Fréttablaðið - 03.06.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 03.06.2013, Blaðsíða 50
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 22 Ég get alveg viður- kennt að ég var stressuð í fyrri hálfleiknum. Glódís Perla Viggósdóttir visir.is Umfjöllun og viðtöl á íþróttavef Vísis. Mörkin: 1-0 Víðir Þorvarðarson (15.), 2-2 Ian Jeffs (22.), 3-0 Aaron Spear (58.), 3-1 Tryggvi Guð- mundsson (63.). ÍBV (4-4-2): David James 6 - Arnór Eyvar Ólafs- son 6, *Brynjar Gauti Guðjónsson 8, Eiður Aron Sigurbjörnsson 7, Matt Garner 7 - Ian David Jeffs 7 (90., Ragnar Pétursson -), Tonny Mawejje 5, Gunnar Þorsteinsson 6, Aaron Spear 7 (71., Jón Ingason -) - Gunnar Már Guðmundsson 6 (66., Bradley Simmonds 5), Víðir Þorvarðarson 7. FYLKIR (4-4-2): Bjarni Þórður Halldórsson 3 - Andri Þór Jónsson 5, Sverrir Garðarsson 5, Kjartan Ágúst Breiðdal 6, Ásgeir Eyþórsson 5 (46., Andrés Már Jóhannesson 7) - Elís Rafn Björnsson 5, Oddur Ingi Guðmundsson 5 (75., Davíð Þór Ásbjörnsson -), Kristján Páll Jónsson 6 (90., Hákon Ingi Jónsson -), Tryggvi Guðmundsson 6 - Viðar Örn Kjartansson 6, Tómas Þorsteinsson 6. Skot (á mark): 14-9 (8-3) Horn: 6-3 Varin skot: James 5 - Bjarni Þórður 5 3-1 Hásteinsvöllur Áhorf.: 1.205 Gunnar Jarl Jónsson (8) TAKTU 3 BORGAÐU AÐEINS FYRIR 2 ALLAR SUMARVÖRUR Við gefum þér ódýrustu vöruna AKUREYRI 4627800. KRINGLAN 5680800. SMÁRALIND 5659730. FÓTBOLTI Íslensku stelpurnar gengu niðurlútar til hálfleiks á móti Skotum á laugardaginn, búnar að fá sig þrjú mörk í fyrri hálf- leiknum. Þar fór ekki lið sem er líklegt til afreka á EM eftir rúman mánuð. Það var á köflum eins og skoska liðið væri á léttri skot- æfingu og varnarleikur íslenska liðsins var langt frá því að vera boðlegur. Sif Atladóttir, besti varnar- maður íslenska liðsins undanfarin ár, spilaði út úr stöðu sem hægri bakvörður og Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari veðjaði á hina 17 ára gömlu Glódísi Perlu Viggósdóttur við hlið fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur. Eftir skelfi- legan fyrri hálfleik bjuggust kannski flestir við að sú reynslu- minnsta væri látin stíga til hliðar. Það var ekki svo. Sigurður Ragnar gerði fjórar breytingar en Glódís var áfram við hlið Katrínar í miðri vörninni. Það var allt annað að sjá til liðsins í seinni hálf- leiknum og nóg af tækifærum til að snúa tapi í sigur þótt Skotar hafi á endanum haft betur 3-2. Sif að spila meidd „Sif hefur fyrst og fremst verið miðvörður hjá okkur. Við prófuðum að setja hana í hægri bakvörðinn því ég vildi vita hvort við ættum þann möguleika í lokakeppninni, því við eigum ekki það marga varnarmenn. Ég vildi sjá Glódísi og Kötu meira saman því við spil- uðum vel í vörninni úti í Svíþjóð. Sif er líka að spila meidd og tók ég hana því út af í hálfleik. Hún þarf að skoða það betur hvort hún nái sér. Mér fannst hún vera svo- lítið frá sínu besta í þessum leik, eins og kannski leikmennirnir sem spiluðu fyrri hálfleikinn. Vonandi nær hún sér góðri fyrir lokakeppn- ina því hún hefur verið frábær með okkur í langan tíma,“ sagði Sigurður Ragnar um Sif, en hann hefur mikla trú á Glódísi sem hefur byrjað fimm af sex leikjum ársins. „Hún er búin að spila mjög vel fyrir okkur og leikmaður dettur ekki strax út ef hann lendir í því að gera einhver mistök eða spilar ekki vel. Hún er ung og reynslulítil og stendur sig fáránlega vel miðað við aldur og reynslu,“ sagði Sigurður Ragnar. Glódís sjálf vissi vel að spilamennskan í fyrri hálfleik yrði ekki boðleg á Evrópumótinu. Var stressuð í fyrri hálfleik „Ég var alls ekki sátt með fyrri hálfleikinn. Við vorum langt hver frá annarri og náðum ekki að spila góðan varnarleik. Það kostaði okkur þrjú mörk. Við náðum að rífa okkur upp í seinni hálfleiknum og koma sterkari inn. Við ákváðum það inni í klefa að við ætluðum að gera betur, standa meira saman og gera þetta sem lið,“ sagði Glódís Perla og bætti við: „Ég get alveg viðurkennt að ég var stressuð í fyrri hálfleiknum. Ég var því mjög sátt með að fá að vera áfram inni á vellinum.“ ooj@frettabladid.is Hefur trú á Glódísi Íslenska kvennalandsliðið tapaði 2-3 á móti Skotum í síðasta heimaleik sínum fyrir EM og sýndi þá á sér tvær ólíkar hliðar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson gerði ekki 17 ára miðvörð að blóraböggli þótt illa hafi gengið í fyrri hálfl eiknum. GLÓDÍS PERLA Sautján ára varnarmaður sem stóð í ströngu gegn Skotum um helgina. MYND/EVA BJÖRK ÚRSLIT UNDANKEPPNI EM 2014 ÍSLAND - TÉKKLAND 17-29 (6-15) Mörk Íslands (skot): Rakel Dögg Bragadóttir 8/6 (10/6), Karen Knútsdóttir 2 (7), Stella Sigurðar- dóttir 2/2 (9/3), Elísabet Gunnarsdóttir 1 (1), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 1 (2), Rut Jónsdóttir 1 (2), Þórey Rósa Stefánsdóttir 1 (3), Ramune Pekarskyte 1 (4), Arna Sif Pálsdóttir (1), Ásta Birna Gunnarsdóttir (1), Dagný Skúladóttir (1). Varin skot: Florentina Stanciu 9/1 (27/4, 33%), Guðný Jenný Ásmundsdóttir 3 (14/1, 21%). Hraðaupphlaup: 0. Fiskuð víti: 9 (Elísabet 2, Rut 2, Rakel Dögg 1, Karen 1, Þórey Rósa 1, Hanna G. 1, Arna Sif 1) VINÁTTULANDSLEIKUR ÍSLAND - SKOTLAND 2-3 0-1 Joelle Murray (11.), 0-2 Emily Thomson (14.), 1-2 Sara Björk Gunnarsdóttir (25.), 1-3 Leanne Ross (33.), 2-3 Hólmfríður Magnúsdóttir (52.). Lið Íslands: Þóra B. Helgadóttir (46. Guðbjörg Gunnarsdóttir)– Sif Atladóttir (Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir), Katrín Jónsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir– Edda Garðarsdóttir (Dagný Brynjarsdóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir (Dóra María Lárusdóttir)– Fanndís Friðriksdóttir (Rakel Hönnudóttir), Hólmfríður Magnúsdóttir (Katrín Ásbjörnsdóttir), Margrét Lára Viðarsdóttir. KÖRFUBOLTI KR-ingar misstu tvo sterka leikmenn til Snæ- fells í gærkvöldi en þá sömdu þau Finnur Atli Magnússon og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir við félagið. Koma þau til með að styrkja lið félagsins fyrir átök næsta vetrar í Dominos-deildum karla og kvenna. Finnur Atli skoraði að meðal- tali 11,4 stig í leikjum KR á síð- asta tímabili, auk þess sem hann tók 5,4 fráköst í leik. Guðrún Gróa spilaði alla leiki KR á síð- asta tímabili en hún er einn besti varnarmaður deildarinnar. Að auki var tilkynnt að Snæfell hefði framlengt samninga margra lykilleikmanna liðanna. Sigurður Þorvaldsson verður áfram sem og þær Hildur Sigurðar dóttir, Hild- ur B. Sigurðardóttir og Berglind Gunnarsdóttir. - esá Finnur Atli og Guðrún Gróa til Snæfells STERKUR Finnur Atli Magnússon verður Snæfellingum mikill styrkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Þorvaldur hættur hjá Fram Fram tilkynnti í gærkvöldi að Þorvaldur Örlygsson væri hættur þjálfun liðsins. Hann hafi farið fram á að verða leystur undan störfum. Þorvaldur tók við Fram árið 2007 og skilur við liðið í áttunda sæti Pepsi-deildar karla með fimm stig eftir jafn marga leiki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.