekjumar aukast og starfsmönnum fjölgar ár frá ári. Skýrara getur hún ekki verið mgndin af áhrifum
stöndugs sjávarútvegsfyrirtækis I byggðarlaginu slnu!
Meiri tekjur, fleiri starfsmenn
Vinnslustöðin er í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Rekstrartekjur félagsins námu tæp-
um 11 milljörðum króna á árið 2010 og hafa tæplega fimmfaldast síðan 2000. Vinnslustöðin á oggerir
út alls tíu skip til uppsjávarveiða, togveiða og netaveiða. Fyrirtækið stundar vinnslu uppsjávarfisks,
saltfiskverkun, humarfrystingu og bolfiskvinnslu, auk þess að reka fiskimjölsverksmiðju.
Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar eru nú yfir 300 talsins og þeim hefur fjölgað um 70 á aðeins einu ári!
Fyrirtækið greiddi um 2,2 milljarða króna (laun á árinu 2010.
Virðing • Sjálfbærni • Veiferð
Gildi stjórnenda og starfsmanna Vinnslustöðvarinnar eru að hafa virðingu, sjálfbærni og sanngirni að
leiðarljósi (starfseminni til að skapa félaginu og samfélaginu velferð og farsæld. Það gerist meðal
annarsmeð þvíað
• umgangast ognýta auðlindir hafsins með virðingu ogskynsamlegri sókn.
• stjórna ferli veiða, vinnslu og markaðsmála allt til neytandans þannig að saman fari kröfur um gæði,
ábyrgð og afrakstur (starfseminni.
• stuðla að sjálfbærni auðlinda ogsamfélags, styrkja innviði byggðarlags s(ns og velferð þjóðarinnar
allrar.
• leitast við að láta gagnkvæma sanngirni ríkja (samskiptum, jafnt inn á við sem út á við.
• stuðla að arðsömum rekstri svo að menn njóti ávöxtunar af vinnuframlagi s(nu og skapi um leið
forsendur þess að félagið fái staðið undir samfélagslegri ábyrgð sinni.
• bera virðingu hvert fyrir öðru og fyrir þeim sem starfa í sjávarútvegi, fyrir starfsmönnum í
þjónustu- og viðskiptagreinum sjávarútvegs og neytendum sjávarfangs.
• leitast æt(ð við að tryggja að vörumerkið VSV sé öruggt tákn um góðar og hollar afurðir og ábyrgan,
sjálfbæran reksturgagnvart náttúru ogsamfélagi.
Vinnsiustöðin 1946-2011
Vinnslustöðin dafnar og styrkist ár frá ári og á sinn þátt í kröftugu
atvinnulíf i Vestmannaeyja. Traust fyrirtæki eru undirstöður byggðarlaga
sinna og án blómlegrar byggðar fá fyrirtæki illa þrifist.
Fólki hefur fölgað (Eyjum og þar vantar fleiri vinnufúsar hendur á sama
tíma og atvinnu skortir v(ða um land.
Við birtum hér ágrip af 67 ára sögu Vinnslustöðvarinnar til þess að sýna
iðdraganda þess að félagið er það sem það er! Áratugi hefur tekið að gera
Vinnslustöðina að sterku og öf lugu fyrirtæki, traustum bakhjarli
byggðarlags síns. Stöldrum sérstaklega við árið 1992 þegar nokkur félög
voru sameinuð í eitt að kröfu viðskiptabanka sinna vegna þess að fæst
þeirra stóðu undir áhvílandi skuldum. Stöldrum líka við árið 1999 þegar
fyrirtækið var í raun komið á hliðina en það tókst að reisa það við með
sameinuðu átaki eigenda, stjórnenda og starf sfólks.
Við viljum að slíkir erfiðleikar heyri sögunni til. Rekstur
Vinnslustöðvarinnargekk vel á árinu2010 oggengur vel nú. Samt berum
við berum ugg í brjósti vegna framtíðarinnar og óttumst að yf irvofandi
stjórnvaldsákvarðanir setji strik í reikning okkar og sjávarútvegsins sem
atvinnugreinar. Sporin hræða, nú síðast skipting makrílkvótans.
• 30.desemberl946:Vinnslu-og
sölumiðstöð fiskframleiðenda stofnuð í
Vestmannaeyjum. Stofnendur eru 105
útvegsmenn í Eyjum sem sameinast um
fiskvinnslu til hagsbóta fyrir sigog
byggðarlagið.
• l952:Nafnifélagsinsbreytt(
Vinnslustöðin
• 1989: Vinnslustöðin eignast að fullu
Lif rarsamlag Vestmannaeyja.
• 1992: Fiskiðjan, Fiskimjölsverk-
smiðjan FIVE, Lifrarsamlagið,
Gunnar Úlafsson & Co, Knörr og
Vinnslustöðin sameinast undir nafni
Vinnslustöðvarinnar.
• 1996: Meitillinn hf. í Þorlákshöfn og
Vinnslustöðin sameinast undir nafni
Vinnslustöðvarinnar.
• 1997: Vinnslustöðinsameinast
útgerðarfélaginu Immanúel ehf.
• l999:FjöldastarfsmannaVinnslu-
stöðvarinnar sagt upp störfum vegna
viðvarandi rekstrarerfiðleika. (byrjun
september mæta einungis 150 manns til
vinnu hjá fyrirtækinu, helmingi færri en
höfðu verið á launaskrá fyrr á árinu.
• 1999: Vinnslustöðin selur Frostfiski hf.
hús og tæki I Þorlákshöfn og eignast
40% hlut (þv( félagi.
• 2000:Gand(ehf.ogVinnslustöðin
sameinast undir nafni Vinnslu-
stöðvarinnar.
• 2001:Vinnslustöðinkaupir Jón
Erlingsson ehf. I Sandgerði og sameinar
félögin.
• 2002: Vinnslustöðin kaupir 50% í
útgerðarfyrirtækinu Úndlnu ehf. sem
sameinast slðar Vinnslustöðinni.
• 2002: Félag (meirihlutaeigu Eyjamanna
kaupir eignarhluti Kers hf., aðaleiganda
Ollufélagsins ehf., aðaleigenda Kers
ogSamvinnullfeyrissjóðsins
ÍVinnslustöðinni.
• 2003: Ráðamenn Vinnslustöðvarinnar
og ísleifs ehf. sameina félögin undir
nafni Vinnslustöðvarinnar.
• 2005: Vinnslustöðin selur hlut sinn í
Frostfiski hf. (Þorlákshöfn.
• 2005: Vinnslustöðin kaupir 48% hlut í
Hugin ehf.
• 2008: Vinnslustöðin kaupir 35% hlut (
Ufsabergi hf.
• 2011: Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar
orðnir yfir 300, meira en tvöfalt fleiri
en voru á launaskrá haustið 1999
eftir fjöldauppsagnir vegna
rekstrarerfiðleika félagsins.