Fréttablaðið - 03.06.2013, Blaðsíða 4
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LÖGREGLUMÁL Stúlka sem fædd
er árið 1994 var tekin á hundrað
og fimmtíu kílómetra hraða rétt
norðan við Akureyri klukkan
hálf eitt aðfaranótt sunnudags.
Hún var, að sögn lögreglu, með
bráðabirgðaökuskírteini.
Stúlkan á von á 130 þúsund
króna sekt og sviptingu ökuleyf-
is í einn mánuð. - hó
Ofsaakstur við Akureyri:
Nítján ára tekin
á 150 km hraða
TYRKLAND, AP Alda mótmæla ríður
nú yfir Tyrkland þar sem þúsundir
manna hafa undanfarna þrjá daga
safnast saman á torgum víða í borg-
um landsins til að krefjast þess að
Tayyip Erdogan forsætisráðherra
segi af sér. Þetta eru öflugustu
mótmæli gegn ríkisstjórninni árum
saman. Lögreglan beitti táragasi til
að dreifa mannfjöldanum á Tak-
sim-torginu í Istanbúl föstudag og
laugar dag.
Það dugði þó skammt því strax í
gærmorgun voru hundruð manna
aftur samankomin á torginu og í
höfuðborginni Ankara er talið að
um 1.500 manns hafi tekið þátt í
mótmælunum.
Erdogan hefur verið forsætis-
ráðherra í tíu ár og þykir Tyrkjum
hann vera orðinn ansi ráðríkur og
farinn að sýna grófa einvaldstil-
burði. Hrópaði fólk slagorð þar sem
hann var kallaður soldán og ein-
valdur. Erdogan sagði í ávarpi sem
hann flutti í gær að ef fólk vildi
kalla þjón þjóðarinnar einvald gæti
hann ekkert við því sagt. - fsb
Mótmælaalda gegn forsætisráðherranum í Tyrklandi:
Krefjast afsagnar „soldánsins“
MÓTMÆLI Fólk safnast saman á torgum
og krefst afsagnar forsætisráðherra Tyrk-
lands. NORDICPHOTOS/AFP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
www.sagamedica.is
gegn
þvagfærasýkingu
· Aðeins eitt hylki á dag
· 2190 kr. pakkinn
· Enginn sendingarkostnaður
· Kemst inn um bréfalúgu
Fæst aðeins í
vefverslun SagaMedica
á www.sagamedica.is
Einnig tekið við pöntunum í síma 414 3076 frá kl. 10 -13 virka daga.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Bíómiðar fyrir milljón
Bæjarráð Árborgar ætlar að verja einni
milljón króna í kaup á bíómiðum í
endurreist kvikmyndahús á Selfossi.
Bjóða á öllum börnum á grunnskóla-
aldri í sveitarfélaginu í bíó. Bæjarráðið
segir löngu tímabært að opna á ný bíó
á Suðurlandi.
UMHVERFISMÁL Mengunarslys
innan vatnsverndarsvæðis
höfuð borgarsvæðisins eru tíðari
og olíuflutningar um svæðið
umfangsmeiri en margur heldur.
Umsvif og umferð á verndar-
svæðunum eru mikil og þeim
fylgir stöðug mengunar- og slysa-
hætta.
Þetta kemur meðal annars
fram í ítarlegri skýrslu sem Heil-
brigðis eftirlit Hafnar fjarðar
og Kópa vogs (HHK) vann um
olíu slysið á Bláfjallavegi 8. maí
síðast liðinn.
Guðmundur H. Einarsson,
framkvæmdastjóri HHK og einn
skýrsluhöfunda, segir að saman-
tektin hafi ekki síst verið unnin
vegna almennrar umræðu eftir
slysið og til þess að minna á þær
úrbætur sem nauðsynlegar eru.
„Hins vegar er það okkar skoðun
að atvikið 8. maí var klárlega
slys, við getum ekki komist að
annarri niðurstöðu,“ segir Guð-
mundur og segir mikinn mun á
atvikinu og því þegar um göslara-
gang er að ræða sem fer illa.
Auk nákvæmrar lýsingar á
atburðarásinni 8. maí, og þeim
aðgerðum sem fylgdu í kjöl-
farið, er í skýrslunni almennt
fjallað um slys og flutninga á
vatnsverndarsvæðinu. Tekin eru
dæmi um stóra olíuleka þar sem
hreins unar aðgerðir voru reyndar
en voru árangurslausar. „Þá er
þekkt að jeppar og fólksbílar hafa
ekið út af vegum í Heiðmörk og
meðal annars hafnað í Elliða-
vatni og að kveikt hafi þar verið í
aflóga bifreiðum,“ segir þar.
Olíuflutningar um fjarsvæði
vatnsverndar eru meiri en fólk
ætlar, segir í skýrslunni. Á annan
tug fulllestaðra olíubifreiða aka
eftir Suðurlandsvegi dag hvern;
stærstu bif reiðarnar bera 32 rúm-
metra af eldsneyti. Vegna aksturs
ökutækja er jafnframt alltaf mikil
olía inni á vatnsverndarsvæðum.
Á sama tíma uppfylla vegir í Blá-
fjöllum ekki öryggis kröfur. „Þeir
eru víða hreinlega hættulegir og
það væri nánast hending ef tækist
að hreinsa upp olíu að einhverju
ráði ef slys verða,“ segir einnig
í skýrslunni. Um veginn fara
nokkur hundruð bílar á dag.
Þá er sérstaklega tekið til þess
að flug yfir svæðið er mikið og
fer vaxandi. „Ýmis áform eru enn
frekari ógn. Þar má helst nefna
stækkun suðvesturlína þvert yfir
grannsvæði vatnsbóla og hug-
myndir um flugvöll á Hólmsheiði
með aðflug yfir verndarsvæðin,“
segir þar einnig og bætt við að
þekking og tækjabúnaður verði
að vera til staðar til að lágmarka
skaða. Helst má draga úr hætt-
unni með því að vatnsverndar sé
betur gætt í skipulagsáætlunum
og úrbætur gerðar í samgöngu-
málum, er niðurstaðan saman-
dregin. svavar@frettabladid.is
Mengunarslys tíðari en
almennt hefur verið talið
Stöðug mengunar- og slysahætta er á vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Olíuflutningar og önnur umsvif
eru meiri en margur heldur. Úrbætur í samgöngum lykilatriði. Auka þarf vægi vatnsverndar við skipulagsgerð.
Verið var að flytja tank með 600 lítra af dísilolíu neðan í þyrlu að ferða-
þjónustu við Þríhnúk. Tankurinn féll niður úr nokkurra metra hæð. Kom
hann niður á bílastæði og brotnaði með þeim afleiðingum að olía rann
niður. Með hreinsunaraðgerðum náðist að hreinsa upp verulegan hluta
þeirrar olíu sem fór niður.
Mengunarslys í nýliðnum mánuði
Á VETTVANGI Mengunarslys varð á bílastæði við Bláfjöll þegar verið var að flytja olíu að ferðaþjónustu við Þríhnúk. MYND/OR
SAMGÖNGUR Níu prósent öku-
manna á höfuðborgarsvæðinu
nota ekki bílbelti samkvæmt nýrri
könnun VÍS.
VÍS segir gögn Umferðarstofu
sýna að hlutfall þeirra sem spenna
ekki beltin í aftursæti sé mun
hærra. Þriðjungur hafi verið far-
þegi í aftursæti án þess að spenna
beltið. Alls létust 49 í umferðar-
slysum frá árinu 2000 til 2010 sem
Rannsóknarnefnd umferðarslysa
telur að hefðu lifað ef þeir hefðu
verið með bílbelti. - hó
Bílbeltanotkun ábótavant:
Óduglegastir
eru í aftursæti
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Miðvikudagur
Strekkingur með SV-strönd annars
hægari.
HLÝINDI VERÐA NORÐAUSTANLANDS næstu daga og má reikna með að hiti nái
um og yfir 20 stig þar í björtu eða nokkuð björtu veðri. Sunnan og vestan til verður
hins vegar mun svalara og rigning þó að það dragi úr magninu eftir daginn í dag.
10°
8
m/s
10°
10
m/s
11°
10
m/s
10°
12
m/s
Á morgun
Strekkingur með SV-strönd annars
hægari.
Gildistími korta er um hádegi
11°
13°
13°
19°
19°
Alicante
Aþena
Basel
23°
26°
24°
Berlín
Billund
Frankfurt
19°
21°
15°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
15°
20°
20°
Las Palmas
London
Mallorca
23°
17°
23°
New York
Orlando
Ósló
24°
30°
19°
París
San Francisco
Stokkhólmur
18°
16°
24°
12°
5
m/s
8°
4
m/s
18°
6
m/s
16°
5
m/s
16°
6
m/s
14°
8
m/s
10°
12
m/s
11°
11°
14°
18°
18°
LÖGREGLUMÁL Grunur leikur á
að fjögurra ára stúlka hafi verið
numin á brott er hún var að leik
fyrir utan heimili sitt í Kópa-
vogi síðastliðinn þriðjudag.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ekki vitað um ferðir
stúlkunnar í um klukkustund.
Hún segist sjálf hafa farið með
fleiri en einum karlmanni. For-
eldrarnir héldu að stúlkan hefði
heimsótt ömmu sína í næsta
húsi.
Kynferðisbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
rannsakar málið. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu var
maður handtekinn í tengslum
við málið en sleppt að lokinni
skýrslutöku. Tekin verður
skýrsla af stúlkunni í Barnahúsi
í vikunni. - hó
Meint barnsrán í rannsókn:
Segist hafa farið
með mönnum
488.000 krónur var meðaltal
heildarlauna Íslendinga í fullri
vinnu í fyrra.
Meðallaun á almennum vinnumarkaði
voru 47 þúsund krónum hærri en í
opinbera geiranum og karlar voru að
meðaltali með um 120 þúsund krónum
hærri mánaðarlaun en konur.
Heimild: Hagstofan.is