Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 42
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 34 FYRIR OG EFTIR Cristiano Ronaldo fór frá Manchester United til Real Madrid árið 2009. Hann telst í dag vera einn allra besti knattspyrnumaður heims. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo mun í kvöld mæta Manchester Uni- ted, sínu gamla félagi, í fyrsta sinn síðan hann var seldur til Real Madrid fyrir metupphæð, 80 milljónir punda, árið 2009. Liðin munu í kvöld eigast við í fyrri viður eign liðanna í 16-liða úrslitum Meistara deildar Evrópu en leikurinn fer fram í spænsku höfuðborginni. Mikið hefur verið rætt og ritað um þessar viðureignir síðan dregið var í 16-liða úrslitin þann 20. desember síðastliðinn. Athyglin hefur eðlilega helst beinst að Cris- tiano Ronaldo, sem var þegar orðinn einn besti knattspyrnu- maður heims þegar hann hélt til Madrid fyrir tæpum fjórum árum. Ronaldo hefur hins vegar haldið áfram að bæta sig síðan þá og státar í dag af þeirri ótrúlegu tölfræði að hafa skorað meira en mark að meðaltali í leik á ferli sínum hjá Real Madrid. Ronaldo hefur ef til vill aðeins fallið í skugga Börsungsins Lionels Messi, sem hefur verið valinn knattspyrnumaður ársins öll þau fjögur ár sem Ronaldo hefur verið hjá Real, en tölurnar tala engu að síður sínu máli. Farangurslaus í Manchester Ronaldo var aðeins átján ára gamall þegar United keypti hann frá Sporting Lissabon fyrir rúmar tólf milljónir punda. Ronaldo, sem talaði þá varla stakt orð í ensku, flaug til Manchester í ágústmánuði 2003 og hafði ekki með sér neinn farangur að ráði, þar sem hann taldi að Ferguson myndi lána hann aftur til Sporting út tímabilið. „Það er ekkert mál,“ sagði Ferguson þegar hann frétti af því. „Þú æfir með okkur á morgun og ferð svo aftur til Portúgals til að sækja föggur þínar.“ Ronaldo bað sjálfur um treyju númer 28 – sama númer og hann var með hjá Sporting – en Ferguson krafðist þess að hann klæddist treyju númer sjö. Treyjunni sem David Beckham hafði klæðst aðeins nokkrum vikum fyrr og goðsagnir á borð við George Best, Eric Cantona og Bryan Robson á undan honum. Sex árum síðar varð hann að dýrasta knattspyrnumanni heims þegar Real Madrid keypti hann á metupphæð. „Cristiano hefur reynst Manchester United einstak- lega vel,“ sagði Alex Ferguson þá. „Hann hefur á sínum sex árum hér orðið að besta knattspyrnumanni heims.“ Gekk Ronaldo í föðurstað Frægðarsól Ronaldos reis enn hærra hjá Real Madrid og sér reyndar ekki enn fyrir endann á því ferli. Hann er ekki nema 28 ára gamall og er því fyrst núna að komast á bestu ár knattspyrnu- ferilsins. Ronaldo hefur sjálfum verið tíðrætt um samband sitt við Alex Ferguson sem hann segir helst líkjast sambandi föður og sonar. En nú þarf Ferguson í fyrsta sinn að takast á við Ronaldo sem hindrun fyrir sitt lið. Gary Neville, fyrrum samherji Ronaldo hjá United, hefur mært hann mjög í enskum fjölmiðlum að undanförnu. Hann segir hann betri leikmann nú en þegar hann fór til Real á sínum tíma. „Í dag er hann algjört skrímsli,“ sagði Neville. „Ég sá hann spila á laugardaginn. Hann hirti boltann bara einhvers staðar á vellinum, gerði einhverja takta sem ég get ekki einu sinni lýst, fór fram hjá einum manni og negldi honum inn af 25 metra færi. Það er ekki hægt að verjast gegn slíku.“ eirikur@frettabladid.is Höfuðverkur Alex Ferguson Ef Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, ætlar liði sínu að fara alla leið í Meistaradeild Evrópu í vetur þarf hann fyrst að vinna bug á Real Madrid og helst Cristiano Ronaldo, fyrrverandi skjólstæðingi sínum. CRISTIANO RONALDO Fæddur 5. febrúar 1985 (28 ára gamall) Deildarleikir Mörk Titlar Deildarmeistari Bikarmeistari Deildarbikarmeistari Meistari meistaranna Evrópumeistari Heimsmeistari félagsliða Meðaltal MANCHESTER UNITED 6 tímabil (2003-2009) REAL MADRID 4 tímabil (2009-2013) 196 84 0,43 123 136 1,02 ÚRSLIT REYKJAVÍKURMÓT KVENNA VALUR - FYLKIR 5-0 Valur á sigurinn vísan í Reykjavíkurmótinu eftir að hafa unnið Fylki í gær. MEISTARADEILD EVRÓPU 16-LIÐA ÚRSLIT, FYRRI LEIKIR CELTIC - JUVENTUS 0-3 0-1 Alessandro Matri (3.), 0-2 Claudio Marchisio (77.), 0-3 Mirko Vucinic (83.). VALENCIA - PSG 1-2 0-1 Ezequiel Lavezzi (10.), 0-2 Javier Pastore (43.), 2-1 Adil Rami (90.). LEIKIR KVÖLDSINS REAL MADRID - MAN. UNITED KL. 19.45 Sýndur á Stöð 2 Sport HD SHAKHTAR - DORTMUND KL. 19.45 Sýndur á Stöð 2 Sport 3 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Jón Arnar Magnússon var ekki byrjaður að æfa tugþraut þegar hann var 23 ára gamall en lesa mátti það út úr grein Fréttablaðsins um tugþrautarkappann Einar Daða Lárusson í gær að hinn 22 ára gamli ÍR-ingur væri langt á undan Jóni á sama aldri. Jón Arnar fór ekki á fullt fyrr en mun seinna og hans besti árangur kom í hús þegar Jón Arnar var 26 til 33 ára gamall. - óój Jón Arnar var ekki byrjaður JÓN ARNAR MAGNÚSSON Á sautján bestu þrautir Íslendinga. MYND/AFP KÖRFUBOLTI Berglind Gunnars- dóttir er ein efnilegasta körfu- boltakona landsins og búin að vera lengi í stóru hlutverki hjá Snæfelli þrátt fyrir að vera ekki orðin tví- tug. Það er jafnframt erfitt að finna óheppnari leikmann því eftir krossbandsslit og tvær hné- aðgerðir hefur hún glímt við það að fara mörgum sinnum úr axlar- lið á þessu tímabili. Berglind fór enn á ný úr axlarlið í leik á móti KR um helgina. „Þetta er mjög sárt,“ segir Berglind. „Það er enginn búinn að afskrifa neitt. Ég er að fara í myndatöku á morgun (í dag) og þá ráðfæri ég mig við lækni í leiðinni. Þá kemur líklega í ljós hvert fram haldið verður. Þetta er orðið frekar slæmt þegar þetta er líka farið að gerast í svefni. Það er því ekki eins og það þurfi mikil átök til,“ segir Berglind sem fékk fyrst högg á öxlina síðasta sumar. „Svo gerðist þetta fyrst almennilega í leik á móti Grinda- vík í byrjun tímabilsins. Þá ráð- færði ég mig við lækni og við keyptum hlíf. Svo hélt þetta áfram að gerast og ég tók því langa pásu fram að áramótum og fór bara að styrkja öxlina,“ segir Berglind en það breytti því ekki að þetta hefur þrisvar sinnum hent eftir áramót. Snæfellsliðið saknar Berg lindar mikið en liðið tapaði ekki leik í byrjun tímabils meðan hún spilaði á fullum styrk. „Við erum frekar fáliðaðar og megum ekki við miklum meiðslum,“ segir Berglind en hún skoraði 14,5 stig í leik áður en hún fór fyrst úr axlarlið í leik. „Ég er svo sem orðin vön því að sitja á bekknum því ég er búin að vera svo mikið í meiðslum. Það er því ekki í fyrsta skiptið sem ég þarf að gera það,“ segir Berglind enda ein- staklega óheppin. „Það er eins og ég taki öll meiðsli liðsins á mig. Ég er búin að fara í tvær hnéaðgerðir og svo gerist þetta. Þetta er orðinn ágætis pakki,“ segir Berglind. - óój Ein óheppnasta körfuboltakona landsins „Þetta er mjög sárt,“ segir Snæfellskonan Berglind Gunnarsdóttir sem hefur ítrekað farið úr axlarlið í vetur. BERGLIND GUNNARSDÓTTIR Meiðslasagan er löng. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI FH sópaði að sér verð- launum þegar bestu leikmenn umferða átta til fjórtán í N1- deild karla voru heiðraðir í gær. Ásbjörn Friðriksson var valinn besti leikmaðurinn en besti þjálf- arinn var valinn Einar Andri Einarsson. Báðir eru úr FH sem vann sex af sjö leikjum sínum í þessum umferðum. Jón Þorbjörn Jóhannsson, leik- maður Hauka, var valinn besti varnarmaðurinn í annað skiptið í röð. Akureyri fékk viðurkenn- ingu fyrir bestu umgjörðina og besta dómaraparið var útnefnt Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. - esá LIÐ 8.-14. UMFERÐAR Mark: Daníel Andrésson, FH Vinstra horn: Sturla Ásgeirsson, ÍR Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson, ÍR Miðja: Ásbjörn Friðriksson, FH Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram Hægra horn: Einar Rafn Eiðsson, FH Lína: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukum Ásbjörn bestur ÖFLUGUR Ásbjörn Friðriksson hefur haft góð áhrif á lið FH. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.