Fréttablaðið - 03.06.2013, Page 46
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
Óvænt stóð ég og handfjatlaði forna skinnbók, nánar tiltekið frá því um
1300. Fallegt lítið handrit, sem fjallar
um jafn þurrt efni og skáldskaparfræði.
Bókin kennir það hvernig túlka skuli
gamlar sögur og ljóð. En það er ekki það
sem ég á að gera. Það er heldur ekki það
sem pistillinn á að fjalla um. Hann á að
fjalla um ævintýralegt ferðalag litlu bók-
arinnar og það hvers vegna ég stóð með
hana í höndunum.
ÉG var beðin um að taka bókina í fóstur
og færa hana aftur heim til Eyrarbakka.
Þar fannst hún á bóndabæ árið 1691. Árni
Magnússon fór hringinn og keypti fullt
af handritum, þar á meðal þessa bók.
Hann hafði efni á handritunum vegna
þess að eiginkona hans, Mette Jens-
datter, var auðug. Halldór Laxness
skrifaði um Mette að hún hefði verið
ljót kona. En þar sem ekki er til mynd
af henni gæti hún vel hafa verið
glæsileg dönsk kona, kannski
ekki ósvipuð mér, sem gaf
peningana sína í gott mál-
efni, nefnilega að hjálpa
Árna. Hann tók bókina
með sér til Kaupmannahafnar, þar sem
henni var komið fyrir í bókasafninu
hans, þar til Kaupmannahöfn brann 1728.
Bókinni var sem betur fer bjargað og
var eftir þetta geymd í mörg ár í öryggi
danska skjalasafnsins fyrir miðalda-
handrit. Þar til Íslendingar skyndilega
heimtuðu allt aftur. Danir voru nú ekki
mjög hrifnir af þessu – þeim þótti þetta
líka vera þeirra fortíð. En Íslendingar
voru harðákveðnir, sem maður skilur svo
sem vel, þeir báðu aldrei um að fá að vera
danskir. Og á áttunda áratug síðustu aldar
hófst svo loksins ferðalag handritanna
heim til Íslands.
HÉR var handrit bókarinnar geymt á
Árnastofnun, bak við stóra og þunga hurð,
þar sem hita- og rakastig eru löguð að
þörfum gamalla handrita eins og þessa.
NÝLEGA fór ég svo með þetta litla hand-
rit á Eyrarbakka, þar sem það er til sýnis.
ÞANNIG er ég orðin liður í mikilvægri
ferð bókarinnar heim.
MÉR er það mikill heiður.
Ævintýraleg ferð
Leikarinn og sjarmatröllið Brad-
ley Cooper þótti sýna gríðarlega
dívustæla á frumsýningu þriðju
Hangover-kvikmyndarinnar í
Brasilíu á dögunum. Leikarinn
hunsaði aðdáendur sína algjör-
lega og var stuttur í spuna þegar
spurningum var beint til hans en
þar að auki mættu aðalleikarar
myndarinnar þremur klukku-
stundum of seint á rauða dregil-
inn. Þegar blaðamaður spurði
Cooper hvernig hann myndi haga
sér í þynnku í Brasilíu svaraði
Cooper pirraður: „Ég drekk
ekki einu sinni.“ Slúðurmiðlar
vestanhafs halda því einnig fram
að aðalleikararnir þrír, Bradley
Cooper, Ed Helms og Zach Galif-
ianakis, séu ekki eins góðir vinir
í raunveruleikanum og í kvik-
myndunum þremur.
Dívustælar í
Bradley Cooper
EKKI VINIR Í RAUN Leikararnir í The
Hangover eru ekki miklir vinir.
Thom Yorke, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Radiohead, hefur
búið og starfað í Kaliforníu
undan farið. Þar syngur hann með
hljómsveitinni Atoms For Peace.
Yorke segir að dvölin í Banda-
ríkjunum hafi gert honum gott.
„Mér finnst erfitt að vinna stans-
laust í Bretlandi af því að þar óx
ég úr grasi og þekki til. Ég fékk
tortryggnina í arf og stundum er
gott að hrista hana af sér,“ sagði
tónlistarmaðurinn. „Kannski
er það aldurinn en mér finnst
ég hafa sleppt tökunum á öllum
þeim heimsku reglum sem ég
hafði áður sett mér.“
Kátur í Kaliforníu
Thom Yorke er ánægður með lífi ð í Bandaríkjunum.
ÁNÆGÐUR Í KALIFORNÍU Thom Yorke
kann vel við sig í Bandaríkjunum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrirsætan Cindy Crawford
hefur sett sér markmið fyrir
fimmtugsafmæli sitt;
hún hyggst taka lík-
ama sinn í sátt.
„Ég er ósköp
venjuleg kona,
stundum líður mér
vel í eigin skinni
og stundum
ekki. Ég er
komin með
áheit, ég ætla
að vera orðin
sátt í eigin
skinni áður
en ég verð
fimm-
tug,“ sagði
fyrir-
sætan.
Vill sættast
við sjálfa sig
SÁTT Cindy Craw-
ford ætlar að taka
sjálfa sig í sátt
fyrir fimmtugt.
NORDICPHOTOS/GETTY
EPIC 3D 3.40
EPIC 2D 4, 6
HANGOVER lll 5.50, 8, 10.10
FAST & FURIOUS 7, 8, 10, 10.40
THE CROODS 3D 3.40
EIN STÆRSTA
SPENNUMYND SUMARSINSVINSÆLASTI GRÍN-
ÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
New York Daily News T.V. - BíóvefurinnH.K. - Monitor
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK AKUREYRI
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
H.K. - MONITOR
T.V. - BÍÓVEFURINN
NEW YORK DAILY NEWS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%
ALL ROADS LEAD TO THIS
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS!
5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
EPIC 3D ENSKT TAL ÓTEXTAÐ KL. 5.45 - 8 L
FAST & FURIOUS 6 KL. 5 - 8 - 10.45 12
FAST & FURIOUS 6 LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK 3D KL. 8 - 10.45 12
STAR TREK KL. 8 - 10.45 12
EVIL DEAD KL. 10.15 18
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
FAST & FURIOUS 6 KL. 6 - 9 12
THE GREAT GATSBY 3D ÓTEXTAÐ KL. 9 12
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
PLACE BEYOND THE PINES KL. 6 - 9 12
EPIC 3D KL. 6 / EPIC 2D KL. 6 L
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 8 - 10.20 12
OBLIVION KL. 8 16
MAMA KL. 10.20 16
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI STÓRKOSTLEGU
TEIKNIMYND FRÁ HÖFUNDUM ICE AGE
KARATE STRÁKURINN (L) 17:40
ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR (L) 18:00
VINIRNIR (7) 20:00
VEGAS (7) 20:00
SIGHTSEERS (16) 18:00, 20:00, 22:00
JAGTEN (12) 22:10
DÁVALDURINN (16) 22:00
VINIRNIRS I G H T S E E R S KARATE STRÁKURINN VEGAS
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
Eins og mikið hefur verið fjallað
um að undanförnu er vampíru-
parið Robert Pattinson og Kristen
Stewart nú hætt saman aftur, og
í þetta skiptið er það víst endan-
legt.
Það eru þó ekki bara ein hleypar
stúlkur um gjörvallan heim sem
gleðjast yfir tíðind unum því
mamma Roberts, Claire Pattin-
son, er víst í skýjunum.
Henni hafði líkað ágætlega við
Kristen allt þar til hún tók sig til
og hélt fram hjá syni hennar síð-
asta sumar. Eftir það hefur hún
varla virt hana viðlits og fór víst
ekki leynt með það við son sinn að
henni þætti hann hafa gert skyssu
með því að taka við henni aftur.
Raunar var öll fjölskylda Robs
frekar ósátt við þá ákvörðun hans.
Robert hefur verið orðaður við
nokkrar skvísur frá því að hann
kom aftur á markaðinn, eins og
von er á þegar um er að ræða svo
girnilegan pilt. Nú síðast var það
söngkonan Katy Perry en því var
haldið fram að hún væri raun-
veruleg ástæða fyrir því að Rob
hefði endanlega farið frá Kristen.
Það virðist þó ekki vera svo þar
sem Perry sást knúsa sinn fyrr-
verandi, John Mayer, á dögunum.
Það virðist því vera að vampíru-
prinsinn sé enn laus og liðugur.
Mamma Patta ánægð
Claire Pattinson fyrirgaf Kristen aldrei framhjáhaldið.
PATTINSON-KLANIÐ Foreldrar Roberts,
Claire og Richard, gleðjast mjög yfir því
að sonurinn hafi losað sig endanlega
við Kristen. NORDICPHOTOS/GETTY