Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 7
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember2011
7
Annáll ársins 2011
Samantekt
Sigurgeir Jónsson
sigurge @ intemet. is
Janúar
Um aðkomumenn að ræða
Áramótin í Vestmannaeyjum fóru
ágætlega fram og stórslysalaust. Þó
hafði lögregla í nógu að snúast,
aðallega í því að stilla til friðar. Par
sem var gestkomandi í bænum í
nokkra daga tók nokkum tíma frá
lögreglunni og var parið til að
mynda tvívegis vistað í fanga-
geymslu vegna ölvunar og óspekta.
Eins gott að taka fram að hér hafi
verið um aðkomufólk að ræða en
ekki heimamenn.
Sigurjón Eyjamaður ársins
Hinir árlegu Fréttapýramídar voru
afhentir í Kiwanishúsinu þann 4.
janúar. Að þessu sinni var Sigurjón
Oskarsson valinn Eyjamaður ársins.
Heimir Hallgnmsson, þjálfari ÍBV,
fékk viðurkenningu fyrir framlag til
íþróttamála, Leikfélagið fyrir fram-
lag til menningarmála og Landeyja-
höfn var valin framtak ársins. Þá
fengu bæjarstjóm og bæjarstarfs-
menn viðurkenningu fyrir vel unnin
störf.
Eyjar blóðmjólkaðar
Strax í upphafi árs gaf Elliði Vignis-
son, bæjarstjóri, tóninn í umræðu
ársins um fyrirhugaðar breytingar á
fiskveiðistjómunarkerfmu og rekst-
rarumhverfi sjávarútvegsins. Sú
umræða átti eftir að verða fyrir-
ferðarmikil á árinu og útvegsmenn
ekki beinlínis sammála stjómvöld-
um. Elliði taldi að Vestmannaeyjar
yrðu blóðmjólkaðar, yrðu þessar
breytingar að vemleika.
Draumbær jólahúsið
Hitaveita Suðurnesja og Lions-
klúbbur Vestmannaeyja standa
árlega að vali á Jólahúsi Vestmanna-
eyja og að þessu sinni var það
Draumbær, hús þeirra Margrétar
Grétarsdóttur og Einars Hallgríms-
sonar sem varð fyrir valinu.
Fjölmennt á þrettánda
Þeim fjölgar sífellt brottfluttum
Eyjamönnum sem sækja æskustöðv-
arnar heim á þrettándanum. Þar
með verður líka hver þrettánda-
skemmtun fjölmennari en árið á
undan. Sjálf skemmtunin fór fram á
hefðbundinn hátt í stilltu veðri en
afskaplega köldu.
Fyrsta bam ársins
Honum lá talsvert á fyrsta Eyja-
manni ársins, sem fæddist á
Heilbrigðisstofnuninni í Eyjum,
tveimur mánuðum fyrir áætlaðan
fæðingartíma. Þetta var myndarpeyi
og þrátt fyrir að vera svo snemma á
ferðinni heilsaðist þeim stutta vel,
sem og foreldmnum, þeim Öldu
Guðjónsdóttur og Ólafí Guðmunds-
syni.
Gulldepla til að byrja með
Af útgefnum loðnukvóta komu rúm-
lega 40 þúsund tonn í hlut Eyja-
manna. Vinnslustöðin ákvað að
halda að sér höndum í loðnuveiðum
þar til hrognavinnsla gæti hafist og
Isfélagið ætlaði sér sömuleiðis að
fara hægt af stað. Meðan beðið var
eftir loðnunni stunduðu flest skipin
gulldepluveiðar.
Stórviðri byggt á misskiln-
ingi
Þeim brá mörgum í brún sem kíktu
inn á vefinn vedur.is til að sjá spána
fyrir fimmtudaginn 13. janúar.
Samkvæmt þeirri spá átti vindur á
Stórhöfða að fara í 50 m/sek í
hádeginu og vera komið upp í 62
metra síðdegis. Veðurstofan upp-
lýsti fljótlega að hér væri um villu
:VJ»S4N
; i P® IH
Ku Æ HjjfS Braill ^ ; v li..
Eyjamaður ársins 2010 að mati Frétta var Sigurjón Óskarsson, útgerðarmaður, sem hér er með Sigurlaugu Alfreðsdóttur konu sinni og Þóru
Sigurjónsdóttur móður sinni.
að ræða en engu að síður yrði mjög
hvasst. Það gekk og eftir þótt ekki
yrði af slfkt fárviðri og fyrstu spár
sögðu.
Nýja húsið vígt
Hið nýja fjölnota íþróttahús við
Hásteinsvöll var vígt í janúar. Það
mun gjörbylta aðstöðu til æfinga
yfir veturinn hjá knattspyrnu-
mönnum auk þess sem frjálsíþrótta-
fólk fær þar langþráða æfinga-
aðstöðu. Talsverðar deilur urðu svo
síðar á árinu þegar húsinu var gefið
nafn. Flestir höfðu reiknað með
þjóðlegu nafni á borð við Hásteins-
höllina en stjóm ÍBV tilkynnti að
húsið yrði nefnt Eimskipshöllin til
heiðurs aðalstyrktaraðila ÍBV.
Harmleikur á Fiskasafni
Það er víðar en hjá mannfólkinu
sem missætti getur komið upp í
sambúð. Slíkt átti sér stað í Fiska-
safninu í janúar hjá steinbítspari
sem þar er búsett. Eftir ástafar og
hrygningu áttu flestir von á að karl-
inn tæki við í umönnun hrognanna
eins og venjan er hjá þessum
fiskum. Ekki vildi þó betur til en
svo að í stað þess að hringa sig um
hrognaklasann tók hann til við að
éta þessi væntanlegu afkvæmi sín.
Starfsfólk safnsins stöðvaði þegar
þetta ókristilega athæfi, tók hrognin
í sína vörslu og hugðist reyna að
klekja þeim út án aðstoðar foreldr-
anna. Sem betur fer eru atburðir á
borð við þessa fátíðir í sambúð
mannfóksins.
Beggja dauði
Fram til þessa höfðu sjúkraflutn-
ingar í Vestmannaeyjum verið á
hendi lögreglunnar. Nú sagði
Heilbrigðisstofnun upp þeim samn-
ingi vegna sparnaðar og niður-
skurðar. Sýslumaður upplýsti að
tekjuskerðing embættisins vegna
þessa þýddi að skera yrði niður í
löggæslunni um 15%. Þama af-
sannaðist því sá gamli málsháttur að
eins dauði sé annars brauð, í þessu
tilfelli þýddi þetta beggja dauði og
ekkert brauð.
Bjartmar í heimsókn
Eyjamaðurinn Bjartmar Guðlaugs-
son sótti æskustöðvarnar heim
ásamt hljómsveit sinni, Bergrisun-
um, og hélt tónleika sem voru vel
sóttir.
Ríkið áfram við Strand-
veginn
Auglýst var haustið 2010 eftir hús-
næði fyrir rekstur ÁTVR í
Vestmannaeyjum. Alls buðu fimm
aðilar fram húsnæði en ekkert af því
húsnæði uppfyllti þær kröfur sem
gerðar voru og því sýnt að ríkið yrði
áfram á sínum stað við Strand-
veginn, enn um sinn a.m.k.
Kristján hættur
Um áramótin lét forstöðumaður
Fiska- og náttúrugripasafnsins í
Eyjum, Kristján Egilsson, af störf-
um en hann hafði gegnt því starfi frá
árinu 1986 og reyndar unnið við
safnið nær alveg frá stofnun þess,
1966. Við starfi forstöðumanns tók
líffræðingurinn Margrét Lilja
Magnúsdóttir.
Þetta var töff
Ámi Johnsen alþingismaður komst í
hann krappan þegar bfll hans valt í
hálku skammt frá Litlu kaffistofunni
í Svínahrauni. „Þetta var töff og ég
þakka guði fyrir að vera ekki meidd-
ur. Bfllinn er ónýtur og hraunið
stórskemmt en ég heill,“ sagði
þingamðurinn um þessa lífsreynslu
sína.
Þau fyrstu í Grjótið
Fyrstu íbúamir fluttu inn í Grjótið
við Hilmisgötu í janúar, þau Gísli
Valur Einarsson og Björg Guðjóns-
dóttir. Alls em sex íbúðir í Grjótinu
sem var byggt í samstarfi Geisla og
Eyjablikks.
Fjögurra mínútna fundur
Stysti bæjarstjórnarfundur, sem
haldinn hefur verið í Eyjum, frá
HALLGRÍMUR OG SIGRÍÐUR, íþróttamenn æskunnar í Eyjum, fengu það hlutverk að klippa á borðann
þegar Eimskipshöllin var opnuð með formlegum hætti.