Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Page 19
Fréttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
19
LIÐ FIV Anton, Jón Marvin, Gísli Matthías og Bjartur Týr eru til í slaginn á laugardaginn.
Boxið - Keppni framhaldsskólanna - Öflug sveit FIV komst í úrslit:
Erum liðið sem þarf að vinna
-Bjartur Týr, Gísli Matthías, Anton og Jón Marvin keppa um helgina
Fjórir nemendur Framhaldsskólans
komust úrslit í framkvæmdakeppni
framhaldsskólanna sem Háskólinn í
Reykjavík, Samtök Iðnaðarins og
Samband íslenskra framhaldsskóla-
nema standa fyrir. Urslit verða um
helgina en markmið með keppn-
inni, sem fengið hefur nafnið
BOXIÐ, er að kynna og vekja
áhuga á tækni, tækninámi og störf-
um í iðnaði. Þrátt fyrir atvinnuleysi
hér á landi er verulegur skortur á
tæknimenntuðu fólki.
Nemendurnir eru Bjartur Týr 01-
afsson, Gísli Matthías Sigmarsson,
Anton Bjömsson og Jón Marvin
Pálsson sem eru 18 og 19 ára. í
samtali við Fréttir sögðu þeir að
Frosti Gíslason, forstöðumaður
Fab-Lab smiðjunnar í Vestmanna-
eyjum, hafi séð auglýsingu í blaði
og skráð stráka sem voru hjá
honum í námi. Bjartur Týr var sá
eini sem var til í slaginn og fékk
hann með sér þrjá stráka sem eru
með honum í Framhaldsskólanum.
„Eg fór þá leið að finna gáfuðustu
nemendur skólans sem reyndust
ekki vera nema þrír þannig að úr
varð fjögurra manna lið þó við
hefðum mátt vera einum fleiri,"
sagði Bjartur Týr.
Verkefnið var að leysa eina þraut
og keppa í tölvuleik. „Þrautin var
að byggja eins háan tum og hægt
var úr 500 A4 blöðum af ljósritun-
arpappír og setja egg á toppinn,"
sögðu strákamir þegar þeir vom
beðnir um að lýsa þrautinni. Þeir
tóku hvert blað og brutu í þríhym-
inga eða pýramída og röðuðu upp í
tum. Hann náði því að verða 1,33
metra hár og stóðst próftð þegar
eggið var sett á toppinn.
Tölvuleikurinn gekk út á að smíða
brú yfir gil sem átti að halda þegar
gengið var yftr hana með misþunga
kassa. Allt þetta varð að gera á
hálftíma. Þeir skiptu liði þannig að
Bjartur, Gísli og Anton byggðu
tuminn og Jón Marvin var í tölvu-
leiknum.
„Við rústuðum tölvuleiknum og
hefðum unnið turnþrautina hefðum
við verið fimm eins og leyfilegt
var,“ sögðu þeir.
Alls tóku fimmtán skólar þátt í
keppninni og komust átta áfram.
„Við þurfum að glíma við sex
þrautir og fáum hálftíma í hverja,"
sögðu strákamir sem eru bjartsýnir
á árangur um helgina. „Við emm
liðið sem þarf að vinna og munum
að sjálfsögðu þiggja fyrsta sætið.“
Keppnin fer fram í Háskólanum í
Reykjavík á föstudag og laugardag
og er um að ræða þrautabraut með
nokkmm stöðvum og fara liðin á
milli og leysa eina þraut á hverjum
stað. Þrautirnar reyna á hugvit og
verklag. Fyrirtæki úr ólíkum grein-
um iðnaðarins sjá um að útvega
efni í þrautir sem lagðar verða fyrir
liðin. Fræðimenn frá HR aðstoða
fyrirtækin við að koma saman
heppilegum þrautum. Einnig verða
kennarar á staðnum meðan á sam-
keppninni stendur. Margmiðlunar-
skólinn er stuðningsaðili fram-
kvæmdakeppninnar. Nemendur
skólans munu sjá um að gera
keppninni myndræn skil með upp-
tökum, grafískri vinnu og vinnslu.
Stjórn og sigling skipa:
Ný útgáfa
Komin er út 4. útgáfa af bókinni
Stjóm og sigling skipa - Sigl-
ingareglur, eftir Guðjón Ármann
Eyjólfsson, fyrrum skólastjóra
Stýrimannaskólans í Reykjavík
og Vestmannaeyjum.
Fyrsta útgáfa þessarar bókar
kom út árið 1982 og bætti þá úr
brýnni þörf fyrir handbók og
kennslubók fyrir skipstjómar-
menn. Önnur útgáfa kom út
1989 og sú þriðja árið 2006, en í
þessari 4. útgáfu eru nokkrar
breytingar og viðbætur sem
orðið hafa á alþjóðasiglinga-
reglum og sjómerkja- og fjar-
skiptakerfum frá því að bókin
var síðast prentuð, árið 2007.
Guðjón Ármann hefur unnið
þarft og gott starf með samantekt
þessara bóka og hann hefur
einnig fengið í lið með sér annan
Eyjamann, Jóhann Jónsson, Jóa
listó, sem hefur teiknað og
tölvuunnið teikningar og skýr-
ingarmyndir í síðustu útgáfum
hennar. Þetta er hin myndar-
legasta bók, 380 bls. að stærð og
gefin út af Siglingastofnun
Islands.
Lögreglan:
Róleg víka
Vikan var með rólegra móti hjá
lögreglu og engin alvarleg mál
sem upp komu. Töluvert tilstand
var við komu varðskipsins Þórs
til Vestmannaeyjar þann 26.
október sl. og stóðu lögreglu-
menn m.a. heiðursvörð við skipið
í tilefni af komu þess.
Eitthvað var um útköll í
tengslum við skemmtanahald
helgarinnar en þau voru í nær
öllum tilvikum léttvæg og
leystust á staðnum.
Hjólreiða-
maður
lenti á bíl
-Ökumaður stakk af
eftir að hafa keyrt utan
í bifreið
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt
lögreglu í vikunni sem leið. Um
var að ræða óhapp á Strandvegi
þar sem hjólreiðamaður lenti á
bifreið sem ekið vareftir götunni.
Hjólreiðamaðurinn mun hafa
meiðst lítils háttar í óhappinu.
Þá var tilkynnt um að ekið hafi
verið utan í bifreið sem lagt var á
bifreiðastæðinu við Áshamar 59.
Sá sem tjóninu olli stakk af án
þess að tilkynna um það. Er talið
að óhappið haft átt sér stað að
kvöldi 23. október sl. eða aðfara-
nótt 24. október sl. Þeir sem ein-
hverjar upplýsingar hafa varðandi
óhappið eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við lög-
reglu.
Kenni fólki að lifa í núinu og nýta
sér það besta úr lífinu
Alþýðuhúsinu
kvæðum hugsunum. Eg er búin að
læra þessa tækni úti um allan
heim, til dæmis í Kanada, Bret-
landi og Bandaríkjunum og hef
haldið fjölda námskeiða, meðal
annars á vegum stéttarfélaga. Eg
er að kenna fólki að halda í ham-
ingjuna, því hamingja er lærð, hún
vex ekki í garðinum þínum og þú
þarft að hafa fyrir því að halda í
hana Þú þarft að ná í hana og búa
hana til,“ sagði Sigríður og leggur
áherslu á að hugsanir og viðbrögð
við fjölmörgum aðstæðum sem
upp koma í líftnu geta skipt
sköpum.
Sigríður gaf út bókina Orð eru
álög þar sem lesendum eru kennd-
ar aðferðir við að breyta hugsun-
arhætti og fjölga gleði- og ham-
ingjustundunum. Auk þess er hún
með nýja bók í smíðum enda hefur
fyrri bókin fengið góðar viðtökur.
„Fyrsta prentun er uppseld þrátt
fyrir að ég haft ekkert auglýst en
nú er komin önnun prentun og ég
verð með hana til sölu á fyrir-
lestrinum. Eg hlakka til að koma
til ykkar, það er alltaf gaman að
koma til Vestmannaeyja. Það er
svo mikil orka hjá ykkur, jörðin
ykkar er svo ný. Þess vegna er
miklu meiri kraftur hjá ykkur en
annars staðar. Jörðin er lifandi,
þess vegna er talað um móður
jörð,“ sagði Sigríður og ætlar að
hjálpa fólki til að tileinka sér
jákvæðar hugsanir.
Gudjón Ármann Eyjólfsson
STJÓRN OG SIGLING SKIPA
SIGLINGAREGLUR
A. útgáfa
- segir Sigríður Klingenberg sem verður með fyrirlestur í
Sigríður Klingenberg verður með
spennandi fyrirlestur í Alþýðu-
húsinu á föstudag en þar ætlar hún
að kenna þátttakendum að breyta
líft sínu og færa til betri vegar.
Sigríður hefur haldið fjölda
námskeiða sem byggja á bók
hennar, Orð eru álög, og miðar að
því að þátttakendur nái betri tökum
á líft sínu og ftnni leiðina að ham-
ingjunni. Viska, fræðslu- og sí-
menntunarmiðstöð Vestmannaeyja
stendur fyrir fyrirlestrinum vegna
Safnahelgar.
„Með því að breyta okkur og efla
góðu tilfmningamar líður okkur
betur. Orð eru okkar eigin tilftnn-
ingar og áhrifamáttur þeirra er
mikill," sagði Sigríður þegar rætt
var við hana um fyrirlesturinn.
„Eg segi líka að það sé mikilvægt
að hafa gaman og þess vegna er
jákvætt hugarfar mjög mikilvægt.
Eg kenni fólki að lifa í núinu og
nýta sér það besta úr lífmu,“ sagði
Sigríður og vill meina að jörðin sé
í raun leikvöllur og við sem tökum
þátt í leiknum eigum að njóta
hans.
„Ef þú setur út reiði þá færð þú
reiði og þess vegna kenni ég fólki
að skipta um rás ef það er reitt eða
sorgmætt. Ef þú ert leið í 17 sek-
úndur þá kemst önnur leiðinleg
hugsun að og svo koll af kolli og
þess vegna þarf fólk að læra að-
ferðir til að ná í aðrar tilfmningar.
Annars getur fólk fest í nei-
Sigríður hlakkar til að koma til Eyja. -Það er alltaf gaman að koma
til Vestmannaeyja. Það er svo mikil orka hjá ykkur, jörðin ykkar er
svo ný. Þess vegna er miklu meiri kraftur hjá ykkur en annars
staðar.