Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 11

Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. janúar 2014 | FRÉTTIR | 11 Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Firmaskrá hjá RSK Athygli er vakin á því að 1. janúar 2014 tók fyrirtækja- skrá ríkisskattstjóra við firmaskráningum sem áður fóru fram hjá sýslumannsembættum landsins. Einstaklingsfirmu, sameignarfélög og samlagsfélög eru nú skráð hjá fyrirtækjaskrá RSK. Ennfremur skal framvegis tilkynna allar breytingar á þessum félagaformum til fyrirtækjaskrár RSK. Frekari upplýsingar má nálgast á rsk.is og hjá ríkisskattstjóra á Laugavegi 166. SVÍÞJÓÐ Níutíu og þriggja ára gamall maður er grunaður um að hafa orðið áttatíu og níu ára gömlum herbergisfélaga sínum að bana á hjúkrunarheimili í Karlshamn í Svíþjóð aðfaranótt mánudags. Samkvæmt frétt á vef Aftonbladet höfðu mennirnir rif- ist síðdegis á sunnudag en ekki kom þá til handalögmála. Hinn grunaði, sem er slasaður, lá á sjúkrahúsi í gær. Ekki var hægt að yfirheyra hann vegna ástands hans. - ibs Herbergisfélagar slógust: 93 ára grunað- ur um að hafa drepið 89 ára FRAMKVÆMDIR Vísitala byggingar- kostnaðar er reiknuð út mánaðarlega. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EFNAHAGSMÁL Vísitala byggingar- kostnaðar lækkar um 0,1 prósent milli desember og janúar. Á síð- ustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,5 prósent. Vísitalan er reiknuð um miðjan mánuðinn og var nú 118,9 stig, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. „Verð á innlendu efni hækkaði um 0,4 prósent (áhrif á vísitölu 0,1 prósent) en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,9 prósent (-0,2 prósent),“ segir á vef Hag- stofunnar. - óká Vísitala byggingarkostnaðar: Hefur lækkað um 0,1 prósent VIÐSKIPTI Alþjóðlega lánshæfis- matsfyrirtækið Standard & Poor’s (S&P) gefur Landsbankan- um lánshæfiseinkunnina BB+ og telur horfurnar stöðugar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu bankans þar sem vísað er í mat S&P sem birt var í gær. Þar kemur fram að S&P telji Landsbankann búa að umtals- verðu svigrúmi í lausa- og eigin- fjárstöðu þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. Arion banki fékk sömu láns- hæfiseinkunn í mati S&P 10. janúar síðastliðinn. - hg Telur horfurnar stöðugar: S&P gaf Lands- bankanum BB+ MENNTAMÁL Leikskólabörn á höf- uðborgarsvæðinu hafa á sumum leikskólum þurft að húka inni svo dögum skiptir vegna mikill- ar hálku á leiksvæðum. „Börnin hafa ekki getað farið út. Þetta hefur bitnað mikið á yngstu börnunum sérstaklega,“ segir Hrafnhildur Konný Hákon- ardóttir, leikskólastjóri á leik- skólanum Austurborg í Reykja- vík. „Við erum með börn hérna frá rúmlega eins árs aldri og þau fóta sig ekkert í þessari hálku sem hefur verið,“ bætir Hrafn- hildur við. Á Austurborg eru börn upp úr rúmlega eins árs aldri. Hrafn- hildur segir ástandið helst bitna á þeim yngstu, enda eigi þau erf- iðast með að fóta sig í hálkunni. „Þetta eru kraftmikil börn og þau þurfa á útiverunni að halda. Þetta hafa því stundum verið dálítið erfiðir dagar,“ segir Hrafnhildur. Hún segir að um örþrifaráð sé að ræða, enda vilji leikskól- inn ekki taka áhættu á slysum í hálkunni. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa ekki haft undan að sanda við leikskóla borgarinnar og aðrar stofnanir undanfarnar vikur. Það hafi þó gengið misvel vegna tíð- arfarsins. Betur hafi gengið með göngu- og hjólastíga á leikskóla- svæðum, enda séu þeir gjarnan upphitaðir. Upplýsingafulltrúi Reykjavík- urborgar hefur beint þeim til- mælum til leikskólanna að halda börnum innandyra í stað þess að hætta á slys utandyra. - js, mlþ Dæmi eru um að leikskólabörn hafi ekki fengið að fara út á leikskólum svo dögum skiptir vegna hálku: Börn þurfa að húka inni vegna hálkunnar HÁLKA Börnin á Grænuborg eiga erfitt með að fóta sig á svellinu á leikskóla- lóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HÖFUÐSTÖÐVARNAR S&P telur Lands- bankann búa að talsverðu svigrúmi þegar komi að lausa- og eiginfjárstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.