Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 15
Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
15
Atti ekki von á að það yrði svona
gríðarlega góð stemmning
-Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgælunnar, ánægður með móttökurnar
„Að koma með skipið til Vest-
mannaeyja var einstakt og ólýsan-
legt,“ sagði Georg Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar og
fyrrverandi sýslumaður í Vest-
mannaeyjum, þegar hann var
spurður út í móttökumar sem
varðskipið Þór fékk við komuna til
Eyja sfðasta miðvikudag. Hann
sagði að ákvörðun um smíði
skipsins hafi verið tekin 2005 og
þegar kom að því að velja skipinu
nafn fannst honum einboðið að það
yrði Þór. Þá var líka ljóst að
Vestmannaeyjar yrði fyrsta höfn
þegar skipið kæmi til landsins.
„Ég vissi að það yrði gaman að
koma með skipið til Eyja en átti
ekki von á að það yrði svona
gríðarlega góð stemmning.Við
erum öll yfir okkur sæl með mót-
tökurnar sem við fengum og höfðu
áhrif á framhaldið og þær góðu
viðtökur sem skipið fékk í Reykja-
vík. Það em allir mjög ánægðir
með skipið, við erum búin að fá um
tólf þúsund manns um borð og
ekki er annað að heyra en allir séu
ánægðir með komu þessa skips.
I Vestmannaeyjum létu menn í
ljós að þeir ættu skipið og væru
ánægðir með hvemig til tókst við
smíði þess. Það var kannski kominn
tími til að við Islendingar fengjum
eitthvað gagnlegt og nytsamlegt
tæki sem nýtist okkur til öryggis og
eftirlits með helstu auðlindum
okkar og á vissan hátt sameinar
okkur undir einu flaggi sem
íslendinga."
Hvað með rekstur skipsins og
framhaldið?
„Við gerum ráð fyrir því að halda
skipinu hér heima og allar horfur á
að það gangi eftir Svo framarlega
sem við höfum verkefni fyrir hin
skipin, Ægi og Tý, og flugvélina
alla vega hluta ársins. Næstu
mánuði er ætlunin að fara sem
víðast um landið og kynna eig-
endum skipið og samstarfsaðilum
eins og sjómönnum, björgunar-
sveitum, lögreglu og almanna-
vörnum. Við ætlum að ræða við
þessa aðila um hvemig best er að
nýta skipið í þágu lands og þjóðar,"
sagði Gerorg, ánægður með Þór og
móttökumar sem hann hefur
fengið.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir.
FORSTJÓRIMM MÆTTUR Á
BRYGGJUNNI. -Ég vissi að það
yrði gaman að koma með skipið
til Eyja en átti ekki von á að það
yrði svona gríðarlega góð
stemmning.Við erum öll yfir
okkur sæl með móttökurnar sem
við fengum og höfðu áhrif á
framhaldið og þær góðu viðtökur
sem skipið fékk í Reykjavík,
sagði Georg.
AFHENDING Ólafur Snorrason; Rut Haraidsdóttir, staðgengili bæjarstjóra; Andrea Dögg Arnsteinsdóttir;
Jón Ólafsson í framkvæmda- og hafnarráði; Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs: Sveinn Valgeirsson,
skipstjóri á Lóðsinum og hafnarvörður; Stefán Jónasson, í framkvæmda- og hafnarráði; Jörgen Freyr
Ólafsson; Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar.
Olafur Snorrason, framkvæmdastjóri hjá Vestmannaeyabæ:
Heiður fyrir Vestmannaeyjar
„í dag er náð merkum áfanga í ör-
yggismálum á hafsvæðinu í kring-
um ísland. Nýtt varðskip, Þór, er
komið til hafnar á íslandi, 91 ári
eftir að fyrsti Þór kom til landsins
árið 1920,“ sagði Ólafur Snorrason,
framkvæmdastjóri hjá bænum þegar
fulltrúar hans afhentu Landhelgis-
gæslunni mynd af fyrsta Þór að gjöf
frá Vestmannaeyjabæ.
Hann sagði að það hefði verið
mikið framfaraskref þegar Björg-
unarfélag Vestmannaeyja stóð að
kaupum á fyrsta björgunar- og eftir-
litsskipi íslendinga árið 1920 með
aðstoð Ríkissjóðs. „Fékk skipið
nafnið Þór og kom til heimahafnar í
Vestmannaeyjum 26. mars 1920.
Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og öryggis- og björgunartæki
Islendinga hafa stækkað og eflst og
fyrir löngu hefur Landhelgisgæslan
og starfsmenn hennar sannað gildi
sitt við erfiðar aðstæður á hafinu í
kringum Island og við björgunar- og
leitarstörf á Islandi."
Ólafur sagði að Vestmannaeyingar
hefðu alla tíð verið í fararbroddi í
öryggismálum sjómanna og það
væri mikill heiður að fyrsta höfn
hins nýja og stórglæsilega varðskips
íslendinga skyldi vera Vestmanna-
eyjar. „Um leið og Vestmannaeyja-
bær óskar íslendingum til hamingju
með þetta glæsilega björgunartæki
vil ég hvetja stjómvöld til að tryggja
Landhelgisgæslunni það fjármagn
sem nauðsynlegt er til að viðhalda
öryggi á hafsvæðinu í kringum
ísland og þjónustu við hinar dreifðu
byggðir landsins.
Vil ég biðja Sigurð Steinar skip-
herra og Georg forstjóra að taka við
smá gjöf frá Vestmannaeyjahöfn
sem er áletruð mynd af fyrsta Þór í
heimahöfn í Vestmannaeyjum sem
tekin er á árunum 1920 til 1926 og
er það ósk okkar að mynd þessi
muni prýða sali nýja Þórs um
ókomna framtíð,“ sagði Ólafur.
Hefur þú náð 23 ára aldri?
Hefur þú unnið við verslun
í að minnsta kosti 3 ár?
Ef svo er þá gæti raunfærnimat í
Verslunarfagnámi verið eitthvað fyrir þig!
Viska býður nú upp á slíkt raunfærnimat.
I raunfærnimati fær einstaklingur tækifæri til að fá staðfesta
færni sem hann býr yfir og fá hana metna til styttingar á
Verslunarfagnámi. Bæði fólk í starfi og atvinnuleitendur geta
tekið þátt í raunfærnimatinu sem er þátttakendum að
kostnaðarlausu. Að mati loknu geta þátttakendur lokið þeim
námsþáttum sem upp á vantar f Verslunarfagnámi hjá Visku.
Verslunarfagnámi er ætlað að auka verslunarfærni og efla
almenna og persónulega færni til að takast á við fjölbreytt og
krefjandi verkefni f nútfmaverslun. Námið er skilgreint sem
starfsnám á framhaldsskólastigi og er metið af Mennta- og
menningarmálaráðuneytinu sem 51 framhaldsskólaeining.
Kynningarfundur verður haldin mánudaginn
7. nóvember kl: 17:00
á 3ju hæð hjá Visku á
Strandvegi 50. Nánari
upplýsingar veitir Sólrún
náms- og starfsráðgjafi
f sfma 8667837.
m
Fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja
www.viskave.is