Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 8
8 Frcttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011 - Eimskip kynnir hugmyndir sínar að nýrri ferju í Landeyjahöfn. - Bærinn líka með skip. Ekki eftir neinu að bíða - segja þeir Elliði Vignisson, bæjarstjóri og Róbert Marshall, þingmaður - Eimskipsferjan tekur 78 fólksbíla, 400 farþega og gæti verið tilbúin eftir 18-24 mánuði. FERJAN sem Eimskip hefur látið teikna fyrir sig á að geta tekið 78 bfla og 400 farþega yfir vetrartímann en farþegafjöldinn eykst upp í 475 yfir vetrartímann. ÞINGMENN Suðurkjördæmis funduðu í Eyjum, m.a. með áhugafólki um bættar samgöngur í Vestmannaeyjum en fundurinn var haldinn á Kaffi Kró. Róbert Marshall segir að hann hafi farið með skilaboð af fundinum beint í ræðustól Alþingis daginn eftir fundinn. Eimskip hefur látið frumhanna nýja ferju fyrir siglingar í Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér á laugar- daginn en í fréttatilkynningunni kemur jafnframt fram að ný ferja gæti verið tilbúin eftir 18 til 24 mánuði. I fréttatilkynningunni kemur fram að Vegagerðin hafi leitast eftir því að Eimskip myndi leita að hentugri ferju fyrir siglingar í Landeyjahöfn í stað Herjólfs. Leitin hafi hins vegar ekki skilað miklum árangri en þó fundust tvær ferjur sem mega sigla á hafsvæðinu milli lands og Eyja, svokölluðu B-hafsvæði. Hvorug þeirra er hins vegar á lausu en viðræður við eigendur þeirra halda áfram. Herjólfur úr leik 2015 „Eimskip hefur mikinn áhuga á því að taka þátt í þessu verkefni sem gengur út á að tryggja og bæta samgöngur á milli lands og Eyja,“ segir í fréttatilkynningunni en reynslan hefur sýnt að Herjólfur ristir of djúpt, tekur á sig of mikinn vind og á í erfiðleikum með straum og öldu. Skipið hefur því ekki nægilega góða stjórnhæfni við ákveðnar aðstæður. Þá taka nýjar reglur gildi árið 2015 sem gerir það að verkum að skipið uppfyllir ekki skilyrði fyrir ferjur á hafsvæði B. „Því er tímabært að fara nú þegar að huga að framtíð sigiinga milli Eyja og Landeyjahafnar til lengri tíma. Eimskip hefur látið frumhanna nýja ferju sem löguð hefur verið að aðstæðum í Landeyjahöfn varðandi djúpristu og stjórnhæfni. Ferju- hönnunin tekur mið af farþega- og bflafjölda og einnig mið af því að afgreiðsla skips í höfnum gangi hratt og vel fyrir sig. Auk þess er lögð áhersla á að ferjan sé hagkvæm í rekstri og umhverfisvæn. Ferjan getur flutt allt að 78 fólksbfla og 400 farþega í hverri ferð yfir veturinn, en allt að 475 farþega yfir sumarið. Aætlaður kostnaður við smíði ferj- unnar er tæplega 4 milljarðar króna og gert ráð fyrir því að hægt sé að fá hana afhenta eftir 18-24 mánuði. Eimskip er tilbúið að skoða nánar með Vegagerðinni að koma að fjár- mögnun og byggingu nýrrar ferju og taka þannig þátt í að leysa samgöngumál milli lands og Eyja á farsælan hátt til langs tíma. Boltinn enn hjá innanríkis- ráðherra Elliði Vignisson, bæjarstjóri og for- maður nefndar um bættar sam- göngur milli lands og Eyja, hrósar Eimskip fyrir framtakið. „Ég hef nú ekki séð mikið annað en það sem komið hefur í fjölmiðlum og átta mig því enn ekki alveg á hvað hér er á ferðinni. í áfangaskýrslu til ráðherra óskaði samráðshópur um Landeyjahöfn eftir því að tafarlaust yrði ráðist í hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og hvað mig varðar þá er boltinn enn þar. Alþingi verður að ráðast í þessa vinnu sem fyrst enda verða siglingar í Landeyjahöfn vandkvæðum bundnar þar til ný og sérhönnuð ferja kemur til verksins. Það er hins vegar besta mál að þeir sem áhuga hafa á málinu vinni undirbún- ingsvinnu og ástæða til að hrósa Eimskip fyrir þeirra frumkvæði. Ég hlakka að minnsta kosti mikið til að fá kynningu á þessu.“ Búin að bíða of lengi Elliði segir aðspurður að ekki sé eftir neinu að bíða varðandi ný- smíði. „Nei, og í raun er búið að bíða allt of lengi. Það þarf tafarlaust að hefja undirbúning að smíði nýrr- ar og sérhannaðrar Vestmannaeyja- ferju. Hlutverk þings og fram- kvæmdavalds er fyrst og fremst að tryggja að þetta gerist svo fljótt sem verða má. Við verðum einnig að halda því til haga að jafnvel þótt hratt verði unnið þá tekur þetta a.m.k. tvö ár. Nýtt skip verður því í fyrsta lagi komið til þjónustu 2014. Þangað til þurfum við annað heppilegra skip en Herjólf til að þjónusta, a.m.k. yfir vetrartímann. Jafnvel þótt dýpi verði nægt þá verða frátafir Herjólfs vegna ölduhæðar (+2,5 metrar) um 40% í desember, janúar og febrúar ef miðað er við meðal veðurfarslegt árferði. í nóvember og mars mun Herjólfur geta siglt í um 70% tilfella út frá sömu forsendum," sagði Elliði. Ekki hægt að stóla á Herjólf „Á meðan siglt verður á Herjólfi verður því ekki hægt að stóla á Landeyjahöfn. Eftir því sem ég hef skilið þá er nú verið að leita að skipi og vonandi skilar það árangri. Éf svo verður er það krafa okkar að slíkt skip verði leigt og ef með þarf að því verði breytt til að henta til siglinga í Landeyjahöfn. Ef ekki finnst heppilegt skip erlendis þarf að bíta í það súra epli og leita annarra leiða. Ferjan Baldur sigldi til Vestmanna- eyja í september og þótti nokkuð hentug. Ef tekið er mið af reynslu- siglingum Baldurs liggur fyrir að skipið sigldi við 3,5 metra ölduhæð og mat skipstjóra ferjunnar er að siglingin hafi gengið vel. Með tilliti til þessa getur Baldur siglt í 90 til 95% tilvika í vetur, miðað við meðalárferði. Vera má að færa þurfi viðmið siglinga eitthvað neðar en í öllu falli verða frátafir umtalsvert minni en hvað Herjólf varðar. Þar við bætist að frátafir vegna dýpis verða langtum minni enda skipið mun grunnristara. Eðlilegt er að kannað verði hvort Baldur geti leyst þetta verkefni og annað heppilegt skip leyst af í Breiðafirðinum.“ Baldur í Landeyjahöfn en Herjólfur í Þorlákshöfn? „I ljósi þess að Baldur er frekar lítill og óheppilegur til siglinga í Þorláks- höfn er eðlilegt að skoða hvort Herjólfur geti ekki sinnt siglingum í Þorlákshöfn þegar ekki gefur til siglinga í Landeyjahöfn. Slíkt væri náttúrulega háð því að hægt væri að nota sömu áhöfn á bæði skip. Hafa þarf hugfast að Herjólfur er ekkert að fara enda dytti engum í hug að hægt væri að nota Baldur yftr sumartímann. Hann er of lítill á vetuma og þar af leiðandi alltof lítill fyrir sumarálagið. í samstarfi með rússneska sendi- ráðinu um nýja ferju Er það ekki í verkahring ríkisins að sjá um samgöngur? „Jú svo sannarlega. Okkar hlutverk er hinsvegar að reyna að þoka við þessu máli. Ég skil útspil Éimskips sem lið í að hreyfa við málinu og er bara ánægður með það. Við lékum líkan leik fyrir skömmu þar sem við buðumst til að fjármagna nýsmíði og jafnvel að eiga og reka skipið. Eins og Eimskip höfum við einnig látið teikna fyrir okkur fleiri en eitt skip og kynnt slíkar niðurstöður fyrir ríkinu. Meðal annars höfum við unnið með rússneska sendi- ráðinu að athugun á tveggja stafna skipi sem gæti stytt þann tíma sem fer í að leggja að og taka frá bryggju og þannig væri hægt að fjölga ferðum. Sú teikning er þó eingöngu lausleg drög til að sýna hvemig hægt væri að hugsa þetta. Lykilatriðið fyrir okkur er hins vegar ekki hver hannar eða fjármagnar nýja ferju heldur að þetta fari sem fyrst í feril og verði boðið út.“ Samgöngur hluti af grunnþjónustu Elliði segir þó að samgöngumál Eyjanna megi aldrei vera eingöngu í höndum á einkafyrirtæki. „Almenningssamgöngur við Eyjar eru hluti af gmnnþjónustu og ein sú mikilvægasta. Þeir sem reka ferju til Vestmannaeyja verða að hafa það að leiðarljósi að veita sem allra besta þjónustu við samfélagið og gera það í samráði og samstarfi við samfélagið. Rekstraraðilinn verður líka að virða það að samfélagið hafi skoðun á rekstrinum og vinna að lausn mála og eflingu þjónustu með þeim. Ef einkafyrirtæki geta starfað á þeim forsendum þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þau sái um rekstur ferju með þjónustusamningi við rikið. Þarf að klára Landeyjahöfn Róbert Marshall á sæti í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis en hann sagðist lítillega vera búinn að skoða tillögur Eimskips um nýja feiju. „Við eigum að fá kynningu á þessum hugmyndum öllum á fimmtudaginn. Mér líst ekki illa á það sem ég hef séð, svo lengi sem þær hugmyndir rúmast innan þess ramma sem samningur milli ríkis og Eimskips segir til um. Ég sé ekkert að því að einkafyrirtæki komi að smíði á nýrri ferju, svo lengi sem það er gert á forsendum ríkisins. Ég fagna í raun þessi framtaki Eimskips og vildi óska þess að þetta frum- kvæði ætti við á víðari sviðum, sérstaklega hvað varðar þjónustuna við miðasölu og í öðru slíku.“ Róbert segir ekki eftir neinu að bíða með smíði á nýrri ferju. „Þetta er bara spuming um þessi þrjú atriði sem ég ræddi í þinginu áðan; í fyrsta lagi að menn einbeiti sér að laga þá hluti sem þarf að laga í höfninni þannig að hún sé sem mest opin, í öðru lagi að hefja þegar í stað undirbúning á smíði og kaupum á nýrri ferju og í þriðja lagi að finna bráðabirgðaferju sem hentar sigl- ingaleiðinni." Ræddi Landeyjahöfn á fyrsta degi eftir að Alþingi kom saman að nýju Munt þú beita þér fyrir því í umhverjis- og samgöngunefnd að koma þessu máli áfram? „Ekki bara þar því ég var að ræða þetta rétt í þessu í ræðustól á Alþingi. Það eru allir sammála um hversu mikil áhrif Landeyjahöfn hefur á bæinn, svo fremi sem þessi samgöngumáti er opinn. Því þarf að klára verkið en í því fólst ný höfn og ný feija. Það er búið að segja A og nú á bara eftir að segja B.“ Fórstu með skilaboð frá funda- höldum í Eyjum um samgöngumál inn á þing? „Já, algjörlega og ég var í raun bara að vitna í þá fundi í ræðustól Alþingis. Ég sagði að þetta skipti Eyjamenn miklu máli og fékk mjög jákvæðar undirtektir frá Þorgerði Katrínu, sem kom á eftir mér. Ég hvatti líka innanríkisráðherra til dáða í þessu mál því ég veit að það er breiður stuðningur við að klára þetta mál. Það þarf bara að klára þetta.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.