Fréttir - Eyjafréttir - 31.03.2011, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 31. mars 2011
15
Staða Fasteignar er gríðarlega erFið - Álftanes og HR þungur baggi:
Lánardrottnar geta einhliða gjald-
fellt félagið og sett það í þrot
-Fari eiginfjárstaða undir það sem skilyrði lánasamninga heimila
-Sveitarfélög skaðast þá bæði sem eigendur að félaginu og leigjendur
BARNASKÓLINN er meðal fasteigna í Vestmannaeyjum sem Fasteign á.
Vándinn ekki auðleystur
-En verð þeirri stundu fegnastur ef og þegar við losnum út, segir bæjarstjóri -
Fasteign hefur greitt 240 milljónir fyrir hönnun ráðhúss í Reykjanesbæ og
höfuðstöðvar HS Orku þrátt fyrir að hvorug byggingin hafi nokkurn tíma risið
„Ég er nú svo heppinn að vera
bjartsýnn að eðlisfari en vandinn er
ekki auðleystur.," sagði Elliði
þegar hann var spurður hvort hann
væri bjartsýnn á lausn í málum
Fasteignar.
„Auðvitað verðum við að sýna því
skilning þegar kröfuhafar benda á
að sveitarfélögin hafi nýtt sér það
góða sem fólst í starfsemi Fast-
eignar á uppgangsárunum en vilji
nú losna út úr félagsskapnum án
þess að taka á sig hluta þeirra
skuldbindinga sem félagið bætti
við sig á starfstíma sínum.
Kröfuhafar benda eðlilega á að
öllum hefði mátt ljóst vera að
góðærið myndi ekki vara um
ókomna tíð og að áhættan væri
mikil.
Mat kröfuhafa er að verði sú leið
sem samninganefnd Fasteignar
leggur til farin muni það þýða að
Islandsbanki þurfi að taka á sig
milljarða tap. Það tap er alltaf að
aukast. I janúar síðastliðnum var
Fasteign til að mynda dæmt til að
greiða arkitektastofu sem átti að
hanna ráðhús fyrir Reykjanesbæ og
höfuðstöðvar HS Orku 121 milljón
króna vegna undirbúningsvinnu,
þrátt fyrir að hvorug byggingin hafi
nokkurn tíma risið. Fasteign hafði
áður greitt 1 18 milljónir króna
vegna verksins. Ég vildi svo sem
aldrei inn í þennan félagsskap og
verði þeirri stundu fegnastur ef og
þegar við losnum út. Við hjá
Vestmannaeyjabæ munum áfram
vinna að lausn þessa vanda og
reyna að gæta hagsmuna bæjarbúa
hér,“ sagði Elliði að lokum.
Vestmannaeyjabær hefur, ásamt
öðrum sveitarfélögum sem standa
að Fasteign, lýst vilja til að ís-
landsbanki og skilanefnd Glitnis
taki á sig þær skuldbindingar sem
félagið stofnaði til vegna byggingar
á húsi Háskólans í Reykjavík (HR)
og sundlaugar á Alftanesi. Sveitar-
félögin vilja líka að skuldir vegna
eigna sem þau leigja af Fasteign
verði lækkaðar og að þau yfirtaki
eignimar á ný. Til að ná fram þessu
markmiði hafa sveitarfélögin skipað
samninganefnd sem í sitja þrír
stjómarmenn Fasteignar auk lög-
mannsins Lárusar Blöndal. Einn af
þessum þremur stjómarmönnum er
Gunnlaugur Grettisson, forseti
bæjarstjómar.
Nefndin á sem stendur í viðræðum
við skilanefnd Glitnis og íslands-
banka um hvernig eigi að leysa
gríðarleg vandamál Fasteignar sem
stendur tæpt. Mjög mikilvægt er að
lausn finnist sem allra fyrst, annars
getur það leitt til þess að eigið fé
Fasteignar fari undir það sem skil-
yrði lánasamninga félagsins um eig-
infjárstöðu heimila. Ef það gerist
geta lánardrottnar Fasteignar ein-
hliða gjaldfellt félagið og sett það í
þrot.
Fastir í ólánssamningi
„Fram hefur komið að búist sé við
niðurstöðu í málinu innan mán-
aðar,“ sagði Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri, þegar hann var spurður um
framhaldið. „Auðvitað ráðum við
sveitarfélögin þessu ekki ein enda er
félagið til dæmis einnig í eigu
Miðengis, dótturfélags íslands-
banka. Þegar við gengum í félagið á
sínum tíma vom afar skiptar skoð-
anir hér í Vestmannaeyjum um
ákvörðunina. Eins og mörgum er í
fersku minni vöruðum við sjálf-
stæðismenn, sem þá vomm í minni-
hluta, mjög við þessu en V- listinn
vildi slá til. I framhaldi af því keypti
Fasteign fasteignir af okkur Eyja-
mönnum og öðrum sveitarfélögum
og leigði okkur þær síðan aftur með
30 ára leigusamningi.
Til viðbótar var svo ráðist í
stórtækar framkvæmdir á vegum
Fasteignar sem hafa verið afar
kostnaðarsamar. I einni af ræðum
mínum í bæjarstjóm dró ég upp afar
dökka mynd af því sem gerst gæti.
Ég, eins og aðrir fulltrúar Sjálf-
stæðismanna, varaði við því að
áhættan væri í raun gengisáhætta og
dramatískt fall gengisins gæti ger-
breytt leigusamningum án þess að
við gætum nokkuð að gert. Ég gerði
einnig athugasemdir við hversu föst
við værum í þessum ólánssamn-
ingum og fleira. Því miður reyndist
ég sannspár. Það er í raun kald-
hæðni örlaganna að sitja nú uppi
með vandann sem maður varaði
mjög við á sínum tíma,“ sagði
Elliði.
Mikil óvissa
Samkvæmt síðasta birta ársreikningi
Fasteignar leikur vafi á rekstrarhæfi
félagsins og gerðu endurskoðendur
fyrirvara við undirritun hans. „Þar
skiptir mestu óvissa um fram-
tíðareignarhald á nýbyggingu HR
og lóðar undir óbyggðar höfuð-
stöðvar Glitnis. Bókfært virði ný-
byggingar HR var þá um 13,2 millj-
arðar króna en óbyggðu höfuðstöðv-
amar voru sagðar þriggja milljarða
króna virði. Mjög mikilvægt er að
það finnist lausn á þessum málum
sem allra fyrst, annars getur það leitt
til þess að eigið fé Fasteignar fari
undir það sem skilyrði lánasamn-
inga félagsins um eiginfjárstöðu
heimila. Ef það gerist geta lánar-
drottnar Fasteignar einhliða gjald-
fellt félagið og sett það í þrot, kjósi
þeir svo. Þá sitjum við uppi sem
leigjendur hjá kröfuhöfum og
höfum tapað öllu hlutafé í félaginu.
Allt tal um afslætti af leigu væri þá
væntanlega fyrir borð borið og áhrif
á stjómun og eignarhald ekkert á
fasteignum eins og Kirkjugerði,
Bamaskólanum, Sóla og Hamars-
skóla.“
Leigutekjur í evrum
Elliði segir stjómarsetu Vestmanna-
eyinga og annarra leigjenda hafi
skipt miklu. „Eins og allir þekkja
eru leigutekjur í evmm og hækkaði
leigan því mikið þegar krónan
hrundi haustið 2008. Vegna þessa
tók stjóm Fasteignar, sem að mestu
er skipuð fulltrúum sveitarfélaga
sem jafnfaramt eru leigjendur,
ákvörðun um að lækka leiguna um
tæp 30% á árinu 2009. Lækkunin
var síðar framlengd en átti að renna
út um síðustu áramót. Þegar kom að
því að leigan átti að hækka tók
stjóm Fasteignar þá ákvörðun að
fella hækkunina úr gildi. Kröfu-
höfum Fasteignar var tilkynnt um
þessa ákvörðun skriflega. Það þarf
ekki mikla spádómsgáfu til að skilja
að hún hefur vakið litla hrifningu
þeirra, enda miðast leigutekjur
Fasteignar við endurgreiðslur lána
félagsins,“ sagði Elliði og staðan er
alvarleg.
„Ef leigan er ekki greidd er ekki
hægt að standa skil af lánum. Til að
bæta gráu ofan á svart hefur
Álftanes ekki greitt leigu vegna
íþróttahúss og sundlaugar, sem Fast-
eign byggði fyrir sveitarfélagið,
síðan í september 2009. Þá hafði
sundlaugin verið opin í þrjá mánuði.
Álftanes skuldar Fasteign hátt í 200
milljónir króna vegna þessa en
Fasteign skuldaði 256 milljarða
króna í lok árs 2009. Við emm eig-
endur og berum sem slíkir ábyrgð.
Það er óþarfi að draga fjöður yfir
það að staða Fasteignar er sem sagt
gríðarlega erfið. Þá er það einnig
hverjum degi ljósara að tjón okkar
sveitarfélaganna er tvöfalt vegna
þess að við bíðum bæði tjón sem
eigendur að félaginu og leigjendur.
Til að mæta þessum skaða getum
við ekkert gert annað en að hagræða
og mörg þessara sveitarfélaga hafa
þann einn kost að skera niður
þjónustu.“
Álftanes svarti péturinn
Elliði sagði að miðað við umfjöllun
í fjölmiðlum seinustu daga bendi
ýmislegt til þess að eitthvað sé að
þokast í málefnum Fasteignar.
„Hún bendir til þess að Islandsbanki
sé mögulega tilbúinn til að taka við
HR og lánum sem fylgdu byggingu
hans. Sá eignarhluti færi þá til dótt-
urfélags bankans, Miðengis, sem
heldur á 38,2% hlut bankans í Fast-
eign. Bankinn ku hins vegar vera
tregari til að taka á sig þær skuldir
sem stofnað var til vegna byggingar
mannvirkja á Álftanesi, enda ekki
verið að greiða af þeim og ófyrirséð
að það verði gert. Það er í raun og
vem svarti péturinn í þessu. Manni
rennur í raun kalt vatn milli skins og
hömnds, vitandi það að við Vest-
mannaeyingar erum í raun eigendur
að sundlaug á Álftanesi, húnsæði
Háskólans í Reykjavík og óbyggð-
um höfuðstöðvum Glitnis.“
Ertu bjartsýnn á lausn ?
„Ég er nú svo heppinn að vera bjart-
sýn að eðlisfari en vandinn er ekki
auðleystur. Auðvitað verðum við að
sýna því skilning þegar kröfuhafar
benda á að sveitarfélögin hafi nýtt
sér það góða sem fólst í starfsemi
Fasteignar á uppgangsárunum en
vilji nú losna út úr félagsskapnum
án þess að taka á sig hluta þeirra
skuldbindinga sem félagið bætti við
sig á starfstíma sínum. Kröfuhafar
benda eðlilega á að öllum hefði mátt
Ijóst vera að góðærið myndi ekki
vara um ókomna tíð og að áhættan
væri mikil. Mat kröfuhafa er að
verði sú leið sem samninganefnd
Fasteignar leggur til farin muni það
þýða að Islandsbanki þurfi að taka á
sig milljarða tap. Það tap er alltaf að
aukast. I janúar síðastliðnum var
Fasteign til að mynda dæmd til að
greiða arkitektastofu sem átti að
hanna ráðhús fyrir Reykjanesbæ og
höfuðstöðvar HS Orku 121 milljón
króna vegna undirbúningsvinnu,
þrátt fyrir að hvorug byggingin hafi
nokkum tíma risið. Fasteign hafði
áður greitt 118 milljónir króna
vegna verksins. Ég vildi svo sem
aldrei inn í þennan félagsskap fara
og verð þeirri stundu fegnastur ef og
þegar við losnum út. Við hjá Vest-
mannaeyjabæ munum áfram vinna
að lausn þessa vanda og reyna að
gæta hagsmuna bæjarbúa hér,“
sagði Elliði að lokum.
Umhverfis og skipu-
lagsráð:
Yfirbygg-
ing sam-
þykkt
Umhverfis- og skipulagsráð hefur
samþykkt byggingarleyfi fyrir
yfirþyggingu á stóra sviðinu í
Herjólfsdal sem lá fyrir síðasta
fundi ráðsins.
Það var Tryggvi Már Sæmunds-
son, f.h. ÍBV-Iþróttafélags, sem
sótti um leyfið og lagði fram
teikningu Sigurjóns Pálssonar.
Ráðið samþykkti erindið þar sem
uppdrættir eru í samræmi við
ákvæði byggingarreglugerðar.
Allar framkvæmdir við mann-
virkið skulu vera í samræmi við
deiliskipulag svæðisins, mann-
virkjalög og byggingarreglugerð.
Ráðið ítrekar samkomulag varð-
andi endanleg verklok fram-
kvæmda.
Sækja um
lóðir o.fl.
Sigurjón Ingvarsson sækir um
byggingarlóð við Vesturveg 13 A .
Ráðið samþykkti að úthluta lóð
sbr. ákvæði deiliskipulags mið-
bæjar frá 2005. Umsækjandi skal
skila fullnægjandi teikningum
fyrir 1. okt. 2011.
Snorri Jónsson, f.h. Ribsafari,
ehf. sækir um leyfi fyrir auglýs-
ingaskilti á norðurgafl Bása -
Básaskersbryggju 2 til 5, sbr.
innsend gögn.
Þórarinn Ólason Boðaslóð 13
óskar eftir að endumýja bygging-
arleyfi l'yrir viðbyggingu austan
við íbúðarhús, sbr. innsend gögn.
Umsóknin var samþykkt af bygg-
ingafulltrúa þann 21.3.2011.
Parhúsa-
lóðir við
Kleifahraun
Fyrir umhverfis og skipulagsráði
lá umsókn frá Guðjóni Engil-
bertssyni, f.h. GE verk sf., um
parhúsalóðir í Kleifahrauni. GE
verk sf. hyggst byggja sex parhús
í þremur áföngum ætluð fyrir 60
ára og eldri.
Ráðið frestaði afgreiðslu erindis
og fól skipulags- og bygginga-
fulltrúa að vinna tillögu að
deiliskipulagi svæðisins. Erindið
verður tekið fyrir að nýju þegar
samþykkl deiliskipulag liggur
fyrir.
Gosloka-
hátíð 2011
Á fundi frðæðslu- og menningar-
ráðs var umræða urn framkvæmd
goslokahátíðar 2011.
Ræddur var undirbúningur og
framkvæmd komandi goslokahá-
tíðar. Ráðið leggur ríka áherslu á
að á goslokahátíð verði lögð mikil
áhersla á fjölbreytni og að höfðað
verði jafnt til allra aldurshópa.
Menningarfulltrúa var falið að
ræða við aðila til að koma að
hugmyndavinnu við undirbúning
á goslokahátíðinni.