Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 1
LANDBÚNAÐUR Á rúmum áratug
hefur kartöflubændum fækkað úr
tvö hundruð í 32. Fækkunin kemur
til vegna lágs verðs og uppskeru-
brests vegna veðurs. Bein afleiðing
er minni framleiðsla og aukinn inn-
flutningur á erlendum kartöflum,
sem hefst fyrr en áður. Formaður
Félags kartöflubænda gagnrýnir
aðgerðarleysi stjórnvalda.
„Það er alveg ljóst að þetta er
búið hjá mönnum miklu fyrr nú en
áður,“ segir Bergvin Jóhannsson,
bóndi á Áshóli og formaður Félags
kartöflubænda, um áhrif fækkunar
kartöflu bænda á uppskeruna. Berg-
vin segir að á árum áður hafi upp-
skera síðasta árs enst fram að nýrri
uppskeru, en nú hefjist innflutning-
ur á kartöflum snemma á vorin.
„Það er ekkert óeðlilegt að flytja
inn nýjar erlendar kartöflur á
sumrin á meðan beðið er eftir þeim
íslensku, en nú er uppskera frá síð-
asta ári flutt inn,“ segir Bergvin. Ný
erlend uppskera kemur til landsins
í maí eða júní, en sú íslenska endist
yfirleitt fram í marsmánuð.
Bergvin segir að um árabil hafi
kaupendur ráðið nærri einhliða
verði til bænda. Hann segir lágt
verð hamla framþróun og kallar
eftir ríkisstyrkjum til fjárfestinga.
- eb, þj / sjá síðu 6
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
1 SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
21. janúar 2014
17. tölublað 14. árgangur
Nýr heimur opnast
Foreldraverkefnið Söguskjóður á
Dalvík miðar að því að efla erlenda
foreldra til þátttöku í skólastarfi og
hefur haft víðtæk áhrif. 2
Venja af nikótíni Ráðgjöf í reyk-
bindindi aðstoðar sífellt fleiri sem
vilja hætta að taka í vörina eða tyggja
nikótíntyggjó. 4
Björgunarmiðstöð Keflavíkurflug-
völlur er heppilegasta staðsetningin
fyrir alþjóðlega björgunarmiðstöð
segir utanríkisráðherra. 10
Auðnum misskipt 85 ríkustu
jarðarbúarnir eiga jafn mikið og
helmingur alls mannkyns samkvæmt
skýrslu hjálparsamtaka. 12
Vissulega
er óvissa
tengd þessari
aðgerð að
skattleggja
þrotabú
bankanna,
sumir telja þá leið færa og
aðrir ekki.
Katrín Ólafsdóttir
lektor við viðskiptadeild HR
Kartöflubændur að komast á válista
Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi stöðu kartöflu-
bænda í umræðum um landbúnaðarafurðir á Alþingi í síðustu viku. Hann sagði
búgreinina vera að komast á „válista“ vegna uppskerubrests og lágs verðs.
Bergvin staðfestir að sú mynd sem Haraldur dró upp sé nærri lagi.
SPORT Ísland mætir Svíþjóð í Abu
Dhabi í dag en þetta er fyrsti leikur
knattspyrnulandsliðsins á árinu. 31
VERÐBÓLGAN
ER DÝRKEYPT
STÖNDUM SAMAN.
HÖLDUM AFTUR AF
VERÐHÆKKUNUM,
AUKUM KAUPMÁTT
OG TRYGGJUM
STÖÐUGLEIKA.
ALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
MEIRA EN 1000
VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI
Sjá úrvalið á ht.is
SKOÐUN Læknir getur stundum
ekkert sannreynt við útgáfu vottorða,
skrifar Teitur Guðmundsson. 15
MENNING Sigríður Eyrún Friðriks-
dóttir og Karl Olgeirsson eru ástfangin
og keppa í undankeppni Eurovision. 34
Bolungarvík 2° NA 7
Akureyri 3° A 5
Egilsstaðir 5° A 9
Kirkjubæjarkl. 6° A 8
Reykjavík 4° NA 8
MIKIL VÆTA SA--TIL Í dag verða
víðast norðaustan eða austan 8-15 m/s.
Rigning, einkum SA-til en úrkomulítið
NV-lands. Hiti 1-7 stig. 4
EKKERT MÚÐUR Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður var ekki ánægður með framgöngu Stojanche Stoilov (annar frá
hægri), línumanns Makedóníu, í gær. Strákarnir okkar unnu í gær sigur á Makedóníumönnum, 29-27, eftir mikinn baráttuleik í
Herning í Danmörku. Ásgeir Örn Hallgrímsson var valinn maður leiksins en hann skoraði sex mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
EFNAHAGSMÁL Á meðan pening-
arnir streyma til annarra landa
sem urðu illa úti í alþjóðlegu
fjármálakreppunni er Ísland úti
í kuldanum á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum.
Um þetta er fjallað í Inter-
national Financing Review, þar
sem staða Íslands er borin saman
við Írland, Portúgal og Grikk-
land. Þróunin hér á landi er rakin
til stjórnarskipta og ósveigjan-
leika stjórnvalda í viðræðum við
kröfuhafa föllnu bankanna.
Katrín Ólafsdóttir, lektor í hag-
fræði við viðskiptadeild Háskól-
ans í Reykjavík, segir erfitt að
fullyrða hvaða þættir hafi áhrif
á kjörin sem ríkinu bjóðast í
skuldabréfaútgáfu erlendis.
Líklega hefur öll óvissan mest
áhrif í þeim efnum, segir Katrín.
„Vissulega er óvissa tengd þess-
ari aðgerð að skattleggja þrota-
bú bankanna, sumir telja þá leið
færa og aðrir ekki,“ bendir hún á.
Eins kunni að spila inn í áhyggjur
af því að fyrirhuguð skuldanið-
urfelling lengi í gjaldeyrishöft-
unum. „Þannig að mögulega er
verið að horfa til þess líka.“
Í umfjöllun International Fin-
ancing Review er bent á að frá
því að ný ríkisstjórn tók við
völdum hafi vextir á fimm ára
skuldabréf ríkisins farið úr 4,1%
í 6,4% fyrr í þessum mánuði.
„Á sama tíma hafa sambærileg
kjör á írska ríkispappíra náð nýju
lágmarki á evrusvæðinu frá því
að Írland sneri aftur á fjármála-
markaði með 1,8% vöxtum. Og
fimm ára vextir Portúgals, sem
einnig hefur sótt sér fé á mark-
aði á ný, hafa farið niður í 3,8%.“
- óká / sjá síðu 8
Peningarnir streyma til annarra landa sem urðu illa úti í fjármálakreppunni:
Óvissa hefur líklega mest áhrif
HANDBOLTI Strákarnir okkar
halda enn í veika von um að
komast áfram í undanúrslit EM í
handbolta eftir sigur á Makedón-
íu í gær, 27-22. Vonin er fólgin í
því að vinna ógnarsterkt lið Dan-
merkur á morgun en stóla einnig
á að heimsmeistarar Spánverja
tapi fyrir Makedóníu. Heims-
meisturum Spánar dugir jafnt-
efli í leiknum til að fara í undan-
úrslitin með Dönum.
Danir tryggðu sér efsta sæti
milliriðilsins með sigri á Ung-
verjalandi í gærkvöldi og um leið
sæti í undanúrslitunum.
Ísland á góða möguleika á að
spila um fimmta sætið á EM en
til þess þurfa strákarnir að hafna
í þriðja sæti riðilsins. Ungverjar
geta enn hrifsað það sæti af
okkar mönnum en þurfa þá að
vinna Austurríki, treysta á að
Ísland tapi og enda með betra
markahlutfall.
- esá / sjá síðu 30
Möguleikar Íslands á EM:
Spánverjar
verða að tapa
Kartöfluuppskeran
klárast fyrr en áður
Kartöflubændum fækkar vegna lágs verðs og uppskerubrests vegna veðurs. Þing-
maður segir búgreinina vera að komast á válista. Kallað er eftir ríkisstyrkjum.
KVIKMYNDIR Hin sænsk-íslenska
Edda Magnason hreppti í gær-
kvöldi sænsku Gullbjölluna
fyrir hlutverk sitt sem Monica
Zetter lund í
kvikmyndinni
Monica Z.
Gullbjallan
er heitið á verð-
launum sænsku
kvikmynda-
akademíunn-
ar og svipar
til íslensku
Eddunnar.
Íslendingur-
inn Sverrir Guðnason leikur á
móti Eddu í myndinni. Hann
hreppti verðlaun sem besti karl-
kyns aukaleikarinn.
Myndin er í leikstjórn Pers
Fly og segir frá tónlistarferli
og ástum Monicu Zetterlund á
dramatískan hátt.
- js
Íslendingar verðlaunaðir:
Tvö hrepptu
Gullbjöllur
EDDA
MAGNASON