Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 1
Bílaverkstæði - Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð -Sími 481 3235 Réttingar og sprautun - Sími 48 1 1535 38. árg. I 44. tbl. I Vestmannaeyjum 3. nóvember 2011 I Verð kr. 350 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is SVEINN Halldórsson, fyrrum sjómaður og starfsmaður hafnarinnar, fékk hlýjar móttökur þegar hann kom að skoða varðskipið Þór sem kom til Vestmannaeyja í síðustu viku. Hér heilsast hann og Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra, sem á ættir að rekja til Eyja. Bls. 12,13 og 15. Bjarni Sighvatsson - Hefur ásamt fleirum safnað um 170 milljónum til HV: Vill verja sjúkrahúsið -Hræddur um að orrustan sé töpuð - Það sé stefna ríkisstjórnarinnar Á mánudaginn færði Bjami Sig- hvatsson Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja (HV) ómtæki sem hann í samstarfi við marga aðila hefur safnað fyrir. Segir hann þetta loka- punktinn á tækjakaupum til stofn- unarinnar sem hann hefur staðið fyrir á undanfömum ámm. I allt em það 150 til 170 milljónir króna sem hann ásamt fjölskyldu sinni, fyrirtækjum í Vestmannaeyjum og Kvenfélaginu Líkn hefur safnað. Tilgangurinn er að styrkja stöðu sjúkrahússins sem er að því er virðist töpuð barátta að mati Bjama. „Ég er ekki sérfræðingur í lækn- ingum en mér skilst að þetta ómtæki sé mjög fullkomið. Með því á að vera hægt að skoða maga og heila og annað sem þarf að kíkja á þegar eitthvað bjátar á. Það kostar um átta milljónir," sagði Bjami sem segir að margir haft komið að þessu verkefni með honum. „Það er ekki síst Kvenfélagið Líkn sem alltaf hefur stutt vel við Sjúkrahúsið. Fyrirtæki hér hafa líka bmgðist vel við og skilyrðið er að þessi tæki verði á Heilbrigðisstofn- uninni til reiðu fyrir Eyjamenn. En það er til lítils barist því það er markmið ríkisstjórnarinnar að leggja niður sjúkrahúsþjónustu í Vestmannaeyjum og annars staðar á landsbyggðinni," sagði Bjami og lagði áherslu á orð sín. „í allt em þetta á milli 150 og 170 milljónir sem við emm búin að leggja til sjúkrahússins og tilgang- urinn er að halda því í rekstri og að það geti veitt Vestmannaeyingum og gestum okkar öryggi á okkar sjúkrahúsi sem er í mikilli hættu eins og ég sagði áðan.“ Bjami segist enga glóra sjá í því að á meðan framlög til heilbrigðismála em skorin niður er verið að eyða peningum skattborgaranna í alls konar vitleysu. „Nú á að byggja risasjúkrahús í Reykjavík á meðan verið er að skera niður í heil- brigðiskerfmu. Eins og staðan er núna verða allir læknar flúnir úr landi nema þeir gömlu sem verða komnir á eftirlaun þegar þetta bákn verður tilbúið." Bjami er hræddur um að þessi myndarlegi stuðningur við sjúkra- húsið hér dugi ekki til. „Því miður en ég vona að þessi áhugi Eyja- manna ýti við stjómmálamönnum en mér frnnst þeir hálf rænulausir þessir þingmenn okkar,“ sagði Bjami að lokum. Tvær nýjar ferjur í boði „Undanfarið höfum við undirrit- aðir unnið að því að skoða mögu- leika varðandi nýja ferju til sigl- inga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Þessi vinna er alfarið að fmmkvæði okkar sjálfra sem áhugamanna um bættar sam- göngur milli lands og Eyja,“ segja Grímur Gíslason og Bárður Haf- steinsson í grein í blaðinu í dag. Grímur var lengi starfsmaður Herjólfs, stjómarformaður fyrir- tækisins og sat í smíðanefnd þegar núverandi skip var byggt. „Við teljum okkur því hafa nokkra þekkingu og reynslu í þessum efnum og viljum nýta hana til að stuðla að því að næstu nauðsyn- legu skref verði stigin í sam- göngumálum Eyjamanna.“ Auk þeirra hefur Eimskip lagt fram teikningu að skipi sem gæti hentað í Landeyjahöfn. Sjá nánar á bls. 8 og 10. LV sýnir Ronju Leikfélag Vestmannaeyja fram- sýnir á laugardaginn klukkan 17:00 fjölskylduleikritið um Ronju Ræningjadóttur. Það er Þröstur Guðbjartsson sem leik- stýrir en alls taka 27 leikarar þátt í verkinu, frá 12 ára og upp úr. Aðalhlutverk er í höndum Söm Hlínar Sölvadóttur, sem leikur Ronju og Kristleifs Kristleifs- sonar, sem leikur Birki. Auk þess leika þau Zindri Freyr Ragn- arsson og Ásta Steinunn Ástþórs- dóttir foreldra Ronju, Birkir Högnason og Heiða Marinós- dóttir foreldra Birkis og Alex- ander Tórshamar leikur Skalla- Pétur. Malbikað í vikunni voru miklar fram- kvæmdir inni á Eiði, við Kleifar- veg þegar hann var malbikaður. Þetta em einhverjar stærstu mal- bikunarframkvæmdir hér í háa herrans tíð en það er fyrirtækið Hlaðbær-Colas sem sá um fram- kvæmdina. Fyrirtækið flutti tæki, mannskap og malbikunarefnið til Eyja. VIÐ ERUM DACLEGA A FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND ww.flytjandi.is | simi 525 7090 | Eieimskip — VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... ... SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ■vfr' ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM FI.ATIR 21 / S.481 1216 , GSM.8Ó4 4616

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.