Fréttablaðið - 27.01.2014, Blaðsíða 44
20.1 pixla Exmor myndflaga
Full HD video1920x1080/50
18-55mm linsa fylgir, útskiptanleg linsa
Tilboð 69.590.- Verð áður 79.990.-
Intel Pentium örgjörvi
15,5” Flat LED skjár
4GB innra minni, 500GB diskur
Tilboð 93.490.- Verð áður 109.990.-
ÖFLUG OG TRAUST
Á FRÁBÆRU VERÐI
SVF1521A6EW
FRÁBÆR FERÐAFÉLAGI
Á GÓÐU VERÐI
ILCE3000KB
93.490.-
SPARAÐU 16.500.-
69.590.-
SPARAÐU 10.400.-
300W 32 bita magnari
1 hátalari og þráðlaust bassabox
Bluetooth tengimöguleiki
Tilboð 63.990.- Verð áður 79.990.-
Full HD 1920 x1080 punktar
200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
Tilboð 159.990.- Verð áður 199.990.-
Sony Center
Verslun Nýherja / Borgartúni 37 / 569 7700
Verslun Nýherja / Kaupangi Akureyri / 569 7645
FRAMÚRSKARANDI MYNDGÆÐI
42” Led sjónvarp KDL42W653
HEIMABÍÓ MEÐ ÞRÁÐLAUSUM BASSAHÁTALARA
HTCT260H
5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
www.sonycenter.is
159.990.-
SPARAÐU 40.000.-
63.990.-
SPARAÐU 16.000.-
MIKILL AFSL
ÁTTUR
af sýnishor
num
og síðustu
eintökum!
Philip Glass verður 77 ára á föstudaginn. Hann fæddist í Balti-
more og nam í Juilliard-skólanum í New York. Hann hefur samið
yfir 20 óperur, sinfóníur og fjölda verka fyrir tónlistarhóp sinn,
Philip Glass Ensemble.
Hann hefur starfað með listamönnum úr öllum listgreinum
og í öllum stílum tónlistar og unnið til viðurkenninga fyrir sígild
verk, óperutónlist, kvikmyndatónlist, popptónlist og tónlist við
dansverk.
Philip Glass
VIRTUR Philip hefur unnið með listamönnum úr öllum áttum.
„Philip Glass er að mestu hættur að koma
fram á tónleikum svo þetta er viðburður í
okkar tónlistarlífi. Mér finnst upphefð að
fá að spila með honum. Ekki spillir að hann
frumflytur eigin tónsmíðar,“ segir Víking-
ur Heiðar Ólafsson um tónleikana annað
kvöld klukkan 20 í Hörpu. Sjálfur leggur
hann Glass lið, bæði á umræddum tónleik-
um og í Gautaborg á fimmtudaginn, ásamt
hinni japönsku Maki Namekawa.
Víkingur Heiðar kveðst hafa æft Etýður
Glass samhliða sinfóníuhljómsveitarverk-
efni undanfarið. Það hafi verið ágæt til-
breyting. „Brahms-konsert er risastór og
það er gott að fara inn í svona mínímal-
ísk verk eins og Etýður Philips Glass. Ég
hef heldur aldrei spilað mínímalisma áður
svo það er ágætt að byrja á því með því að
spila með Philip Glass. Hann er stórmerki-
legur maður,“ segir hann og kveðst hafa
heyrt verk Glass á tónleikum og fylgst með
honum sem tónskáldi.
Fyrir þetta verkefni kveðst Víkingur
Heiðar virkilega hafa reynt að setja mig
inn í hugarheim Glass og hugmyndafræð-
ina sem býr að baki mínímalismanum.
„Maður þarf að opna fyrir nýjar gáttir í
hlustuninni þegar maður hlustar á tónlist
hans og líka þegar maður spilar hana,“
segir hann.
Glass verður sjötíu og sjö ára á föstudag-
inn. „Það er auðvitað afstætt hvað er hár
aldur en mér finnst skrítið að þessi New
York-töffari sé kominn hátt á áttræðis-
aldur. Rífandi listamaður í fullu fjöri og
ótrúlega afkastamikill enda þekktur fyrir
að vinna látlaust. Við spilum á tónleikum
í Gautaborg á fimmtudaginn, sama pró-
gramm og hér, og á laugardaginn verður
frumsýnd ópera eftir Glass í Gautaborg,“
segir Víkingur Heiðar sem kveðst hafa
skoðað heimildarmyndir um snillinginn
áður en fundum þeirra ber saman. „Það er
eitthvað ótrúlega heillandi við persónuna
Philip Glass og ég hlakka til að hitta hann.“
gun@frettabladid.is
Upphefð að fá að
spila með Philip Glass
Víkingur Heiðar leikur ásamt Maki Namekawa með hinum heimsþekkta
píanóleikara Philip Glass sem frumfl ytur eigin Etýður í Hörpu á morgun.
Viðburðurinn er í tónleikaröðinni Heimspíanistar í Hörpu.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum árið
2013 var opnuð í Gerðubergi í gær. Hún hefur yfirskrift-
ina Þetta vilja börnin sjá! og er haldin nú í tólfta sinn.
Sýningunni hefur verið sköpuð barnvæn umgjörð á efri
hæð Gerðubergs. Þar eru myndir eftir 26 myndskreyta.
Fólk utan höfuðborgarsvæðisins fær líka tækifæri til að
njóta myndanna og bókanna því Þetta vilja börnin sjá! er
farandsýning sem leggur land undir fót þegar sýningar-
tímanum í Gerðubergi lýkur en hann stendur til 30. mars
næstkomandi. - gun
Myndir úr barnabókum síðasta árs
Sýningin Þetta vilja börnin sjá! hefur verið opnuð í Gerðubergi með myndum úr
íslenskum barnabókum. Sýningunni hefur verið sköpuð barnvæn umgjörð.
ÞETTA VILJA
BÖRNIN SJÁ!
Sýningin er
á efri hæð
Gerðubergs.
BÍÐUR SPENNTUR
„Það er eitthvað
ótrúlega heillandi
við persónuna Philip
Glass og ég hlakka til
að hitta hann,“ segir
Víkingur Heiðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING 27. janúar 2014 MÁNUDAGUR