Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 36
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 28
LEIKHÚS ★★ ★★★
Segðu mér satt
Höfundur: Hávar Sigurjónsson.
Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir og Sveinn
Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Heiðar
Sumarliðason.
LEIKFÉLAGIÐ GEIRFUGL
Í SAMVINNU VIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Á fimmtudagskvöld var frum-
sýning á nýju verki eftir Hávar
Sigurjónsson í Kúlunni. Þetta er
samvinnuverkefni leikfélagsins
Geirfugls og Þjóðleikhússins.
Þegar komið er inn í leik-
húsið birtist leikhúsið í verkinu,
sem er baksviðs, eða í einhvers
konar búningsherbergi leikhúss,
sem maður gæti ímyndað sér að
ætti eitthvað skylt við Molière.
Hjónin Karl og Sigrún deila með
sér þessari vistarveru og eins og
í hásæti fyrir miðju hangir sonur
þeirra í hjólastól; dressaður upp
í hnébuxur og blúnduskyrtu með
rauða kinnalitsdíla í andliti. Í
fyrstu á maður kannski von á því
að hann sé einhvers konar brúða
en það breytist nú fljótt því hlut-
verk hans verður eins og öxull
verksins.
Hjónin eru í upphafi verks
komin í læsta stöðu í sínum
samskiptum. Hann er greini-
lega ekki með nein hlutverk þó
hann spígspori um í rykföllnu
höfuðs mannsdressi og það er
svo sem ekki heldur víst að hún
sé í neinum hlutverkum, þótt hún
skipti um dívukjóla á tuttugu sek-
úndna fresti. Hávar bregður hér
upp mynd af fjölskyldu þar sem
hlutverkin riðlast heldur betur.
Barnið er miðaldra og yfir gefur
aldrei foreldrana. Móðirin mis-
býður barni sínu og faðirinn
breytist í konu.
Það var aldrei dauður punktur
í sýningunni þó svo að hinar
sífelldu endurtekningar verði svo-
lítið tuggulegar. Litir og lýsingar,
búningar og tónar voru mjög
skemmtileg þó það hefði alveg
verið óhætt að gefa reykvélinni
frí, því fnykurinn af reyknum
varð til þess eins að áreita áhorf-
endur og hafði ekkert gildi fyrir
listaverkið sem heild. Hins vegar
var brugðið á það ráð að lýsa með
grænum blæ þegar vitfirringin
er að ná yfirhöndinni undir lokin.
Það var mjög smart, ógnvekj-
andi eins og talandi þöglumynd
og ekki laust við að manni þætti
sjálf Baby Jane í meðförum Bette
Davis vera komin í þeim dára-
tryllingi sem Ragnheiður Stein-
dórsdóttir sýndi í lokin.
Leikstjórinn Heiðar Sumar-
liðason beitir mjög voguðum leik-
stíl, sem er í senn pirrandi og
heillandi. Það er víst óhætt að
segja að Árni Pétur Guðjónsson
kitlaði hláturstaugar áhorfenda
í túlkun sinni á hinum lúpulega
Karli. Sveinn Ólafur Gunnars-
son átti einnig góða spretti í hlut-
verki hins fatlaða manns sem um
leið var eins og algert dekurbarn.
Ragnheiður kom mjög vel til skila
þeirri geislandi geggjun sem stig-
magnaðist hjá leikkonunni Sig-
rúnu. Hávar velur leikarafjöl-
skyldu sem læsist inni í sinni
eigin ranghugmynd um forna
frægð. Þetta öngstræti sem þessi
fjölskylda lendir í er svo sem yfir-
færanleg á aðrar stéttir, en hér
í stílfærðum og ýktum leikstíl
er verið að metast um sýnileik-
ann. Annars er það orðinn hálf-
gerður kækur á íslensku leiksviði
að skreyta verkin með tryllings-
legum samfara- eða nauðgunar-
senum. Það bætir litlu við verkið
í þessu tilfelli.
Segðu mér satt heitir verkið
sem er ágætis titill á leikriti sem
byggir á vef lyga en innihaldið
hefði mátt vera umfangsmeira.
Elísabet Brekkan
NIÐURSTAÐA: Fjörug sýning um
öngstræti samskipta en vantaði kjöt
á beinin.
Blúndur og púður í lokuðum heimi
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Tónleikar
19.30 Extreme Chill standa fyrir „off-
venue“-kvöldi á tónlistarhátíðinni Sónar
á skemmtistaðnum Volta. Extreme Chill
hafa til margra ára kynnt Íslendinga
fyrir framsækinni raftónlist. Frítt er inn
á kvöldið þar sem margir af fremstu
íslensku tónlistarmönnum senunnar
koma fram.
21.00 Hljómsveitin Barr leikur á Café
Rosenberg.
Upplestur
18.00 Steingrímur J. Sigfússon les
fyrsta Passíusálminn í Grafarvogskirkju
í tilefni föstunnar.
Dans
14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi
eldri borgara í Reykjavík Stangarhyl 4.
Stjórnendur Matthildur og Jón Freyr.
Tónlist
20.00 Tvíburasysturnar Jófríður og
Ásthildur Ákadætur segja frá tónleika-
ferð hljómsveitar sinnar, Pascal Pinon,
til Japan og Kína á Stefnumótakaffi í
Gerðubergi. Stelpurnar taka einnig með
sér hljóðfæri og leika nokkra ljúfa tóna
fyrir gesti. Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Fyrirlestrar
20.00 Kristín Einarsdóttir þjóð fræð-
ingur og Hlíf Gylfadóttir mannfræðingur
halda hvor sinn fyrirlesturinn á fræðslu-
kvöldi Íslenska vitafélagsins í Víkinni,
Sjóminjasafni við Grandagarð. Fyrir-
lestur Kristínar nefnist Í fjöruborðinu
og fjallar um vættir og verur sem búa á
mörkum lands og sjávar og tengsl þeirra
við mennina. Sjóarinn og almættið
nefnist erindi Hlífar og fjallar um
hvernig sjómenn líta á yfirnáttúrulega
hjálp og hvað veldur heppni að þeirra
mati og siðum sem þeir stunduðu og
stunda kannski enn til að treysta á vel-
vild æðri máttarvalda við sjósóknina.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Sýningin Tengdó verður sýnd
í kvöld og annað kvöld í Hofi á
Akureyri. Sýningin, sem var
frumsýnd í Borgarleikhúsinu
fyrir tæpu ári, hlaut lof gagn-
rýnenda og var valin sýning
ársins á Grímunni, auk þess sem
Valur Freyr Einarsson, höfundur
verksins, var valinn leikskáld
ársins og leikari sömuleiðis.
Sýningum á Tengdó lauk fyrir
fullu húsi síðastliðið vor en
hófust aftur 7. febrúar. „Aðeins
var mögulegt að koma við
tveimur sýningum að þessu sinni
þar sem nú þegar eru uppselt á
þrjátíu sýningar í Borgarleik-
húsinu. Við hlökkum mikið til að
sýna sýninguna á Akureyri. Við
vonum að norðanmenn taki vel
á móti okkur og grípi tækifærið
þar sem þetta er stutt stopp,“
segir Valur Freyr.
Í Tengdó er sögð saga tengda-
móður Vals Freys, en hún fjallar
um leit ástandsbarns að föður
sínum. Fylgst er með þrá barnsins
til að kynnast uppruna sínum
en um leið er horft gagnrýnum
augum á íslenskt samfélag.
Tengdó á Akureyri
Verðlaunaleikrit sýnt tvisvar í Hofi .
HOF Kristín Þóra Haraldsdóttir í hlutverki sínu í Tengdó.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
29
07
0
2/
13
15%
afsláttur
gildir út febrúar
Mixtúrur og Paratabs
Lægra
verð í
Lyfju
MENNING