Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 28
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
„Það er svolítill leikur í sýning-
unni, hún er unnin út frá pæling-
um um gallabuxur og boli sem
voru fatnaður verkamanna en þró-
uðust síðan í að verða föt uppreisn-
argjarnra ungmenna með Marlon
Brando og James Dean í farar-
broddi. Síðar urðu gallabuxur og
bolir tískufatnaður og eru enn,“
segir Anna María Lind Geirsdótt-
ir myndlistarmaður um efnivið-
inn í listaverkum sem hún sýnir í
SÍM-salnum í Hafnarstræti 16 um
þessar mundir.
Anna María er sjálfstætt starf-
andi myndlistarmaður. Hún vinn-
ur í vefstól og stundar spuna-
gjörninga og kveðst hafa ofið
verkin í SÍM-salnum sérstaklega
inn í það rými. Hún klippir og
sker niður fatnaðinn þannig að
hann myndi þræði. Gallabuxurn-
ar eru bláar en bolirnir í mismun-
andi litum og draga verkin heiti
sín af litunum.
En hvar lærði Anna María að
vefa? „Ég lærði í vefnaðarskóla
í Finnlandi fyrir mörgum árum.
Hætti í háskóla og fór í vefnað-
arskóla. Seinna útskrifaðist ég
svo með MA-gráðu í textíllist frá
háskólanum í Southampton í Bret-
landi og hef tekið þátt í mörgum
samsýningum á Norðurlöndunum
og í Bretlandi.“
Síðast var Anna María með í
útimyndlistarsýningunni Undir
berum himni í Reykjavík síð-
asta sumar og á sama tíma sýndi
hún á samsýningunni Muu maa/
Another country í Finnlandi. Hún
mun eiga verk á stórri samsýn-
ingu sem nefnist What is textil?
og opnuð verður í Edinborg í byrj-
un febrúar. „Framlag mitt þar er
tuskuveggteppi með rósabandi
og annað úr ljósmyndum sem ég
spann,“ lýsir hún.
Hún er enn með rósabandsupp-
setningu í vefstólnum sem hún
kveðst ætla að halda áfram með
en ekki enn hafa ákveðið hvert
ívafið verður. „Annars er ég að
hekla húfur fyrir þá sem hjálp-
uðu mér að setja upp sýninguna,“
segir hún og segir sýninguna
opna alla virka daga frá klukkan
10 til 16 fram til 24. janúar.
gun@frettabladid.is
Listaverk ofi n úr tísku-
fatnaði gnægtasamfélagsins
Anna María Lind Geirsdóttir skapar list í vefstólnum úr notuðum gallabuxum og bolum. Sýning
á verkum hennar er nú í SÍM-salnum í Hafnarstræti 16 í Reykjavík og er opin út þessa viku.
LISTAKONAN „Ég lærði í
vefnaðarskóla í Finn-
landi fyrir mörgum árum.
Hætti í háskóla og fór
í vefnaðarskóla,“ segir
Anna María Lind Geirs-
dóttir sem síðar tók gráðu
í textíllist við háskóla í
Bretlandi.
Á SÝNINGUNNI Listaverkin eru ofin
með aðferð sem nefnist skekkt brekán.
Heimili Davíðs Stefánssonar
skálds á Bjarkarstíg 6 á Akur-
eyri verður gestum til sýnis í
kvöld milli klukkan átta og tíu
þeim að kostnaðarlausu. Tilefnið
er að hann hefði átt afmæli í dag,
hann var fæddur 21. janúar 1895.
„Það er nánast eins og Davíð
hafi bara brugðið sér frá því
heimilið er eins og hann skildi
við það 1964,“ segir Haraldur
Þór Egilsson, safnstjóri Minja-
safnsins á Akureyri. Safnið hefur
umsjón með Davíðshúsi sem
hefur verið varðveitt sem safn
eftir að skáldið féll frá 1964. Þar
er líka fræðimannaíbúð.
Davíð skáld var fagurkeri og
safnari af guðs náð, að sögn Har-
aldar Þórs. Hann segir húsakynni
hans á Bjarkarstígnum bera
smekkvísi hans glöggt vitni, þau
séu full af bókum, listaverkum og
persónulegum munum.
Hálf öld er í ár frá andláti
Davíðs. Leikfélag Akureyrar minn-
ist þess með leikverki hans, Gullna
hliðinu, sem frumsýnt var í Sam-
komuhúsinu um liðna helgi. - gun
Davíðshús
opið í kvöld
SKÁLDIÐ Davíð var smekkmaður sem
hafði huggulegt í kringum sig.
ford.is
Ford Fiesta.
„Besti smábíllinn“
Beinskiptur frá 2.450.000 kr.
Sjálfskiptur frá 2.790.000 kr.
Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. CO2 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km.
CO2 114 g/km. Tökum allar tegundir bíla uppí nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta:
Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur.
Ford MyKey, brekkuaðstoð og EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er hann því mjög fljótur
að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum!
Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af
sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims, Auto
Express.
Brimborg fagnar 50 árum í bílgreininni og af því tilefni
fylgja ný Nokian vetrardekk að verðmæti 120.000 kr.
öllum Ford Fiesta í janúar. Nýttu tækifærið.
Komdu og prófaðu þennan snilldar bíl.
MENNING