Fréttablaðið - 21.01.2014, Síða 15

Fréttablaðið - 21.01.2014, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 21. janúar 2014 | SKOÐUN | 15 Það er þekkt að læknar eru reglubundið beðnir um að gefa út vottorð vegna veikinda skjól- stæðinga sinna, einnig vegna starfshæfni eða annarrar hæfni sem þykir þurfa læknisfræði- lega nálgun og staðfestingu eins og við stjórnun ökutækja, skipa og flugvéla svo eitthvað sé nefnt. Þá er snar þáttur heim- ilislækna sem og annarra lækna orðinn að votta um ástand skjól- stæðinga með tilliti til trygg- ingartöku þeirra, gagnvart hinu opinbera og lífeyrissjóð- um vegna langvarandi veikinda eða jafnvel ferða viðkomandi innanlands þegar hann sækir sér læknishjálp. Læknisvottorð geta verið gögn í dómsmálum og þurfa læknar að geta staðið við þau fyrir dómi ef svo ber undir. Þetta er býsna mikil skrif- finnska og talsverður munur á því hvaða augum læknar líta þessi vottorð en samkvæmt reglugerð um útgáfu læknisvott- orða nr. 586/1991 segir orðrétt í fyrstu grein: „Lækni ber skylda til að votta samskipti sín og sjúk- lings, óski sjúklingur eftir því, eftir atvikum foreldri eða for- ráðamaður eða annar umboðs- maður hans.“ Þá getur verið óskað eftir vottorði læknis eins og þekkt er af hálfu tryggingar- félags eða opinberra aðila eins og sýslumanns eða flugmála- stjórnar samanber hér að ofan. Þetta er ekki alltaf svona auðvelt því í þriðju grein segir: „Lækn- ir skal ekki staðhæfa annað í vottorði en það sem hann hefur sjálfur sannreynt,“ og þar liggur flækjustig málsins. Óljós viðmið Oft er um að ræða vottorð þar sem er illa skilgreint hvað þarf til að standa eða falla á skoðun, viðmið eru óljós varðandi marga þætti og standa aðrar þjóðir okkur mun framar hvað þetta snertir. Sem dæmi má nefna sjómenn sem þurfa starfshæfn- isvottorð vegna vinnu sinnar, ýmislegt er mælt og skoðað en viðmið ekki vel skilgreind, það er háð mati læknisins. Ólíkt því sem er t.d í Noregi, Bandaríkj- unum og víðar. Hið sama gildir um ökuleyfisvottorð í dag. Það er í lagi ef slíkt mat væri sam- ræmt sem það er hins vegar alls ekki. Eitt af fáránlegri vottorð- um sem læknar eru beðnir að skrifa út í dag er vegna skot- vopnaleyfis, en þar ber að votta um líkamlega og andlega heilsu viðkomandi og hvort hann sé hæfur til að bera skotvopn, en það liggja ekki til grundvallar nein viðmið og er þetta alger- lega háð mati hvers læknis fyrir sig. Það sér hver heilvita maður að þetta er ekki boðlegt. Sem dæmi um góð vinnubrögð varð- andi læknisfræðilegt starfshæfi er reglugerð um læknisskoðun þeirra sem stunda reykköfun. Þar er vel skilgreint hvað á að skoða, hvernig og sömuleiðis hvað kemur í veg fyrir að við- komandi hljóti leyfi. Einhliða umræða Læknirinn getur í nokkrum hluta þeirra vottorða sem hann gefur út dags daglega alls ekki sannreynt eitt eða neitt, heldur staðfestir hann frásögn skjól- stæðings. Það eru til dæmis vottorð vegna veikinda til atvinnurekenda og vegna fjar- veru frá skóla sem oftsinnis eru afgreidd í gegnum síma. Þarna getur verið mikið í húfi fyrir skjólstæðing læknisins en einnig fyrir atvinnurekandann í formi kjarasamningsbundinna ákvæða og réttinda. Læknar hafa almennt ekki góða innsýn inn í slíka samninga og eru held- ur ekki að velta fyrir sér mun- inum á milli þeirra hvað þessi atriði snertir. Því hættir þeim til að meðhöndla alla eins, sem er að vissu leyti rökrétt fyrir lækninn þegar hann hugsar um hagsmuni sjúklingsins sem hann á fyrst og fremst að gera. Þó má ekki gleyma því að á sama tíma og hann gerir það má hann ekki ganga á rétt vinnuveitandans. Það hvarflar ekki að mér að ætla að draga úr rétti sjúklinga, né heldur að gera lítið úr vinnu við læknisvottorð þar sem ég er sannfærður um að rétt sé með farið í yfirgnæfandi meirihluta tilfella. En mér þykir umræðan um „rétt“ vera dálítið einhliða hjá launþeganum þó svo ég þyk- ist vita að víða er pottur brotinn í samskiptum í atvinnulífinu. Vottorð vegna veikinda eru því í sumum tilvikum beinlínis notuð til þess að koma fólki sem er fullfrískt, en biturt sökum einhverra aðstæðna, í veikindi sem eiga sér enga raunveru- lega stoð. Þetta er sérstaklega algengt hjá einstaklingum sem hefur verið sagt upp störfum og eru á uppsagnarfresti. Sam- skiptavandi á vinnustað, van- líðan, einelti og heilsuspill- andi umhverfi auk annarra vandamála eiga sér farveg í markvissu heilsu- og vinnu- verndarstarfi innan fyrirtækja með fulltingi trúnaðarlæknis í vinnuverndarlöggjöfinni. Sé misbrestur á slíku starfi getur það leitt til aukinnar fjarveru vegna veikinda sem kunna að vera raunveruleg eða jafnvel ekki, en slíkt er vont fyrir alla hlutaðeigandi. Læknisvottorð, ómerkilegur pappír? HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Læknirinn getur í nokkrum hluta þeirra vottorða sem hann gefur út dags daglega alls ekki sann- reynt eitt eða neitt, heldur staðfestir frásögn skjól- stæðings. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Notaðir gæðabílar á einstöku verði. Nú gefst tækifæri til að eignast notaðan bíl á sérstökum kjörum. Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Kíkið inná: heklanotadirbilar.is Audi A4 2,0 TDI AT Árgerð 2012, dísil Ekinn 26.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.390.000 KJARAKAUP: 4.690.000 VW Tiguan Trend&Fun 2.0 TDI Árgerð 2012, dísil Ekinn 61.500 km, beinskiptur Ásett verð: 4.550.000 KJARAKAUP: 3.990.000 VW Polo 1.4 Comfortl. AT Árgerð 2011, bensín Ekinn 52.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 2.190.000 KJARAKAUP: 1.890.000 Komdu og skoðaðu úrvalið! Afsláttur: 700.000 Afsláttur: 560.000 Afsláttur: 300.000 Chevrolet Lacetti 1800 station Árgerð 2010, bensín Ekinn 34.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 1.950.000 KJARAKAUP: 1.590.000 Suzuki Grand Vitara Premium+ Árgerð 2011, bensín Ekinn 58.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 4.190.000 KJARAKAUP: 3.690.000 Mitsubishi ASX 4x4 1.8 Árgerð 2011, dísil Ekinn 28.000 km, beinskiptur Ásett verð: 3.950.000 KJARAKAUP: 3.400.000 Toyota Land Cruiser 150 GX Árgerð 2012, dísil Ekinn 67.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 8.550.000 KJARAKAUP: 7.590.000 Toyota RAV4 GX plus Árgerð 2013, bensín Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.770.000 KJARAKAUP: 5.370.000 Audi Q7 3.0 TDi Árgerð 2007, dísil Ekinn 126.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.990.000 KJARAKAUP: 5.290.000 Afsláttur: 360.000 Afsláttur: 500.000 Afsláttur: 550.000 Afsláttur: 960.000 Afsláttur: 400.000 Afsláttur: 700.000 MM Pajero 3,2 Instyle Árgerð 2012, dísil Ekinn 30.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 8.790.000 KJARAKAUP: 7.990.000 Afsláttur: 800.000 KJARAKAUP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.