Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 25
KYNNING − AUGLÝSING Bókhald & endurskoðun13. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 3
Uppgjörs- og bókhaldssvið KPMG sinnir margs konar þjónustu sem nýtist fyrir-
tækjum af öllum stærðum og
gerðum líkt og í bókhaldi, upp-
gjörum, gerð ársreikninga, skatt-
skilum og launavinnslu. Á sviðinu
vinnur reynslumikið og vel þjálfað
starfsfólk bæði í Reykjavík og á
landsbyggðinni.
Bókhald frá a til ö
Uppgjörs- og bókhaldssvið KPMG
sinnir margs konar þjónustu,
svo sem bókhaldi, upp gjörum,
gerð ársreikninga, skattskilum
og launavinnslu. „Við bjóðum
upp á alla almenna bókhalds-
þjónustu í DK-fjárhagsbókhaldi
en höfum jafnframt þekkingu á
öðrum bókhaldskerfum sem eru
á markaðnum á borð við Navision,
Axapta, TOK, TOK+, Stólpa og
Ópusallt,“ segir Eyvindur Alberts-
son, löggiltur endurskoðandi á
uppgjörs- og bókhaldssviði. Þegar
bókhald hvers virðisaukaskatts-
tímabils hefur verið fært og af-
stemmt útbúa starfsmenn sviðsins
virðisaukaskattskýrslu fyrir tíma-
bilið sé viðskipta vinurinn í virðis-
aukaskattskyldum rekstri. „Þá
sjáum við um að senda skýrsluna
í rafrænu formi til skattstjóra og
viðskiptavinurinn getur greitt
hana í heimabanka sínum,“ út-
skýrir Eyvindur og bendir á að
sum fyrirtæki kjósi að fá bókara
frá KPMG til að koma til sín og
vinna í þeirra eigin tölvukerfum.
„Sú þjónusta okkar hefur mælst
mjög vel fyrir.“
Gerð ársreikninga
Uppgjörs- og bókhaldssvið býður
viðskiptavinum sínum faglega og
ekki síst áreiðanlega þjónustu við
gerð ársreikninga og árshluta-
reikninga hvort sem viðskipta-
v inurinn færir bók hald sitt
sjálfur eða það er fært hjá KPMG.
„Við getum tekið við rafrænum
færslum til uppgjörs úr öllum
helstu bókhaldskerfum sem eru á
markaðnum,“ segir Eyvindur.
Skattframtöl
fyrir einstaklinga og fyrirtæki
„Við önnumst gerð skattframtala,
bæði fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki,“ segir Eyvindur og bendir á
að á uppgjörs- og bókhaldssviði
starfi löggiltir endurskoðendur og
sérfræðingar á sviði skattamála.
„Þá störfum við einnig í náinni
samvinnu við skatta- og lögfræði-
svið KPMG,“ segir hann. Einnig er
veitt skattaleg ráðgjöf á sviðinu.
„Þá tökum við að okkur að svara
kærum og fyrirspurnum skatt yfir-
valda ef þess er óskað.“
Launaútreikningur
er oft flókinn
Eyvindur segir æ algengara að
bæði stórir og smáir rekstrar-
aðilar fái utanaðkomandi aðila til
að sjá um launaútreikninga hvort
sem er að hluta til eða öllu leyti.
„ Ástæðan er meðal annars sú að
launaútreikningur er oft flókinn og
ekki síður sú launaleynd sem oft er
krafist að viðhöfð sé í fyrir tækjum,“
segir Eyvindur en uppgjörs- og
bókhaldssvið KPMG annast launa-
vinnslur fyrir rekstrar aðila og
félög. „Við færum launabókhald,
sendum launamönnum launa-
seðla á pappír eða í rafrænu formi,
útbúum skilagreinar til lífeyris-
sjóða, stéttarfélaga og skattyfir-
valda,“ segir hann en í árslok eru
útbúnir launamiðar og þeir sendir
skattyfirvöldum og launþegum
ef þess er óskað. „Ef viðskipta-
vinurinn færir sjálfur fjárhags-
bókhald sitt sendum við honum
dagbókarskrá yfir launavinnslur,
annað hvort til innsláttar eða á raf-
rænu formi til innlestrar.“
Uppgjörsdagar KPMG um allt land
Um þessar mundir eru uppgjörsdagar á skrifstofum KPMG um land allt og geta stjórnendur minni og meðalstórra fyrirtækja fengið
fast tilboð í gerð ársreiknings og skattframtals. Jafnframt er hægt að fá tilboð í önnur verkefni eins og bókhald og launavinnslu.
KPMG
KPMG
KPMG
KPMG
KPMG
KPMG
KPMGKPMG
KPMG
KPMG
KPMG
■ Reykjanesbæ
■ Reykjavík
■ Borgarnesi
■ Skagaströnd
■ Sauðárkróki
■ Dalvík
■ Akureyri
■ Reyðarfirði
■ Egilsstöðum
■ Höfn í Hornafirði
■ Selfossi
Uppgjörsdagar KPMG
Nú eru uppgjörsdagar á skrifstofum KPMG
um land allt og geta stjórnendur minni og
meðalstórra fyrirtækja fengið fast tilboð í gerð
ársreiknings og skattframtals.
Jafnframt er hægt að fá tilboð í önnur verkefni
eins og bókhald og launavinnslu.
Hringdu í síma 545 6000 eða sendu
tölvupóst á uppgjor@kpmg.is og fáðu
fast verðtilboð fyrir þinn rekstur.
kpmg.is