Fréttablaðið - 25.03.2014, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA
FRÍTT INN
Allir eru velkomnir
á málþingið í Norð-
urljósasal Hörpu á
föstudag frá klukk-
an 9 til 16. Að-
gangur er ókeyp-
is en skráning fer
fram á vef Ör-
yrkjabandalagsins
www.obi.is.
Matarklúbburinn Pylsugerðin gaf nýlega geðdeild
Landspítalans ýmsar vörur
að andvirði 180.000 kr.
Aðdragandann má rekja
til „pop up“-veitingastaðar
sem klúbburinn setti á fót
í Vesturbænum í Reykjavík
seint á síðasta ári en þar
var boðið upp á heima-
gerðar pylsur, súrkál og
gos. Ákveðið var í upp-
hafi að láta allan ágóða söl-
unnar renna til geðdeildar
Landspítalans enda eru
klúbbmeðlimir þakklátir
starfsmönnum deildarinnar og
því frábæra starfi sem þar er
unnið.
Nokkur fyrirtæki gáfu hráefni
í veitingarnar sem Pylsugerðin
útbjó og seldi þennan dag og
voru framleiddir um 100 metrar
af pylsum. Þótt veitingastaðurinn
hafi einungis verið opinn í tvær
klukkustundir komu 150 gestir
sem keyptu vörur að andvirði
90.000 kr. Fyrir þann pening
keypti matarklúbburinn ömmu-
stól, skiptiborð, dýnu, útvörp,
skrautmuni, teppi, púða og
lampa. Fyrirtækin sem sauma-
klúbburinn verslaði hjá gáfu
sömu upphæð á móti þannig að
andvirði gjafanna var 180.000 kr.
sem fyrr segir. Meðal fyrirtækja
sem studdu verkefnið með þess-
um hætti voru Ólivía og Óliver,
ELKO og IKEA.
LJÚFFENGAR PYLSUR
FYRIR GEÐHEILSUNA
PYLSUGERÐARMEISTARAR Nokkrir fulltrúar matarklúbbsins við pylsugerðina.
MYND/ÚR EINKASAFNI
KRÆSINGAR Pylsur úr nauta- og svínakjöti voru á
boðstólum ásamt súrkáli og gosi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Aðalfyrirlesari mál-þingsins Fötlun og menning, sem
fram fer í Norðurljósasal
Hörpu á föstudaginn, er
Dr. Rosemarie Garland-
Thomson, prófessor
við Emory-háskólann í
Bandaríkjunum. Hún er
heimsþekkt fyrir rann-
sóknir sínar á birtingar-
myndum fötlunar í sjón-
rænni menningu. Auk
þess verða fluttir fjöl-
breyttir og skemmtilegir
fyrirlestrar sem bera
heiti á borð við: Til sýnis.
Fatlað fólk, furðuverur
og fjölleikahús, Aðstæð-
ur geðveiks fólks í Reykjavík á 19. öld,
Fötlun á Íslandi á miðöldum, Fötlun í
barnabókum og Staða fatlaðs fólks í ís-
lensku bændasamfélagi.
Stór hluti fyrirlestranna á uppruna
sinn í bókinni „Fötlun og menning. Ís-
landssagan í öðru ljósi“, sem kom út
síðasta haust. Einn af þremur ritstjór-
um bókarinnar er Hanna Björg Sigur-
jónsdóttir, dósent við Félagsvísinda-
svið Háskóla Íslands. Hún mun halda
einn af fyrirlestrunum á málþinginu,
Hvað er fötlunarlist?
ENDURSKILGREINING
„Margir halda að fötlunarlist sé list-
sköpun fatlaðs fólks en
það er alls ekki nægjan-
leg skilgreining,“ segir
Hanna Björg sem bendir
á að fötlun hafi verið
viðfangsefni í listum í
gegnum aldirnar. Þá hafi
alltaf verið til töluvert
af fötluðum listamönn-
um en þeir séu þó ekki
endilega að vinna að
fötlunarlist. „Fötlunarlist
er pólitísk og verður til
sem andóf. Hún byggir á
róttækri endurskilgrein-
ingu á fötlun sem varð
til á sjöunda og áttunda
áratugnum,“ útskýrir
Hanna Björg. Í þessari
endurskilgreiningu er hinum hefð-
bundna skilningi á fötlun sem galla
andæft og áhersla lögð á að félagslegar
og menningarlegar hindranir valdi fötl-
uðu fólki oft miklu meiri erfiðleikum en
skerðingin sjálf. Þessi nýja félagslega
skilgreining á fötlun varð kjarni fötl-
unarlistar sem nýtir sér félagsleg og
menningarleg sjónarhorn til að draga
fram sameiginlega reynslu fólks með
mismunandi skerðingar. Meðal þess
sem fötlunarlistamenn hafa andæft
eru algengar birtingarmyndir sem
alls staðar eru dregnar upp í menn-
ingu okkar og móta skilning okkar á
hvað fötlun er,“ segir Hanna Björg og
tekur dæmi um góðgerðarauglýsingar.
„Algengt er að þær dragi upp myndir
af fötluðu fólki sem vanmáttugu og
brjóstumkennanlegu en það er ekki
þannig sem fatlað fólk vill láta líta á
sig.“
FJÖLMÖRG LISTFORM
„Fötlunarlistin er alltaf pólitísk og
getur verið af hvaða listformi sem er,
myndlist, gjörningur eða uppistand,“
segir Hanna Björg en það sem verkin
eiga sameiginlegt er að þau afhjúpa
staðalmyndir og leggja áherslu á
að búa til nýjar og réttari myndir af
fötlun. Þegar háð er notað í fötlunarlist
er háðinu ekki beint að skerðingunni
sjálfri heldur félagslegum eða menn-
ingarlegum hindrunum eða staðal-
myndum.
Þó flestir fötlunarlistamenn séu fatl-
aðir er það ekki alltaf svo. „Stundum
er um samvinnuverkefni fatlaðra og
ófatlaðra listamanna að ræða,“ segir
Hanna Björg og tekur dæmi um styttu
af listakonunni bresku Alison Lapper,
sem Marc Quinn vann með henni. „Í
verkinu er máttur óvenjulega líkamans
notaður til að hafna ósýnileikanum
sem oft umlykur fatlað fólk um leið og
verkið ögrar aldargömlum hugmynd-
um um fullkomleika og fegurð. Styttan
varð mjög umtöluð enda er Lapper án
handa og með afar stutta og óvenju-
lega lagaða fætur og komin átta mán-
uði á leið í verkinu,“ segir Hanna Björg.
Saga fötlunarlistar á Íslandi er stutt
en erlendis spratt hún upp á níunda
áratugnum. „Hér á landi eru fyrstu
vísar að þessari listgrein. Sú sem hefur
verið einna fremst í henni er Kolbrún
Dögg Kristjánsdóttir en hún hefur unn-
ið ljósmyndagjörninga, leikrit og uppi-
stand,“ segir Hanna Björg og býður alla
velkomna í Hörpuna á föstudag.
FÖTLUNARLIST ER PÓLITÍSK
MÁLÞING Fötlun og menning er yfirskrift málþings sem fram fer í Hörpu föstudaginn 28. mars. Fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar
verða fluttir um fötlun frá ýmsum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara er Hanna Björg Sigurjónsdóttir sem útskýrir hugtakið fötlunarlist.
FÖTLUNARLIST Styttan af fötluðu listakon-
unni Alison Lapper vakti mikla athygli þegar
hún var sýnd á Trafalgartorgi í London árið
2005. Styttan var einnig notuð á opnunar-
hátíð sumarólympíuleika fatlaðra 2012.
DÓSENT Hanna Björg Sigur-
jónsdóttir útskýrir hugtakið
fötlunarlist.
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS
örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóðflæði, allt að 30% æðaútvíkk-
un, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20%
meira þrek orka og úthald, hraðar bata eftir æfingar. Bætt ris hjá körlum,
aukin kynörvun kvenna. Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting,
kólesteról, hjarta- æða- og taugakerfi, þvagblöðru og ristil, lifur, nýru, of-
næmiskerfi, heila, skapferli, þynnku, astma, lungnaþembu. Einkaleyfi
Neogenis Labs tryggir einstaka yfirburði og virkni, gott bragð ein teskeið
blandað í vatn 100 ml sem jafngildir einni flösku 500 ml af rauðrófusafa.
Betra blóðflæði
Betri líðan - betri heilsa
N-O = 30 flöskur af
rauðrófusafa 500 ml
eða 90 rauðrófur
Umboð: www.vitex.is
Rauðrófukristall
stingur keppinautana af *
1. Superbeets dós
= 30 flöskur af
rauðrófusafa eða
90 rauðrófur
500 ml
N
-O
S
ty
rk
ur
*
Ríkt af andoxunarefnum
= 90 rauðrófur
10
g
r R
au
ðr
óf
ur
kr
is
ta
ll