Fréttir - Eyjafréttir - 03.11.2011, Síða 23
Frcttir / Fimmtudagur 3. nóvember 2011
23
íþróttir
Knattspyrna:
Nýr leik-
maður og
Yngvi áfram
Knattspyrnumaðurinn Ragnar
Leósson hefur ákveðið að ganga í
raðir ÍBV fyrir næsta sumar.
Ragnar, sem er Skagamaður,
þykir mikið efni en hann á að baki
16 landsleiki fyrir yngri lið
íslands. Hann hefur leikið 60
leiki fyrir ÍA og skorað í þeim 10
mörk en Ragnar er sókndjarfur
leikmaður og semur við ÍBV til
þriggja ára.
Þá skrifaði Yngvi Magnús
Borgþórsson, rauða ljónið, undir
árs framlengingu á samningi
sínum hjá félaginu.
Þrír frá ÍBV í
U-21
Brynjar Gauti Guðjónsson, Guð-
mundur Þórarinsson og Þórarinn
Ingi Valdimarsson hafa allir verið
valdir í leikmannahóp U-21 árs
landsliðs íslands. Þá er Eyja-
maðurinn og leikmaður Örebro,
Eiður Aron Sigurbjömsson, á
sínum stað í hópnum. Um er að
ræða hóp sem mun æfa saman fyrir
leik liðsins gegn Englandi sem fer
fram ytra þann 10 nóvember. Þá
hefur Kristinn Skæringur Sigur-
jónsson verið valinn í æfingahóp
U-17 ára landsliðsins.
Körfubolti:
ÍBV í 32ja
liða úrslit
í síðustu viku var dregið í 64 liða
úrslit í Powerade bikarkeppninni í
körfubolta. ÍBV teflir fram einu
liði í keppninni en Eyjamenn
flugu alla leið áfram í 32ja liða
úrslit þar sem eitt lið í pottinum
sat hjá, ásamt liðum í efstu
tveimur deildum Islandsmótsins.
Eyjamenn gætu því dottið í
lukkupottinn og fengið úrvals-
deildarlið í næstu umferð.
Liðið leikur fyrstu heimaleiki
sína í körfunni um helgina. Á
laugardaginn spila strákamir gegn
Patreki og daginn eftir gegn
Heklu.
Handbolti:
Strákarnir
fengu heimaleiki
Á dögunum var dregið í 16 liða
úrslitum bikarkeppninnar í hand-
bolta, bæði í karla- og kvenna-
flokki. IBV teflir fram tveimur
liðum í karlakeppninni og einu í
kvennakeppninni. Bæði karla-
liðin fengu heimaleiki en kvenna-
liðið þarf að sækja Aftureldingu
heim í Mosfellsbæinn. Ekki er
enn búið að finna leiktíma fyrir
kvennaleikinn.
A-lið karlanna fékk heimaleik
gegn úrvalsdeildarliði Hauka og
verður spennandi að sjá hvemig
ÍBV stendur sig gegn Hauka-
liðinu. Mikil tenging er á milli
liðanna, leikmenn hafa farið á
milli félaganna tveggja sem eykur
enn meira á spennuna fyrir
leikinn. Leikur liðanna verður
mánudaginn 14. nóvember.
B-liðið fékk einnig heimaleik
gegn B-liði HK. Eyjamenn eiga
því góðan möguleika á að komast
alla leið í 8 liða úrslit en leikur
liðanna fer fram laugardaginn 12.
nóvember.
1. deild karla: ÍBV - Fjölnir 31:19
Með fullt hús stiga
- eftir fyrstu umferð af fjórum - Fjölnir engin fyrirstaða
BRÆÐUR BÖRÐUST. Daði Magnússon, í miðjunni, leikur með Fjölni
og mætti bróður sínum, Braga, til hægri um helgina. Föðurbróðir
þeirra beggja spilaði einnig á meðan Magnús, faðir Daða og Braga var
kynnir leiksins.
Karlalið ÍBV er efst í 1. deild með
fullt hús stiga þegar fyrstu umferð af
fjóram er lokið. Eyjamenn áttu ekki
í teljandi vandræðum með neðsta
liðið, Fjölni, sem kom í heimsókn til
Eyja á sunnudaginn. Lokatölur urðu
31:19 en staðan í hálfleik var 19:11.
Leikurinn átti reyndar upphaflega
að fara fram á laugardeginum en þar
sem Herjólfur sigldi til Þorláks-
hafnar og ófært var með flugi, varð
að fresta honum þar til daginn eftir.
Fjölnismenn náðu að hanga í Eyja-
mönnum fyrstu mínútumar en fljót-
lega kom í Ijós styrkleikamunurinn á
liðunum. Leikmönnum IBV dugði
að spila á hálfum hraða til að vinna
leikinn og lykilmenn, eins og
Magnús Stefánsson og Pétur
Pálsson vora hvíldir allan tímann og
fleiri fengu góða hvíld. Það gaf
öðram leikmönnum liðsins tækifæri
á að láta ljós sitt skína og þeir gerðu
það sem þurfti til að vinna leikinn.
í liði Fjölnis mátti frnna einn
Eyjamann, Daða Magnússon, en
hann spilaði í vöm allan tímann og
stóð fyrir sínu. Annar Eyjamaður er
í liði Fjölnis, Óttar Steingnmsson,
en hann var ekki með að þessu sinni.
Þá bættist þriðji Eyjamaðurinn við
lið Fjölnis í vikunni því Birkir
Guðbjörnsson er gengin í raðir
Grafarvogsliðsins eins og kemur
fram annars staðar á íþróttasíðunni.
Það verður ekki sagt annað en að
Eyjamenn fari vel af stað í vetur en
það gerðu þeir svo sem líka í fyrra
en misstu svo flugið, og í raun brot-
lentu eftir fyrstu umferðina.
Vonandi mun sú saga ekki endurta-
ka sig en næsti leikur ÍB V í 1. deild-
inni er gegn ÍR á útivelli næst-
komandi föstudag.
Mörk ÍBV: Vignir Stefánsson 5,
Bragi Magnússon 5, Andri Heimir
Friðriksson 5, Grétar Þór Eyþórsson
5, Theodór Sigurbjörnsson 4, Gísli
Jón Þórisson 2, Sigurður Bragason
2, Davíð Þór Óskarsson 1, Leifur
Jóhannesson 1, Birkir Guðbjömsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Amarson 6,
Haukur Jónsson 15.
1. deild karla
ÍBV 5 5 0 0 151:117 10
ÍR 5 2 2 1 146:127 6
Víkingur 5 3 0 2 123:120 6
Stjaman 5 2 1 2 151:137 5
Selfoss 5 1 1 3 129:144 3
Fjölnir 5 0 0 5 98:153 0
|n1 deild kvenna: HK - ÍBV 24:23
Naumt tap gegn HK
Stelpumar töpuðu öðram leik sínum
í N1 deild kvenna á laugardaginn
þegar þær sóttu HK heim í Kópa-
voginn. Þegar upp var staðið
munaði ekki miklu á liðunum því
lokatölur urðu 24:23 eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 12:10.
Lokatölumar gefa þó ekki alveg
rétta mynd af leiknum því HK var
yfir allan tfmann og var í raun mun
betri, þar til um tíu mínútur voru
eftir af leiknum. Þá hrakku Eyja-
stelpur í gang svo um munaði
þannig að lokamínúturnar urðu
spennandi en HK hafði að lokum
eins marks sigur eins og áður sagði.
ÍBV hefur nú leikið þtjá leiki í N1
deildinni, einn á heimavelli og tvo á
útivelli. IBV vann heimaleikinn
gegn Gróttu en hefur svo tapað
útileikjunum tveimur, gegn Val og
HK. Fyrirfram mátti búast við því
að liðið myndi tapa leikjunum og
því gefur staða ÍBV í deildinni ekki
rétta mynd af getu liðsins. Auk þess
á ÍBV inni einn leik gegn mörgum
liðum deildarinnar þannig að
stelpurnar geta hæglega farið hratt
upp töfluna, og gera það sjálfsagt.
Næsti leikur liðsins er á laug-
ardaginn þegar stelpumar taka á
móti FH í Eyjum.
Mörk IBV: Georgeta Grigore 7,
Þórsteina Sigurbjömsdóttir 5, Ivana
Mladenovic 5, Kristrún Hlynsdóttir
2, Ester Óskarsdóttir 2, Hildur Dögg
Jónsdóttir 1, Mariana Trbojevic 1.
Varin skot: Florentina Stanciu 18.
N1 deild kvenna
Valur 4 4 0 0 133:87 8
HK 4 3 0 1 116:100 6
Fram 4 3 0 1 123:88 6
Stjaman 3 2 0 1 90:86 4
KA/Þór 3 1 0 2 66:84 2
FH 4 1 0 3 93:116 2
ÍBV 3 1 0 2 68:81 2
Haukar 4 1 0 3 98:122 2
Grótta 3 0 0 3 70:93 0
Líkamsrækt: Evrópumót WBFF í Reykjavík
Eyjamenn keppa um helgina
Evrópumót WBFF í líkamsrækt fer
fram um helgina. Keppnin fer svo
fram í Hörpunni og í Laugardalshöll
þar sem aðalkeppnin fer fram
laugardagdaginn 5. nóvember
klukkan 19.00. Keppendur verða
kynntir í Hörpunni á föstudags-
kvöldinu en mikið heilsueflingar-
og heilsuátak verður í Hörpunni um
helgina. Jafnhliða því fer for-
keppnin fram á laugardeginum.
Keppt verður í fitness og vaxtarrækt
karla og kvenna samkvæmt reglum
IFBB og einnig verður keppt í
módelfitness kvenna. Þrír Vestmanna-
eyingar keppa á mótinu. Smári
Harðarson keppir í muscle fitness og
vaxtarrækt, R. Vala Arnardóttir
keppir í fitness og Anna María
I
Halldórsdóttir keppir í módelfitness.
Öll hafa þau æft stíft á Hressó fyrir
mótið og þeir sem verða í borginni
um helgina ættu endilega að mæta í
Hörpuna eða Laugardagshöll og
hvetja sitt fólk.
SMÁRI Harðarson keppir í
muscle fitness um helgina.
Myndin hér til hliðar er tekin
árið 2008 en þá var Smári í
hrikalegu formi. Auk Smára
keppa þær R. Vala Arnardóttir í
fitness og Anna María Halldórs-
dóttir í módelfitness.
íbróttir
Handbolti:
14 á lands-
liðsæfingum
Tveir leikmenn meistaraflokks
ÍBV hafa undanfarið tekið þátt í
landsliðsæfingum U-20 ára lands-
liðs Islands í handbolta, þeir
Theodór Sigurbjörnsson og
Haukur Jónsson. Theodór var svo
valinn í lokahópinn sem tekur þátt
í Opna Evrópumótinu í Noregi um
helgina. Þá hafa tveir Eyjapeyjar
verið valdir í U-18 ára landslið
karla í en um er að ræða
svokallaðan úrtakshóp. Þetta era
þeir Bergvin Haraldsson og
Hallgrímur Júlíusson. Liðið æfir
um næstu helgi en alls voru 24
leikmenn valdir til að taka þátt í
æfingunum.
Þá voru þrír Eyjapeyjar valdir til
að taka þátt í æfingum U-16 ára
landsliðsins um helgina. Þetta era
þeir Guðmundur Tómas Sigfús-
son, Dagur Arnarsson og Hákon
Daði Styrmisson. 27 strákar taka
þátt í æfingunni.
Alls voru sjö handboltastelpur
frá ÍBV á landsliðsæfingum í
handbolta um síðustu helgi. Þær
Drífa Þorvaldsdóttir og Berglind
Dúna Sigurðardóttir voru á
æfingum með U-18 ára lands-
liðinu en Drífa er örvhent skytta
og Berglind markvörður. Þá vora
fimm stelpur á æfingum hjá U-16
ára landsliðinu, sem Eyjakonan
Unnur Sigmarsdóttir þjálfar ásamt
Díönu Guðjónsdóttur. Þetta voru
þær Ama Þyrí Ólafsdóttir, Díana
Dögg Magnúsdóttir, Erla Rós
Sigmarsdóttir, Sandra Dís Sig-
urðardóttir og Sóley Haralds-
dóttir.
Naumt gegn
Víkingum
Karlalið ÍBV tryggði sér sæti f 16
liða úrslitum Eimskipsbikarsins í
handbolta með því að leggja
Víking að velli í síðustu viku.
Bæði lið leika í 1. deild en
Eyjamenn höfðu betur gegn
Víkingum í viðureign liðanna í
íslandsmótinu sem fór fram í
Eyjum. í bikamum léku liðin hins
vegar á heimavelli Vfkinga í
Víkinni og var leikurinn mjög
spennandi. Að lokum voru það þó
Eyjamenn sem stóðu uppi sem
sigurvegarar, 28-29 eftir að staðan
í hálfleik var 16:13.
Mörk ÍBV: Pétur Pálsson 9,
Andri Heimir Friðriksson 5,
Vignir Stefánsson 5, Magnús
Stefánsson 4, Theodór Sigur-
bjömsson 3, Leifur Jóhannesson
1, Gísli Jón Þórisson 1, Grétar Þór
Eyþórsson 1.
Varin skot: Haukur Jónsson 12,
Kolbeinn Amarson 5/1.
>
Framundan
Föstudagur 4. nóvember
Kl. 20:15 ÍR-ÍBV
4. flokkur kvenna.
Laugardagur 5. nóvember
Kl. 13:00 IBV-FH
N1 deild kvenna.
Kl. 15:30 ÍBV-Patrekur
2. deild karla, körfubolti.
Kl. 12:30 Selfoss-ÍBV
4. flokkur kvenna.
Sunnudagur 6. nóvember
Kl. 13:00 ÍBV-Hekla
2. deild karla, körfubolti.
Kl. 14:00 ÍBV-FHl
3. flokkur kvenna.
Þriðjudagur 8. nóvember
Kl. 16:40 ÞrótturB-ÍBV
4. flokkur karla.