Fréttablaðið - 04.01.2014, Page 51
| ATVINNA |
Hjúkrunarforstjóri
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra
hjúkrunarheimilisins Fellsenda.
Fellsendi er hjúkrunarheimili fyrir 28 heimilismenn.
Húsnæði hjúkrunarheimilisins var tekið í notkun árið
2006 og er vandað að allri gerð.
Fellsendi er 20 km. fyrir sunnan Búðardal og í 130 km.
fjarlægð frá Reykjavík. Sjá nánar fellsendi.is.
Hjúkrunarforstjóri ber ábyrgð á hjúkrun, fjárhags-
legum rekstri og stjórnun að öðru leyti. Hjúkrunar-
forstjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Fellsenda.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi; menntun og reynsla í
geðhjúkrun er æskileg.
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og samskiptum er
nauðsynleg.
Umsóknir, þar sem gerð er grein fyrir menntun og starfs-
ferli, berist stjórn hjúkrunarheimilisis merkt:
Ólafur K. Ólafsson, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi eða
á netfangið oko@syslumenn.is fyrir 10. janúar 2014.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Upplýsingar veitir Ólafur K. Ólafsson, sýslumaður og
formaður stjórnar, í síma 430 4100.
Starf við launavinnslu í Kjaradeild
Fjármálaskrifstofa/Kjaradeild
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Kjaradeild sinnir launavinnslu Reykjavíkurborgar og hefur eftirlit með framkvæmd kjarasamninga. Deildin ber ábyrgð á túlkun
kjarasamninga og vinnuréttar og fer með fyrirsvar þeirra mála gagnvart viðsemjendum og aðilum vinnumarkaðar. Deildin
sinnir auk þess ráðgjöf á sviði vinnuréttar og kjarasamninga innan Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með og ber ábyrgð á
mannauðsupplýsingakerfi borgarinnar og þróun þess. Hjá Kjaradeild starfa 25 starfsmenn og hefur deildin aðsetur að
Borgartúni 12.
Óskað er eftir öflugum starfsmanni til starfa við launavinnslu. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir mikilli samskiptahæfni,
sýnir frumkvæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð. Unnið er með mannauðs- og launakerfi Oracle og krefst vinnan
skipulagshæfni og nákvæmni.
Helstu verkefni:
Skráning og yfirferð ráðningar- og launagagna
Eftirlit með rafrænni skráningu
Eftirlit með réttri framkvæmd kjarasamninga
Samskipti og leiðbeiningar til stjórnenda vegna launa- og
viðverukerfa
Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af launavinnslu og þekking á kjarasamningum
Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Greiningarhæfni
Góðir samskiptahæfileikar og lipurð í mannlegum
samskiptum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2014.
Nánari upplýsingar veita Atli Atlason, deildarstjóri Kjaradeildar í síma 411 4323, netfang: atli.atlason@reykjavik.is
og Þorbjörg Atladóttir í Kjaradeild í síma 411 4305, netfang: thorbjorg.atladottir@reykjavik.is
Forstöðumaður Bóka- og
héraðsskjalasafns Fjallabyggðar
Fjallabyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns
Bóka- og héraðsskjalasafns Fjallabyggðar.
Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi
til að leiða stofnunina. Forstöðumaður sér um flokkun og
skráningar safngagna, daglegan rekstur, starfsmannamál,
skipulag og umsýslu. Hann sér jafnframt um upplýsinga-
miðstöð ferðamála sem staðsett er í bókasafni. Starfs-
stöðvar bóka- og héraðsskjalasafns eru á Siglufirði og í
Ólafsfirði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun í bókasafns- og upplýsingafræðum æskileg.
• Reynsla í starfi æskileg.
• Reynsla og þekking af málefnum sveitarfélaga er kostur.
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, skipulagshæfileikar og metnaður í starfi.
• Góð kunnátta í íslensku auk kunnáttu í öðru tungumáli.
• Góð tölvukunnátta.
• Bílpróf.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefa,
Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir forstöðumaður
í síma 464 9128, netfang: sigridur@fjallabyggd.is
og Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
í síma 464-9100, netfang: olafur@fjallabyggd.is
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil
skal skilað rafrænt á netfangið olafur@fjallabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2014.
Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og
Siglufjarðarkaupstaðar árið 2006. Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga.
Í sveitarfélaginu, sem telur rúmlega 2.000 í búa, eru tveir þéttbýliskjarnar,
bæirnir Ólafsfjörður og Siglufjörður. Báðir bæir byggja afkomu sína að
mestu á sjávarútvegi, vinnslu fiskafurða og ýmiskonar þjónustu við þessar
greinar iðnaðar, svo sem vélsmíði og netagerð. Í seinni tíð hefur fjölbreytnin
í atvinnulífinu aukist og mikill vaxtarbroddur er í ferðaiðnaði og ýmiskonar
fjarvinnslu fyrir fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu.
Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð og margar góðar gönguleiðir liggja um
sveitarfélagið. Í Fjallabyggð eru tveir leikskólar, grunnskóli, framhaldsskóli og
tónskóli. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar. Í Fjallabyggð eru landsþekkt söfn
og menningarlífið blómstrar. Fjallabyggð er fjölskylduvænt sveitarfélag.
Starf tæknimanns
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir starf tæknimanns laust til umsóknar
Tæknimaður á framkvæmdasviði sinnir verkefnum á sviði skipulags- og byggingamála m.a. í samvinnu við
skipulags- og byggingafulltrúa. Auk þess sinnir hann verkefnum á sviði umhverfis- og framkvæmdamála.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið
gudmundur.eliasson@fjardabyggd.is merkt „Tæknimaður á framkvæmdasviði“.
Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2014.
Helstu verkefni:
• Þjónusta við íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu á sviði
byggingamála.
• Eftirfylgni vegna byggingaleyfa, þ.m.t, úttektir og
bygginga eftirlit í umboði skipulags- og byggingafulltrúa.
• Eftirlit með að lögum og reglugerðum mannvirkjamála
sé framfylgt.
• Umsjón og eftirlit með framkvæmdum á vegum sveitar
félagsins, t.d. í nýbyggingum, veitum og hafnarmann
virkjum.
• Gerð lóðaleigusamninga á grundvelli lóðarblaðs og
samþykkts deiliskipulags.
• Yfirlestur eignaskiptasamninga og annarra skjala sem
heyra undir byggingasvið.
• Vinnur að framkvæmd og eftirliti með sorphirðu og urðun
sorps í sveitarfélaginu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Verkfræði, tæknifræði eða sambærilega menntun á
háskólastigi.
• Reynslu af og þekkingu á skipulags- og bygginga
málefnum sveitarfélaga.
• Reynslu af og þekkingu á verkeftirliti í mannvirkjagerð.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum samninganef-
ndar sveitarfélaga (SNS) við viðkomandi stéttarfélag.
Eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Guðmundur Elíasson man-
nvirkjastjóri, í síma 470 9019.
Mjóifjörður Norðfjörður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður
Fjarðabyggð er vaxandi sveitarfélag á Austurlandi og það fjölmennasta með ríflega 4.600 íbúa. Bæjarkjarnar þess eru sex talsins eða Mjóifjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðar-
fjörður, Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður. Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hverjum þeirra í samstarfi við stjórnsýslunefndir bæjarins og opinberar
fagstofnanir. Í mannauðsstefnu Fjarðabyggðar er áhersla lögð á vandaða stjórnsýsluhætti við ráðningar, gott starfsumhverfi og jöfn tækifæri karla og kvenna.
DÖGUNFramkvæmdastjóri
Rækjuverksmiðjan Dögun ehf. á Sauðárkróki óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Hæfniskröfur:
Góð enskukunnátta
Dögun ehf – rækjuvinnsla, útgerð
LAUGARDAGUR 4. janúar 2014 9