Fréttablaðið - 21.01.2014, Síða 40
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Fann svipaða fl ík á netinu á fi mm
sinnum lægra verði en á Íslandi
2 HSÍ fundar með Austurríkismönnum
3 Björgvin Páll: Ég er í fínni vinnu
4 Tjónið í Lærdal nemur rúmum
tveimur milljörðum
5 Áhættufíkillinn James Kingston slær
öll met
Leikhúsið skreytt
með pöddum
Leikhópurinn Vesturport frumsýnir
Hamskiptin 28. janúar í Royal Alex-
andra-leikhúsinu í Toronto í Kanada
og verða sýningar fram til 10. mars.
Björn Thors, Unnur Ösp, Edda Arn-
ljótsdóttir, Tom Mannion og Víkingur
Kristjánsson leika í sýningunni en
markaðsdeild leikhússins er búin að
skreyta leikhúsið með kakkalökkum í
anda sýningarinnar. Miðasala fer vel
af stað, segir Gísli Örn Garðarsson
leikstjóri. „Nú þegar
er búið að selja yfir
fjörutíu þúsund
miða.“
- lkg
Með SME í rúmið
Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón Magnús
Egilsson, sem líka svarar gælunafn-
inu SME, fagnaði sextugsafmæli sínu
í Iðusölum síðastliðinn föstudag. Þar
var komið margt góðra gesta til að
samfagna honum, þar á meðal Geir
H. Haarde, fyrrverandi ráðherra,
Katrín Jakobsdóttir, þingmaður og
formaður Vg, og Tómas Tómasson
veitingamaður (Tommi í Búllunni).
Skemmtiatriði önnuðust Valgeir Guð-
jónsson tónlistarmaður og Jóhannes
Kristjánsson eftirherma. Þá var dreift
í veislunni blaði sem búið var að búa
til um SME og hafði hann sjálfur á
orði að þetta væri ánægjulegt, gestir
gætu nú haft hann með sér heim og
alla leið upp í rúm. - óká
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín