Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 2
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNSÝSLA Innanríkisráðu-
neytið hefur sent ríkissak-
sóknara bréf vegna beiðni þess
síðarnefnda um upplýsing-
ar í tengslum við kæru Tony
Omos á hendur starfsmönnum
innanríkis ráðuneytisins.
Í bréfinu kemur fram að „sér-
stök skoðun ráðuneytisins og
rekstrarskrifstofu stjórnarráðs-
ins gefi ekki tilefni til að ætla
að trúnaðargögn hafi verið send
óviðkomandi aðilum frá ráðu-
neytinu“. Samkvæmt tilkynn-
ingu á vef ráðuneytisins er þó
ekki heimilt að birta bréfið vegna
þess að það inniheldur persónu-
greinanlegar upplýsingar. - js
Ráðuneytið svarar beiðni:
Saksóknari fær
umbeðin svör
SPURNING DAGSINS
Bókamarkaður
2014
Arnar, er gagnavertíð í vænd-
um?
„Vonandi, geymsla gagna í gagna-
veri myndi tvímælalaust gagnast
okkur.“
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á
Blönduósi, er vongóður um að gagnaver rísi á
Blönduósi á næstu árum.
MENNING Útilistaverkið Heimar í heimi eftir
Sigurð Guðmundsson verður sett upp á hafn-
arkantinum við Rastargötu í Vesturbugt og
fær þar stöðuleyfi í tvö ár.
Listaverkið er gjöf CCP til Reykjavíkur-
borgar í tilefni tíu ára afmælis tölvufyrir-
tækisins. Verkið er unnið í Kína í granít,
stál, steypu og ál og verður fimm metra hátt.
Eins og áður hefur komið fram verða
nöfn um fimm hundruð þúsund
áskrifenda að Eve-Online tölvu-
leik CCP letruð á verkið sem
standa mun við höfuðstöðvar
CCP á Grandagarði.
„Um er að ræða bráðabirgða-
ráðstöfun svo verkið eigi sér
samastað á meðan framleiðsla
þess og flutningur eru í gangi
vegna vígslu þess 1. maí,“ segir
í umsögn skipulagsfulltrúa
sem samþykkt var í
skipulagsráði borg-
arinnar. - gar
Skipulagsráð samþykkir staðsetningu á útilistaverki sem CCP færir borginni:
Heimar í heimi á Rastargötu
HEIMAR Í HEIMI Í VESTURBUGT Listaverk
Sigurðar Guðmundssonar fær samastað rétt við
höfuðstöðvar CCP. SAMSETT MYND
MENNTAMÁL Jolanta Brandt hafði
unnið við fiskvinnslu á Dalvík
í nærri fjögur ár þegar henni
bauðst að taka þátt í verkefni sem
miðar að því að efla erlenda for-
eldra til þátttöku í leikskólum og
skólum bæjarins. Eftir þátttöku í
verkefninu áttaði hún sig á því að
hún yrði að hætta í fiskvinnslu og
fara út á meðal fólks til þess að
læra loksins að tala íslensku.
„Söguskjóðuverkefnið hjálp-
aði mér að opnast meira og sjá
að ég þarf að umgangast íslenskt
fólk. Nú þekki ég líka fleiri og
þegar ég fer í búðina hitti ég allt-
af einhvern til að tala við, en það
gerði ég ekki áður,“ segir Jolanta
Brandt, sem er ættuð frá Pól-
landi og styður nú við pólsk börn
í grunnskóla Dalvíkur.
Jolanta tók tvisvar þátt í Sögu-
skjóðuverkefni Dalvíkurbyggðar,
þar sem foreldrar hittast og útbúa
skjóður með sögum og leikjum
sem þeir nota svo með börnum
sínum. „Efnið er allt á íslensku, en
við settum líka hljóðbækur fyrir
foreldra sem ekki treysta sér til
að lesa íslensku,“ útskýrir Jolanta.
Eftir að hafa tekið öll íslensku-
námskeið sem buðust var Jolanta
orðin þreytt á því að geta ekki
notað það sem hún lærði. „Ég var
að vinna í frystihúsinu, sem var
ekki vont en það var ekki gaman.
Ég reyndi að læra íslensku en not-
aði hana aldrei,“ segir Jolanta.
Eftir að hafa tekið þátt í Sögu-
skjóðuverkefninu ákvað Jolanta
að hætta í frystihúsinu og leita sér
að nýju starfi. Líf hennar hefur
tekið miklum breytingum síðan.
„Já, þetta er miklu skemmtilegra.
Fyrir ári var ég meira hluti af
pólska samfélaginu. Ég var allt-
af læst heima. En núna er ég ekki
feimin við að spyrja íslenska for-
eldra hvort börnin mín megi leika
við börnin þeirra og ég er ekki
feimin við að tala við börn sem
koma í heimsókn,“ segir Jolanta
og staðfestir að breytingin hefur
haft áhrif á alla fjölskylduna.
Jolanta segir Söguskjóðuverk-
efnið opna nýjan heim. „Þegar ég
var bara í kringum pólska sam-
félagið heyrði ég oft að það væru
miklir fordómar gagnvart útlend-
ingum. Nú veit ég að það er ekki
rétt. Íslenskt fólk gerir margt til
að fá útlendinga til að taka þátt og
vera í góðum samskiptum,“ bend-
ir hún á. eva@frettabladid.is
Nýr heimur opnast
Foreldraverkefnið Söguskjóður í Dalvíkurbyggð miðar að því að efla erlenda for-
eldra til þátttöku í skólastarfi, en hefur haft víðtæk áhrif. Fiskvinnslukona ákvað
eftir þátttöku í verkefninu að finna sér nýtt starf og læra loksins að tala íslensku.
SÖGUSKJÓÐUR Jolanta Brandt (til hægri) ræðir sögur og leiki við foreldri í verk-
efninu söguskjóður á Dalvík.
Söguskjóðuverkefnið á Dalvík er eitt fimm verkefna sem tilnefnd eru
til Nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu 2014 í flokki velferðar- og
samfélagsmála. „Það hefur orðið gríðarleg vakning í fjölmenningar-
málum hér á Dalvík,“ segir Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri á fræðslu-
og menningarsviði Dalvíkurbyggðar. Hún segir íbúasamsetninguna hafa
breyst hratt og vísbendingar verið um að erlendir foreldrar tækju ekki
sama þátt í skóla- og íþróttastarfi barna sinna og aðrir. „Reynslan sýnir
okkur að það er ekki með vilja gert. Það sem vantaði voru upplýsingar
um það sem var í boði,“ segir Hildur Ösp. Helga Björt Möller, kennsluráð-
gjafi hjá bænum, ferðaðist til Hollands og kynnti sér aðferðafræðina
að baki Söguskjóðuverkefninu. Verkefnið var í kjölfarið þróað í skólum
Dalvíkur síðasta ári með góðum árangri.
Tilnefnt til nýsköpunarverðlauna
LÖGREGLUMÁL „Þetta er sannar-
lega trúnaðarbrot. Það er gert
ráð fyrir því í almennum hegn-
ingarlögum að gögn í þessum
málum séu ekki gerð opinber,“
segir Sveinn Andri Sveinsson
hæstaréttarlögmaður um birt-
ingu á rannsóknargögnum í kyn-
ferðisbrotamáli á netinu.
„Ákæruvaldið ætti að fylgja
þessu máli eftir,“ bætir Sveinn
Andri við. Hann telur allt benda
til þess að sá sem beri ábyrgð á
lekanum hafi gerst brotlegur
v ið á k væ ði
almennra hegn-
ingarlaga og
þurfi að sæta
refsiábyrgð.
Gögnin voru
bir t á net-
i nu s íð a s t a
sunnudag og
hafði móðir
meints brota-
þola aðkomu að
birtingunni. „Við gáfum okkar
leyfi fyrir birtingunni,“ segir
móðirin, sem vildi ekki láta nafns
síns getið.
„Við höfum alls staðar komið
að lokuðum dyrum og erum við
það að gefast upp,“ bætir hún
við. Hún segir birtingu gagnanna
vera örþrifaráð.
Gögnin sem um ræðir eru
afar ítarleg og telja tugi blað-
síðna. Í þeim koma meðal annars
fram nöfn meints brotaþola og
grunaða. Þá má finna ljósmynd-
ir, vitnaskýrslur og ýmis önnur
rannsóknargögn.
Málið var til rannsóknar hjá
lögreglu og þann 2. október 2012
ákvað ríkissaksóknari að fella
málið niður.
Í rökstuðningi ríkissaksókn-
ara fyrir niðurfellingunni kemur
fram að framburður móður
meints brotaþola um að hann hafi
orðið fyrir einhvers konar kyn-
ferðisofbeldi sé ekki dreginn í
efa.
Ríkissaksóknari mat það þó
svo að ákæra í málinu væri ekki
líkleg til sakfellingar. - js
Hæstaréttarlögmaður telur einsýnt að ábyrgðaraðilar birtingar á rannsóknargögnum hafi brotið lög:
Gætu þurft að sæta refsiábyrgð vegna leka
SVEINN ANDRI
SVEINSSON
STJÓRNSÝSLA Fjármála- og efna-
hagsráðherra hefur beint þeim
eindregnu tilmælum til allra fyrir-
tækja í ríkiseigu að halda aftur af
gjaldskrárhækkunum hjá sér.
Bjarni Benediktsson hefur af
þessu tilefni sent bréf til stjórna
þessara fyrirtækja.
„Mikilvægt er að fyrirtæki í
ríkiseigu taki virkan þátt í þeirri
viðleitni að draga úr hækkun
verðlags og efni ekki til hækkana
umfram það sem algjörlega nauð-
synlegt getur talist,“ segir meðal
annars í bréfinu.
Tilmælin eru liður í viðleitni
ríkisstjórnarinnar til að halda
aftur af verðbólgu. - js
Gegn verðbólguhækkun:
Ríkisfélög eiga
ekki að hækka
FLÓTTAFÓLK Suður-Súdanar flýja yfir landamærin Suður-Súdan og yfir til Úganda.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SUÐUR-SÚDAN Viðræður um vopnahlé milli Salva Kiir, forseta Suður-
Súdan og Rieks Machar, fyrrum varaforseta landsins, frestuðust í gær
vegna tilrauna beggja aðila til þess að ná yfirhöndinni í bardagan-
um áður en samningaviðræður hefjast. Lausn pólitískra fanga er eitt
lykil atriða sem liggja fyrir í samningaviðræðunum.
Um 500.000 manns eru á flótta eftir mánaðarlangan bardaga milli
stjórnvalda og uppreisnarmanna. Á sunnudag drukknuðu tvö hundruð
manns í Nílarfljóti þegar þeir flúðu bardaga í borginni Malakal. - eb
Um hálf milljón manns er talin vera á flótta í Suður-Súdan:
Viðræður um vopnahlé frestast