Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 21. janúar 2014 | SKOÐUN | 15
Það er þekkt að læknar eru
reglubundið beðnir um að gefa
út vottorð vegna veikinda skjól-
stæðinga sinna, einnig vegna
starfshæfni eða annarrar hæfni
sem þykir þurfa læknisfræði-
lega nálgun og staðfestingu
eins og við stjórnun ökutækja,
skipa og flugvéla svo eitthvað sé
nefnt. Þá er snar þáttur heim-
ilislækna sem og annarra lækna
orðinn að votta um ástand skjól-
stæðinga með tilliti til trygg-
ingartöku þeirra, gagnvart
hinu opinbera og lífeyrissjóð-
um vegna langvarandi veikinda
eða jafnvel ferða viðkomandi
innanlands þegar hann sækir
sér læknishjálp. Læknisvottorð
geta verið gögn í dómsmálum og
þurfa læknar að geta staðið við
þau fyrir dómi ef svo ber undir.
Þetta er býsna mikil skrif-
finnska og talsverður munur
á því hvaða augum læknar líta
þessi vottorð en samkvæmt
reglugerð um útgáfu læknisvott-
orða nr. 586/1991 segir orðrétt í
fyrstu grein: „Lækni ber skylda
til að votta samskipti sín og sjúk-
lings, óski sjúklingur eftir því,
eftir atvikum foreldri eða for-
ráðamaður eða annar umboðs-
maður hans.“ Þá getur verið
óskað eftir vottorði læknis eins
og þekkt er af hálfu tryggingar-
félags eða opinberra aðila eins
og sýslumanns eða flugmála-
stjórnar samanber hér að ofan.
Þetta er ekki alltaf svona auðvelt
því í þriðju grein segir: „Lækn-
ir skal ekki staðhæfa annað í
vottorði en það sem hann hefur
sjálfur sannreynt,“ og þar liggur
flækjustig málsins.
Óljós viðmið
Oft er um að ræða vottorð þar
sem er illa skilgreint hvað þarf
til að standa eða falla á skoðun,
viðmið eru óljós varðandi marga
þætti og standa aðrar þjóðir
okkur mun framar hvað þetta
snertir. Sem dæmi má nefna
sjómenn sem þurfa starfshæfn-
isvottorð vegna vinnu sinnar,
ýmislegt er mælt og skoðað en
viðmið ekki vel skilgreind, það
er háð mati læknisins. Ólíkt því
sem er t.d í Noregi, Bandaríkj-
unum og víðar. Hið sama gildir
um ökuleyfisvottorð í dag. Það
er í lagi ef slíkt mat væri sam-
ræmt sem það er hins vegar alls
ekki. Eitt af fáránlegri vottorð-
um sem læknar eru beðnir að
skrifa út í dag er vegna skot-
vopnaleyfis, en þar ber að votta
um líkamlega og andlega heilsu
viðkomandi og hvort hann sé
hæfur til að bera skotvopn, en
það liggja ekki til grundvallar
nein viðmið og er þetta alger-
lega háð mati hvers læknis fyrir
sig. Það sér hver heilvita maður
að þetta er ekki boðlegt. Sem
dæmi um góð vinnubrögð varð-
andi læknisfræðilegt starfshæfi
er reglugerð um læknisskoðun
þeirra sem stunda reykköfun.
Þar er vel skilgreint hvað á að
skoða, hvernig og sömuleiðis
hvað kemur í veg fyrir að við-
komandi hljóti leyfi.
Einhliða umræða
Læknirinn getur í nokkrum
hluta þeirra vottorða sem hann
gefur út dags daglega alls ekki
sannreynt eitt eða neitt, heldur
staðfestir hann frásögn skjól-
stæðings. Það eru til dæmis
vottorð vegna veikinda til
atvinnurekenda og vegna fjar-
veru frá skóla sem oftsinnis
eru afgreidd í gegnum síma.
Þarna getur verið mikið í húfi
fyrir skjólstæðing læknisins en
einnig fyrir atvinnurekandann
í formi kjarasamningsbundinna
ákvæða og réttinda. Læknar
hafa almennt ekki góða innsýn
inn í slíka samninga og eru held-
ur ekki að velta fyrir sér mun-
inum á milli þeirra hvað þessi
atriði snertir. Því hættir þeim
til að meðhöndla alla eins, sem
er að vissu leyti rökrétt fyrir
lækninn þegar hann hugsar um
hagsmuni sjúklingsins sem hann
á fyrst og fremst að gera. Þó má
ekki gleyma því að á sama tíma
og hann gerir það má hann ekki
ganga á rétt vinnuveitandans.
Það hvarflar ekki að mér að
ætla að draga úr rétti sjúklinga,
né heldur að gera lítið úr vinnu
við læknisvottorð þar sem ég er
sannfærður um að rétt sé með
farið í yfirgnæfandi meirihluta
tilfella. En mér þykir umræðan
um „rétt“ vera dálítið einhliða
hjá launþeganum þó svo ég þyk-
ist vita að víða er pottur brotinn
í samskiptum í atvinnulífinu.
Vottorð vegna veikinda eru
því í sumum tilvikum beinlínis
notuð til þess að koma fólki sem
er fullfrískt, en biturt sökum
einhverra aðstæðna, í veikindi
sem eiga sér enga raunveru-
lega stoð. Þetta er sérstaklega
algengt hjá einstaklingum sem
hefur verið sagt upp störfum
og eru á uppsagnarfresti. Sam-
skiptavandi á vinnustað, van-
líðan, einelti og heilsuspill-
andi umhverfi auk annarra
vandamála eiga sér farveg í
markvissu heilsu- og vinnu-
verndarstarfi innan fyrirtækja
með fulltingi trúnaðarlæknis
í vinnuverndarlöggjöfinni. Sé
misbrestur á slíku starfi getur
það leitt til aukinnar fjarveru
vegna veikinda sem kunna að
vera raunveruleg eða jafnvel
ekki, en slíkt er vont fyrir alla
hlutaðeigandi.
Læknisvottorð,
ómerkilegur
pappír?
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Læknirinn getur í
nokkrum hluta þeirra
vottorða sem hann gefur út
dags daglega alls ekki sann-
reynt eitt eða neitt, heldur
staðfestir frásögn skjól-
stæðings.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Notaðir gæðabílar á
einstöku verði.
Nú gefst tækifæri til að eignast notaðan
bíl á sérstökum kjörum.
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
Audi A4 2,0 TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 26.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.390.000
KJARAKAUP: 4.690.000
VW Tiguan Trend&Fun
2.0 TDI Árgerð 2012, dísil
Ekinn 61.500 km, beinskiptur
Ásett verð: 4.550.000
KJARAKAUP: 3.990.000
VW Polo 1.4 Comfortl. AT
Árgerð 2011, bensín
Ekinn 52.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.190.000
KJARAKAUP: 1.890.000
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
Afsláttur: 700.000
Afsláttur: 560.000
Afsláttur: 300.000
Chevrolet Lacetti
1800 station Árgerð 2010, bensín
Ekinn 34.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 1.950.000
KJARAKAUP: 1.590.000
Suzuki Grand Vitara
Premium+ Árgerð 2011, bensín
Ekinn 58.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.190.000
KJARAKAUP: 3.690.000
Mitsubishi ASX 4x4 1.8
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 28.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.950.000
KJARAKAUP: 3.400.000
Toyota Land Cruiser
150 GX Árgerð 2012, dísil
Ekinn 67.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 8.550.000
KJARAKAUP: 7.590.000
Toyota RAV4 GX plus
Árgerð 2013, bensín
Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.770.000
KJARAKAUP: 5.370.000
Audi Q7 3.0 TDi
Árgerð 2007, dísil
Ekinn 126.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.990.000
KJARAKAUP: 5.290.000
Afsláttur: 360.000
Afsláttur: 500.000
Afsláttur: 550.000
Afsláttur: 960.000
Afsláttur: 400.000
Afsláttur: 700.000
MM Pajero 3,2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 30.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 8.790.000
KJARAKAUP: 7.990.000
Afsláttur: 800.000
KJARAKAUP