Fréttablaðið - 04.01.2014, Síða 10
4. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
INDLAND Víða á Indlandi hefur
verið efnt til mótmæla síðustu
daga vegna hrottalegrar hóp-
nauðgunar á sextán ára stúlku,
sem lést á gamlársdag af bruna-
sárum.
Foreldrar stúlkunnar segjast í
viðtölum við fjölmiðla ekki ætla
að láta neins ófreistað til þess að
fá ofbeldismenninda dregna fyrir
dóm og tekna af lífi.
Þeir saka lögregluna um að hafa
reynt að þagga málið niður. Meðal
annars hafi lögreglumenn stolið
líki hennar á þriðjudagskvöldið
var og látið brenna það þvert gegn
vilja fjölskyldunnar, sem hafði
beðið um að beðið yrði þangað til
á miðvikudag.
„Á meðan ég dreg andan verður
það eina markmið lífs míns að fá
réttlætinu framgengt fyrir hennar
hönd,“ hefur breska útvarpið
BBC eftir föður hennar, og móðir
stúlkunnar segir að dóttir sín hafi
beðið hana um að „sjá til þess að
þeir sem gerðu mér þetta verði
hengdir.“
Stúlkunni var nauðgað tvisvar
af hópi manna í heimabæ hennar,
Madhyamgram, á sunnanverðu
Indlandi. Fyrst þann 26. október
og síðan aftur daginn eftir þegar
hún sneri heim til sín eftir að hafa
kært árásina til lögreglu.
Ofbeldið hélt svo áfram því þann
23. desember kveiktu tveir árásar-
mannanna í henni. Hún var flutt á
sjúkrahús með alvarleg brunasár
og lést af völdum þeirra á síðasta
degi ársins.
Sex menn höfðu þá verið
ákærðir fyrir hópnauðgun og
annað ofbeldi gegn stúlkunni. Í
fyrstu var talið að stúlkan hefði
kveikt í sér sjálf, en síðar kom í
ljós að ekkert var hæft í því.
Viðbrögð almennings á Ind-
landi hafa verið hörð, enda var þá
nýbúið að minnast þess að ár var
liðið frá annarri hrottalegri hóp-
nauðgun í Nýju-Delhí. Ung kona
lét þá lífið eftir að hópur manna
hafði ráðist á hana og vin hennar í
strætisvagni og misþyrmdu þeim
báðum hrottalega.
Fátt virðist hafa breyst varð-
andi nauðganir á Indlandi það ár,
sem liðið er frá fyrri nauðguninni,
þrátt fyrir stór orð stjórnvalda og
hörð viðbrögð almennings. Að
sögn lögreglunnar á Indlandi eru
fjórar nauðganir kærðar á hverj-
um degi í höfuðborginni Nýju-
Delhi. gudsteinn@frettabladid.is
Lögreglan stal líki
fórnarlambsins
Foreldrar sextán ára stúlku, sem var nauðgað tvisvar sinnum af hópi karla á Ind-
landi og síðan myrt, segjast ekki ætla að láta neins ófreistað til þess að fá illvirkj-
ana dæmda. Fjölmennir mótmælafundir í borgum Indlands krefjast breytinga.
MÓTMÆLI Hópur kvenna efndi til mótmæla í borginni Kolkata í gær gegn hóp-
nauðgun og morði á sextán ára stúlku. NORDICPHOTOS/AFP
➜ Stúlkunni var nauðgað
tvisvar af hópi manna
í heimabæ hennar,
Madhyamgram, á sunnan-
verðu Indlandi. Fyrst þann
26. október og síðan aftur
daginn eftir þegar hún sneri
heim til sín eftir að hafa kært
árásina til lögreglu.
REYKJAVÍK Heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur synjaði Gámaþjónustunni
um leyfi til að safna lífrænum eld-
húsúrgangi frá heimilum. Gáma-
þjónustan kærði ákvörðunina til
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála í október og bíður enn
niðurstöðu.
Stjórnarformaður Gámaþjónust-
unnar segir starfsmenn fyrirtæk-
isins finna fyrir miklum áhuga hjá
almenningi að fá tækifæri til þess
að flokka úrgang enn frekar en fólk
gerir í dag og vill hann meina að
Reykjavíkurborg vilji annast slíka
þjónustu frá a til ö. „Okkur finnst
það einkennilegt að þurfa að sækja
um starfsleyfi til Reykjavíkurborg-
ar sem er í raun og veru að keppa
við okkur á þessum markaði.“
Elíasi finnst skrítið að Reykja-
víkurborg gefi út sérstakt leyfi til
fyrirtækisins. „Það er gefið leyfi
í einu herbergi en í næsta er verið
að stjórna rekstri sem er sambæri-
legur við það sem við erum að sækja
um. Þetta er sérkennileg stjórnsýsla
svo ekki sé meira sagt.“ - ebg
Stjórnarformaður Gámaþjónustunnar segir borgina sitja beggja vegna borðs:
Samkeppnisaðili gefur út leyfi
BLÁA TUNNAN Reykjavíkurborg rekur
þjónustu við bláu tunnurnar sem er
í samkeppni við endurvinnslugáma
Gámaþjónustunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA