Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 12
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12 SVISS „Það er hreint yfirþyrm- andi að á 21. öldinni skuli helm- ingur allra íbúa jarðarinnar, þrír og hálfur milljarðar manna, ekki eiga meira en pínulítill hópur fyrirmenna sem kæmust auðveldlega allir fyrir í einum tveggja hæða strætisvagni,“ er haft eftir Winnie Byanyima á fréttavef breska dagblaðsins The Guardian. Byanyima er framkvæmda- stjóri alþjóðlegu hjálparsamtak- anna Oxfam. Hún er á leiðinni til Davos í Sviss þar sem hún tekur þátt í hinni árlegu ráðstefnu margra helstu áhrifamanna heims um efnahagshorfurnar. Í tilefni ráðstefnunnar hafa samtökin tekið saman skýrslu um vaxandi misskiptingu auðs. Þar kemur meðal annars fram að 85 auðugustu menn heims, sam- kvæmt lista tímaritsins Forbes, eiga jafn mikið og nemur öllum veraldlegum eignum fátækari helmings mannkyns, alls 3,5 milljarða manna. Í skýrslunni er skorað á alla þá auðkýfinga sem koma saman á ráðstefnu í Davos í Sviss nú í vikunni, að gera sitt til þess að draga úr misskiptingu auðs. Bent er á að Alþjóðlega efnahags- ráðið, sem heldur samkomurn- ar í Davos, hafi sjálft komist að þeirri niðurstöðu að sá gríðar- legi tekjumunur, sem farið hefur vaxandi á síðustu árum, sé meðal þess sem helst ógnar lífskjörum jarðarbúa á næstu misserum. Fram kemur í skýrslunni að sjö af hverjum tíu jarðarbúum búa í landi þar sem efnahagsleg mis- skipting hefur aukist á síðustu þrjátíu árum. gudsteinn@frettabladid.is Aðeins 85 eiga jafnt og helft mannkyns Rétt áður en samkoma helstu áhrifamanna heims hefst í Davos í Sviss senda hjálparsamtökin Oxfam frá sér skýrslu um vaxandi misskiptingu auðs í heiminum. Í skýrslunni kemur fram að 85 menn eiga jafn mikið og helmingur alls mannkyns. Þeir sem koma saman á Alþjóðlegu efnahagsráðstefnuna í Davos hafa völd til þess að snúa við hinni hröðu aukningu sem orðið hefur á ójöfnuði. Oxfam skorar á þá að heita því að þeir muni: ■ Ekki notfæra sér skattaskjól til að koma sér hjá því að greiða skatta í heimalandi sínu eða í löndum þar sem þeir fjárfesta og starfa ■ Ekki notfæra sér auðæfi sín til sækjast eftir pólitískri greiðvikni sem grefur undan lýðræðisvilja meðborgara þeirra ■ Birta opinberlega upplýsingar um allar fjárfestingar sínar í fyrirtækjum og sjóðum sem þeir á endanum njóta góðs af sem eigendur ■ Styðja stighækkandi skattlagningu á eignir og tekjur ■ Skora á stjórnvöld að nota skatttekjur sínar til þess að útvega öllum borgurum heilbrigðisþjónustu, menntun og félagslega vernd ■ Tryggja lágmarkslaun í öllum fyrirtækjum sem þeir eiga eða stjórna ■ Skora á aðra auðjöfra að ganga í lið með þeim í þessum heitstrengingum. Áskoranir Oxfam til auðkýfinga í Davos FÁTÆKT 85 ríkustu menn í heimi eiga meira en helmingur mannkyns samkvæmt skýrslu hjálparsamtakanna Oxfam. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL Innanríkisráðherra lagði í gær fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum um útlendinga. Meðal annars er lagt til að ráðherra skipi kærunefnd útlendingamála, sem taki við kærum vegna ákvarðana Útlend- ingastofnunar. Hingað til hefur innanríkis- ráðuneytið tekið við kærunum, en sú framkvæmd hefur verið gagn- rýnd á þeim forsendum að ráðu- neytið geti ekki talist óhlutdrægur úrskurðaraðili í málum undirstofn- ana sinna. Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að hún tæki undir gagnrýni á núgildandi framkvæmd og hún teldi brýnt að mannrétt- indasamtök ættu aðild að kæru- nefndinni til að tryggja sjálfstæði hennar. Þá sagði ráðherra markmið frumvarpsins vera að stytta þann tíma sem hælis leitendur þurfa að bíða eftir niðurstöðu í málum sínum og lækka kostnað ríkis- ins við umönnun hælisleitenda. Hún sagði Íslendinga eiga að vera jákvæða gagnvart því að taka á móti einstaklingum sem sannar- lega þurfa á alþjóðlegri og póli- tískri vernd að halda. Hanna Birna sagði mikilvægt að skoða hvort Íslendingar eigi að taka í auknum mæli á móti flóttafólki, sem þegar hefur fengið viðurkenn- ingu á stöðu sinni sem flóttamenn. „Við vitum að við höfum innviði sem geta tekist á við það og við eigum að vera hugrökk hvað þetta varðar,“ sagði hún. - eb Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra leggur fram breytingar á lögum um útlendinga: Markmiðið er að stytta bið hælisleitenda SÝRLAND, AP Sýrlenskir stjórnarandstæðingar hafa hótað því að taka ekki þátt í friðarviðræðum, sem hefjast eiga í Genf á morgun. Stjórnarandstæðingarnir geta engan veginn sætt sig við að fulltrúar Írans taki þátt í viðræð- unum, en Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, sendi þeim formlegt boð um það á sunnudag. Erfiðlega hefur gengið að fá fulltrúa bæði stjórnvalda og stjórnarandstæðinga í Sýrlandi til að taka þátt í viðræðunum. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi, sem nú hefur geisað árum saman, hefur kostað meira en 130 þúsund manns lífið. Milljónir manna þurfa nú á neyðar- aðstoð að halda í landinu og flóttamenn hafa flykkst hundruðum þúsunda saman til nágrannalandanna. Íranar hafa aðstoðað Bashar al Assad Sýrlands- forseta allt frá því átökin hófust árið 2011. Þeir hafa útvegað honum ráðgjafa, peninga og vígbúnað. Rússar, sem í haust fengu Sýrlendinga til að fall- ast á að láta eyða efnavopnum sínum, hafa lagt áherslu á að Íranar taki þátt í viðræðunum. - gb Sýrlenskir stjórnarandstæðingar neita að hafa Írana við samningsborðið: Sýrlandsviðræður í uppnámi BAN KI-MOON Bauð Írönum að senda fulltrúa til viðræðnanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Skipafraktflutninga- deild kínverska skipafélagsins Coscon hefur skrifað undir sam- komulag við Eimskip um aukið samstarf. Fjallað er um málið á kínverska fréttavefnum SinoShip News. Haft er eftir Coscon að sam- komulagið feli í sér aukna sam- eiginlega fraktflutninga, auk þess sem rætt hafi verið mögu- legt samstarf í fraktflutningum í Evrópu, siglingum yfir norður- skautið og skipasmíðum. - óká Lýsa yfir vilja til samstarfs: Coscon og Eim- skip auka tengsl Við vitum að við höfum innviði sem geta tekist á við [fleiri flóttamenn] og við eigum að vera hugrökk. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.