Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
ÞINGMENN koma í leitirnar. í þar síðustu viku birtist í Morgunblaðinu heilsíðu auglýsing frá áhuga-
mönnum vegna ástandsins í samgöngumálum. Mynd var af öllum þingmönnunum og undir stóð, Týnd og
Týndur. Hugmyndin kviknaði á kaffistofunni hjá Trésmiðjunni Gæsk þar sem þeir feðgar, Sigurður
Oskarsson og Oskar, ráða ríkjum. Eygló Harðardóttir, Sigurður Ingi Sigurðsson, Ragnheiður Elín
Arnadóttir, Margrét Tryggvadóttir, Róbert Marshall og Arni Johnsen svöruðu kallinu á mánudaginn og var
kátt á hjalla. Niðurstaðan var að allir þingmenn Suðurlands standa saman að því að bæta samgöngur við
Vestmannaeyjar og að Landeyjahöfn geti sinnt hlutverki sínu. M.a. eru þeir tilbúnir að skoða hugmyndir
Eimskips um að smíða nýja ferju sem gæti verið komin í gagnið innan tveggja ára. A myndinn eru auk
þingmannanna Oskar Sigurðsson, Haukur Jóhannsson og Helgi Georgsson.
Samráðshópur í ferðaþjónustu - Áhugafólk um bættar sam-
göngur við Vestmannaeyjar fundaði með þingmönnum:
Ný ferja þegar í stað
s
-A að leysa Herjólf af þar til nýtt skip kemur voru skilaboðin
Það þarf þegar í stað að grípa til
aðgerða til að bæta úr því neyðará-
standi sem ríkir í samgöngumálum
okkar Eyjamanna. Það er krafa
Samráðshóps í ferðaþjónustu, Vest-
mannaeyjum og áhugafólks um
bættar samgöngur við Eyjar.
Hópurinn fundaði með meða átta
af tíu þingmönnum Suðurkjördæmis
á Kaffi Kró á mánudaginn. Þing-
mennimir voru Eygló Harðardóttir,
Sigurður Ingi Sigurðsson, Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, Margrét
Tryggvadóttir, Róbert Marshall,
Björgvin G. Sigurðsson, Unnur Brá
Konráðsdóttir og Ámi Johnsen.
Kröfurnar sem lagðar voru fyrir
þingmenn eru að þegar í stað verði
fundin ferja sem hentar til siglinga
milli lands og Eyja og leysi af
Herjólf, þar til nýtt skip kemur sem
tekur við af Herjólfí.
Það þurfi að annað flutningum með
farþega, bíla, gáma næstu árin, mið-
að við þá reynslu sem þegar er
komin á Landeyjahöfn en um hana
fóm 270 þúsund farþegar á fimm
mánuðum.
Þá er það mat hópanna að þegar
verði farið í útboð á nýrri ferju sem
annað getur stóraukinni flutnings-
þörf og fjölgun farþega á næstu
árum.
Oháðir aðilar verði fengnir til að
taka út Landeyjahöfn. Nauðsynlegar
lagfæringar verði gerðar á höfninni
þegar í stað að undangengnu mati.
Gera verði ráð fyrir að skipið verði
lagað að stærri höfn. Hún verði opin
allt árið, annað sé óviðunandi og
eðlilegt sé að þeir aðilar sem hönn-
uðu höfnina taki út hönnunina.
Þeir gera kröfu um öflugt grafskip
til að hreinsa Landeyjahöfn, staðan
núna sé með öllu óviðunandi.
í fimmta lagi vilja þeir að fargjöld
verði lækkuð verulega á sjóleiðinni
milli lands og Eyja. Það megi gera
með afsláttarkortum en jafnframt
verði lágmarksverð afsláttarkorta
lækkað. „Mikil fjölgun farþega
ásamt lækkuðum rekstrarkostnaði
réttlætir lækkun en ekki hækkun
kostnaðar á þessari siglingaleið,"
segir í frétt frá hópunum.
I sjötta lagi er það krafa um að
flugleiðin Vestmannaeyjar - Reykja-
vfk verði aftur ríkisstyrkt. Það sé
sanngjörn krafa þar sem hún hafi
verið ríkisstyrkt til fjölda ára. Stór
hluti Eyjamanna sem þurfi að nota
flugleiðina geti það ekki vegna of
hárra fluggjalda. Árið 2009 var
styrkur á þessari flugleið 140
milljónir til Flugfélags íslands.
Kristín Jóhannsdóttir - Metnaðarfull dagskrá á menningarhelgi:
Flottar myndlistarsýningar,
tónlist og rithöfundar lesa upp
-Frumsýning hjá LV - Kvikmyndin Eldfjall verður sýnd
Það sem var upphaflega Nótt safn-
anna er orðið að langri menningar-
helgi, hefst á fimmtudegi og
stendur fram á mánudag. Dagskráin
er metnaðarfull að þessu sinni og
ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi hvort sem er á sviði tónlistar,
myndlistar, leiklistar, ritlistar eða
kvikmyndalistar. Dagskráin er bæði
fjölbreytt og skemmtileg.
Kristín Jóhannsdóttir, menningar
og markaðsstjóri Vestmannaeyja-
bæjar, sagði erfitt að taka eitthvað
eitt út úr þegar hún var spurð út í
dagskrána. „Við lögðum upp úr því
að hafa enga viðburði samtímis
þannig að allir geta sótt alla dag-
skrárliði.Við höfum frá upphafi
fengið rithöfunda til að lesa upp úr
verkum sínum og erum með þá
núna eins og undanfarin ár. Mér
finnst metnaðarfullt að vera með
sýningu í Byggðasafninu í tilefni af
því að 100 ár eru frá fæðingu
LV frumsýnir Ronju ræning-
jadóttur á laugardaginn.
Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds.
Það verður líka gaman að hlusta á
tríóið Glóðir í Vinaminni þar sem
bamabam Oddgeirs, Hafsteinn
Þórólfsson, kemur fram ásamt Jóni
Gunnari Biering Margeirssyni og
Ingólfi Magnússyni. Við vonumst
líka eftir góðri aðsókn á kvik-
myndina Eldfjall sem er verðlauna-
mynd og verður sýnd á mánu-
dagskvöldinu og er verðugur full-
trúi Islands í keppninni um til-
nefningu til Óskarsverðlauna.
Partur af myndinni er tekin upp í
Vestmannaeyjum og ég hvet alla til
að sjá sýninguna."
Kristín sagði miklu skipta að
frumsýning Leikfélags Vestmanna-
eyja og tónleikar Lúðrasveitar
Vestmannaeyja séu fastir liðir á
Safnahelgi. „Svo emm við með
flottar myndlistarsýningar þar sem
Unnar Gísli Sigurmundsson sýnir f
Svölukoti , Brynhildur Friðriks-
dóttir í anddyri Safnahúss og Jón
Baldur Hlíðberg verður svo með
teikningar í Náttúrugripasafninu,"
sagði Kristín og hvetur fólk til að
mæta á þá viðburði sem verða í
boði og njóta helgarinnar.
Fermingarbörn safna
fyrir brunni í Afríku
Það er orðinn árlegur þáttur í fermingarfræðslu Landakirkju að fermingar-
bömin standa fyrir söfnun á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta verkefni
er kallað vatnsverkefni fermingarbama því safnað er fyrir vatnsbmnnum
fyrir gmnnvatn og söfnunartönkum fyrir rigningarvatn. Víða er mikill skortur
á hreinu vatni en það hefur valdið sjúkdómum og lakri heilsu milljóna
manna. Fermingarbömin hafa kynnt sér aðstæður fjögurra foreldralausra
systkina í Uganda og hversu mikið mál það er að ná í hreint vatn. Þetta hefur
verið aðalverkefnið í fræðslutímum þessa viku. Þau hafa nú sett sér það
markmið að safna hér í Vestmannaeyjum fyrir einum grunnvatnsbrunni með
handdælu en það mun kosta um 120-130 þúsund krónur að koma upp einum
slíkum. Hefur það mikið að segja fyrir það þorp. Þriðjudaginn 8. nóvember
munu fermingarböm ganga í hús í Eyjum milli kl. 18 og 20, kynna verkefnið
sitt og óska eftir frjálsum framlögum. Þeir sem ekki fá heimsókn geta fengið
upplýsingar hjá fermingarbömum eða prestum um hvar má leggja inn á
sérstakan reikning þessa verkefnis og það verður líka hægt að koma fram-
lögum í bauk í Safnaðarheimilinu á þessum tíma og daginn eftir.
Vinjettuhátíð á Kaffi Kró á
sunnudaginn
Vinjettuhátíð verður haldin á sunnudaginn á Kaffi Kró kl. 16.00 til -18.00.
I fréttatilkynningu segir að valinkunnir heimamenn muni lesa upp úr
verkum Ármanns Reynissonar.
Hljóðfæraleik og söng annast Unnar
Gísli Sigurmundsson sem kynnir í leiðinni
nýja hljómdiskinn sinn. Upplesarar ásamt
höfundi eru: Félagar úr Kvenfélaginu Líkn
þær Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, Sigríður
Halldóra Gunnarsdóttir, Guðbjörg Osk
Jónsdóttir, nemendur úr Framhaldsskóla
Vestmannaeyja þau Viktor Rittmuller og
Berglind Karlsdóttir. Heldriborgaramir
Gísli Halldór Jónasson og Hermann
Einarsson munu einnig lesa. Einnig kemur
fram Unnur Ólafsdóttir, vert. Hlé verður
gert í miðri dagskrá fyrir veitingar og
spjall. Aðgangur ókeypis.
„Vinjettuhátíðir hafa verið haldnar á 29 stöðum víða um land og notið
vinsælda. Þær eru í anda kvöldvökunnar sem haldin var í baðstofum lands-
manna í þúsund ár en lögðust af fyrrihluta síðustu aldar. Þetta er í annað
sinn sem vinjettuhátíð er haldin í Vestmannaeyjum. Síðast var vinjettuhátíð
haldin í Vélasalnum í október 2003 við húsfylli og mikill rómur gerður að
henni sem lifir enn þann dag í dag,“ segir í fréttatilkynningunni.
Sigrún Birna kennir dans
Sigrún Bima Blomsterberg hvetur Eyjamenn til að taka fram dansskóna og
bregða sér á námskeið í dansi sem
hún ætlar að halda á Hressó um helg-
ina. Hún segir mikinn áhuga á dansi
núna og vill hún eiga þátt í að koma
Vestmannaeyingum út á dansgólfið.
„Eg verð með flott dansnámskeið
um helgina í samstarfi við Hressó en
það hefur vantað danskennslu í Vest-
mannaeyjum undanfarið," sagði Sig-
rún Bima. „Dansmenning blómstrar
um þessar mundir og áhugi á alls
konar dansi mikill. Eg vil stuðla að
því að Eyjamenn og fólk úti á landi
verði með í þessari frábæm þróun og
fái dansinn beint í æð frá mjög góðum
kennara. Námskeiðið er fyrir alla og
ætti enginn að láta það framhjá sér
fara. Eg mun kenna nýjan dans í
hverjum tíma og mismunandi dans-
stfla eftir því. Svo allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi,“ bætti hún við.
Sigrún Bima Blomsterberg er mjög þekktur danskennari og atvinnu-
dansari. Hún hefur kennt í tólf ár víðsvegar um landið, bæði á sínum eigin
vegum og annarra. Hún kennir bömum og fólki á öllum aldri, bæði byrj-
endum sem og lengra komnum. Það sækja ávallt mjög margir tíma hennar
og oftar en ekki komast færri að en vilja.
Á síðustu ámm hefur Sigrún flutt inn erlenda gestakennara sem em mjög
frægir, virtir og flottir danshöfundar. Þeir hafa m.a. komið frá Los Angeles,
London, New York og Kína.
Sigrún tekur að sér að kenna í afmælum, gæsunum, steggjun, óvissuferð-
um, á íþróttadögum, árshátíðum, ýmsum veislum o.fl, o.fl. Hvort sem
kennsla fer fram í sal, útveguðum af henni eða öðmm, eða á viðkomandi
stað.