Fréttablaðið - 04.01.2014, Side 84
4. janúar 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
Jim Beckmann, starfsmaður
útvarpsstöðvarinnar KEXP í
Seattle í Bandaríkjunum, hefur
valið tuttugu bestu íslensku plötur
síðasta árs.
Fer Jim fögrum orðum um
íslenska listamenn og rómar
þá miklu hæfileika sem finnast
á eyjunni í Atlantshafinu.
Meðal nafna á listanum eru
Mammút með Komdu til mín
svarta systir, Sigur Rós með
Kveikur, Grísalappalísa með ALI,
Sin Fang með Flowers, Snorri
Helgason með Autumn Skies, Cell7
með Cellf, Ólafur Arnalds með
For Now I Am Winter, Lay Low
með Talking About the Weather,
Drangar með Dranga og Botnleðja
með Þegar öllu er á botninn hvolft.
Á vefsíðu stöðvarinnar stendur
enn fremur að staðið hafi til að
velja tíu bestu íslensku plöturnar
en vegna ógrynnis af góðum
plötum hafi það verið ómögulegt.
Því hafi verið ákveðið að velja
tuttugu bestu plöturnar.
Jim hlakkar einnig mikið til
tónlistarársins sem var að ganga
í garð og bíður í ofvæni eftir nýju
efni frá Sóleyju, For a Minor
Reflection, og enskri útgáfu
plötunnar Dýrð í dauðaþögn með
Ásgeiri Trausta. - lkg
Dásamar íslenska
tónlistarmenn
Útvarpsstöðin KEXP velur bestu íslensku plöturnar.
MEÐAL BESTU Mammút er á listanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FOLALD HEILUM
KROKKUMHÁ F
471 kr /. kg
F LA P
32 kr./kg
FOLALDALÆ
6 kr./kg.
Ú
PÖ
1 7 k /. kg
Í EÐA
L UM S
.
O LDAFRAM ARTUR
9 .
RI
59
RBEINING OG
KKUN
9 r .
Pa r 4 7 489 3 ð á @ hntani í síma 55 220 og 6 1 0 e a elmar sa un.is
anúar og febrú r 2014i sölu í l
Folaldakjöt af nýslátruðu
t j a
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Karlakórinn Heimir efnir til árlegra
tónleika í tilefni af þrettándanum í
kvöld klukkan 20.30 í Varmahlíð. Að
þessu sinni fær kórinn liðsinni frá
Garðari Thor Cortes sem syngur
einsöng. „Þetta eru tónleikar sem
kórinn hefur haldið í áratugi,“ segir
stjórnandi kórsins, Stefán Reynir
Gíslason.
„Ég er búinn að stýra þessum
kór í þrjátíu ár og þetta hefur verið
gert síðan ég byrjaði. Ég byrjaði
árið 1984 og kórinn var stofnaður
árið 1927. Það er sterk hefð fyrir
þessu og það hefur verið mjög góð
aðsókn,“ segir Stefán. Æfingar
hefjast hjá kórnum í október og
þetta eru alltaf fyrstu tónleikar
hans á starfsárinu.
„Á þessu ári flytjum við sama
prógramm 2. mars í Hofi á Akur-
eyri. Helmingurinn er hefðbundið
karlakórsprógramm. Hitt eru aríur,
sem Garðar Thor syngur með
okkur. Meðal efnis sem verður á
dagskrá er Kór prestanna eftir Moz-
art úr Töfraflautunni og fleiri klass-
ísk stykki. Svo kemur Garðar og
syngur ítalskar aríur og Bikarinn
eftir Eyþór Stefánsson og fleira.“ - ue
Garðar Thor Cortes
syngur einsöng
Árlegir tónleikar Karlakórsins Heimis í Miðgarði.
VÍGALEGIR Karlakórinn Heimir.