Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Qupperneq 17
Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
17
Sigurgeir Scheving
Minningarorð
Þökkfyrir störfþín, dugnað og dáð
og djörfun í orði og verki.
Nafn þitt mun lengi hjá Guð vera
skráð
og lifa þitt hugsjóna merki.
Guðrún Jóhannsdóttir.
Með þessu erindi langar mig að
kveðja minn gamla góða vin, hann
Sigurgeir Scheving.
Eg fluttist hingað 19 ára gömul og
bjó í Bergholti við Vestmannabraut.
Svo gerðist það að einhver úr Leik-
félaginu kom og bauð mér lítið
hlutverk í leikritinu „Góðir eigin-
menn sofa heima". Eg þáði það
með ánægju og þá kynntist ég
Geira (eins og við kölluðum hann
alltaf) en hann lék þjóninn. Við
vorum jafngömul og kom vel
saman og það verð ég að segja að
orkumeiri og skemmtilegri manni
hef ég ekki kynnst. Síðan höfum
við alltaf verið vinir. En hann og
minn kæri Svenni Tomm voru
mikið saman í leikhúsinu.
Hann Geiri okkar er skemmti-
legasti og besti leikstjóri sem ég
hef kynnst. Hann var ekki að
tvínóna við að hlaupa upp á svið til
að segja leikurum til með stöður og
hreyfmgar. Síðan, eins og andi, var
hann kominn fram í miðjan sal, í
sætið sitt hjá „skriftunni".
Það væri að æra óstöðugan að
ætla að telja upp alla hans sigra
sem leikari og leikstjóri. Svo ég
læt hér staðar numið.
Eg votta henni elsku Ruth, stoð
hans og styttu í blíðu og stríðu,
mína dýpstu samúð og svo bömum
hans, Bylgju, Heiðu og Sigurpáli,
bamabömum og fósturbömum.
Guð varðveiti ykkur öll og styrki í
söknuðinum.
Vertu svo sæll góði vinur.
Olly.
Minningartónleikar um Oddgeir - Nær uppselt í Hörpu - Ekki aukatónleikar:
selst á tónleikana í Höllinni
-Biðlar til fólks að kaupa miða í forsölu - Annars falla þeir niður
RAGGI BJARNA, sem hefur sungið lögin hans Oddgeirs í 50 ár, er
meðal listamanna sem koma fram á tónleikunum.
Svo gæti farið að minningartón-
leikar um Oddgeir Kristjánsson,
tónskáld, sem eiga að vera í Höll-
inni sunnudaginn 20. nóvember,
falli niður vegna lélegrar forsölu.
Þetta em sömu tónleikar og verða í
Hörpunni í Reykjavík 16. nóvemb-
er en þá hefði Oddgeir orðið 100
ára.
„Það er orðið nánast uppselt á
tónleikana í Hörpunni en það verða
ekki aukatónleikar eins og ég var
að gæla við,“ sagði Bjami Ólafur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Hallarinnar og tónleikahaldari, sem
er þó mjög ánægður með viðbrögð-
in. „I Hörpunni eru til miðar á
stangli og núna er ég að vinna í að
raða þannig í sæti að þeir sem
kaupa miðana sem eftir em geti
setið saman. Þessa sömu tónleika
ætla ég að vera með í Höllinni og
ég heyri á mörgum að þeir hafa
áhuga á að mæta. Nú er ég að biðla
til fólks sem ætlar að koma að
kaupa miða í forsölunni. Það kostar
mikið að flytja hingað 25 manns,
listafólk og tæknimenn og það gerir
maður ekki nema að hafa selt
minnst 200 til 300 miða fyrirfram.
Ég er mjög spenntur að sjá hvem-
ig til tekst hjá Þorvaldi Bjama og
hans fólki. Þó margir tali um að
þegar sé búið að halda marga tón-
leika á afmælisárinu þá veit ég að
þessir eiga eftir að verða einstakir.
Raggi Bjama hefur sungið lögin
hans Oddgeirs í 50 ár og Guðrún
Gunnarsdóttir er Ellý Vilhjálms
dagsins í dag. Ég hlakka til að
heyra í þeim og öðmm listamönn-
um sem koma fram á tónleikun-
um,“ sagði Bjami Ólafur sem líka
er að undirbúa Verslunarmanna-
ballið sem verður á laugardags-
kvöldið í Höllinni.
„Á móti sól spila á ballinu en
Magni ætlar líka að skemmta ásamt
Jógvani sem líka syngur með
hljómsveitinni á ballinu. Hlakkar
hann mikið til þess en auk þeirra
koma fram félagar úr Leikfélaginu
og flytja brot af því besta, lög úr
uppfærslum félagsins í 100 ár. Veit
ég að eitt atriðið á eftir að vekja
athygli.
Veislustjóri er Bessi hressi og á
matseðlinum er í boði æðisleg
þriggja rétta máltíð frá Einsa kalda.
Maturinn verður framreiddur á borð
enda ekki annað við hæfi þegar
verslunarmenn halda árshátíð,"
sagði Bjami Ólafur sem heldur
ballið í samstarfi við Einsa kalda,
Félag kaupsýslumanna og VR.
„Það stefnir í ágætis þátttöku en
þeir sem eiga eftir að panta miða
hafi samband við Grétu í Eyjavík
sem er formaður Félags kaupsýslu-
manna,“ sagði Bjami Ólafur að
endingu.
✓
Isólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, skrifar:
Eigum samleið - Lykillinn er Landeyjahöfn
Vestmannaeyingar em kröftugt og
skemmtilegt fólk. Hér í Eyjum er
mikil og fjölbreytt þjónusta sem
getur nýst margfalt fleira fólki en
raun ber vitni, á sama hátt geta Vest-
mannaeyingar sótt fjölmargt hingað
upp á land. Samvinna og samstarf er
lykilorðið.
Eyjamar brosa við okkur nágrönn-
um ykkar, það á í rauninni bæði við
landslagið og eyjaskeggjana sjálfa.
Enn á ný em umræður um Éand-
eyjahöfn og samgöngur milli lands
og Eyja. Nú er gerð athugasemd við
staðsetningu hafnarinnar, þær at-
hugasemdir em reyndar fullseint
fram komnar. Hins vegar ber okkur
að vinna út úr þeim viðfangsefnum
sem blasa við og hægt er að bæta úr
og breyta.
Þessum málum er gjaman stillt
þannig upp að hér sé einungis um
málefni Vestmannaeyinga að ræða.
Það er deginum ljósara að Heijólfur
er þjóðvegurinn milli lands og Eyja.
Öryggi í ferðum Herjólfs er hluti af
lífæð hinna kraftmiklu eyjaskeggja.
Hins vegar skiptir höfnin í
Landeyjum okkur hér í Rangárþingi
ekki síður afar miklu máli.
I mínu sveitarfélagi opnar Land-
eyjahöfn nýja möguleika á ótal
mörgum sviðum, menningar- og
félagslíf er spennandi kostur á svo
ótal mörgum sviðum. Bæði hvað
varðar atvinnumál, samstarf sveitar-
félaga og ijölbreytni í mannlífi.
I mánuðinum hittust starfsmenn
stjómsýslunnar í Vestmannaeyjum
og hér í Rahgárþingi eystra til þess
að bera saman bækur sínar. Þegar er
hafið samstarf í starfsemi íþrótta-
félaganna sem er gmnnur að fram-
tíðinni. Unga fólkið lærir að vinna
saman og sú samvinna þykir einnig
sjálfsögð þegar fram í sækir. Fólk
hrindir frá ósýnilegum hindrunum
því að þegar upp er staðið þá kemst
Tómas Guðmundsson að því sanna:
„samt dáist enn meir að hinu / hve
hjörtunum svipar saman / í Súdan
og Grímsnesinu", þetta er einungis
spuming um viðhorf.
Þegar ég var ungur drengur varð
Hvolsskóli á Hvolsvelli, sem var
barnaskóli, gerður að gagnfræða-
skóla í samvinnu sveitarfélaga í
austanverðri Rangárvallasýslu. Nú
hafa sveitarfélögin, sem stóðu að
skólanum á sínum tíma, sameinast,
ásamt tveimur öðrum sveitar-
félögum undir Eyjafjöllum og við,
sem við stöndum í stafni í augna-
blikinu, kynntumst flest samvinnu
þessara gömlu sveitarfélaga í gegn-
um skólann okkar.
Ljóst er að ríkisstjómin verður að
huga strax að kaupum á nýrri ferju
sem hentar til þess að þjónusta þessa
samgönguleið á sem öruggastan og
bestan hátt. Því vissulega er hér um
þjóðveg að ræða. Landeyjahöfn er
fallegt og vel gert mannvirki og
verkið lofar meistarann. Hins vegar
er líklegt að það sé ekki fullgert
m.t.t. aðstæðna á Landeyjasandi.
Uppgræðslan á sandinum hefur tek-
ist vel og það er von mín og trú að
þetta mannvirki eigi enn eftir að
sanna tilvemrétt sinn.
Það er stórkostlegt að tæplega
200.000 farþegar hafa farið í gegn-
um höfnina á þessu ári. Látum ekki
deigan síga, höldum áfram að finna
lausnir á þessu viðfangsefni. Til
hagsbóta fyrir Vestmannaeyinga og
okkur sem höfum Eyjamar fyrir
augunum svona steinsnar frá Land-
eyjasandi. Það em ótjúfanleg bönd
sem tengja okkur saman. Nýtum þau
tækifæri til hins ýtrasta.
Isólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri Rangárþingi eystra.
Hallgrímur Helgason á
Safnahelgi:
Les upp úr
Konunni
við 1000°
Hallgrímur Helgason, rithöfund-
ur, kemur til Eyja í tengslum við
safnahelgi og les upp úr nýjustu
skáldsögu sinni í Surtseyjarstofu
á laugardagskvöld. Konan við
1000° kom fyrst út á þýsku í
tengslum við bókamessuna í
Frankfurt þar sem ísland var
heiðursgestur og hefur fengið
mikið lof gagnrýnenda.
Hallgrímur hefur áður lesið í
Vestmannaeyjum á Safnahelgi
og er spenntur að koma aftur til
Eyja.
„Ég las upp árið 2008 og
fannst mjög gaman. Bókin mín,
Konan við 1000°, er unt áttatíu
ára gamla konu sem býr í bfiskúr
í Reykjavík með gamla hand-
sprengju og tölvu. Hún rifjar upp
líf sitt, leggur drög að dauða
sínum og pantar tíma í lík-
brennslu. Herbjörg María
Bjömsson var barnabarn fyrsta
forseta íslands og pabbi hennar
var eini Islendingurinn sem
barðist með nasistum í seinna
stríði, “ sagði Hallgrímur en
tekur fram að persónusköpun og
söguþráður sé skáldskapur enda
verkið skáldsaga.
„Ég ætla að koma og lesa,“
sagði Hallgrfmur og var í þriggja
vikna upplestrarferð í Þýskalandi
þar sem hann las á hveiju kvöldi
í þrjár vikur. „Það er alltaf
gaman að lesa upp,“ svaraði
hann þegar hann var spurður
hvort það væri ekki þreytandi og
því um að gera að nota tæki-
færið og hlusta á Hallgrím og
fleiri höfunda lesa upp í
Surtseyjarstofu á laugardags-
kvöld. Á mánudag var greint frá
því í fjölmiðlum að Þjóðleik-
húsið hefði keypt rétt á leikgerð
eftir bókinni.
Nýja ferju
Ársþing Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga, haldið í Vík 28. og
29. október 2011, leggur mikla
áherslu á að nú þegar verði hafist
handa um kaup eða smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju.
„Reynsla síðastliðins árs sýnir
að Herjólfur hentar ekki lil þess-
ara siglinga. Ótækt er að að nýta
ekki þau miklu tækifæri sem
gefast með tilkomu Landeyja-
hafnar og jafnframt að hún verði
eins öflug samgönguleið og kos-
tur er.
Grundvallaratriði er að
möguleikar til stórbættra sam-
gangna við Vestmannaeyjar verði
nýttir til fulls. Ársþingið bendir
á að um grunnþarfir í nútímasam-
félagi er að ræða þar sem ferjan
er þjóðvegur til Vestmannaeyja
og krefst þess að ferðir til og frá
Eyjum verði tryggðar allan ársins
hring," segir í ályktun fundarins.