Fréttablaðið - 25.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.03.2014, Blaðsíða 10
25. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 MALASÍA Malasíska farþegaflug- vélin, sem hvarf 8. mars síðastlið- inn með 239 manns innanborðs, virðist hafa hrapað í Indlands- haf suðvestur af Ástralíu. Þetta staðfestir ný greining á gögnum úr gervitungli, sem nam boð frá flugvélinni allt til síðustu stund- ar. Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, skýrði frá þessu í gær. „Þetta er afskekktur staður, langt frá öllum hugsanlegum lendingarstöðum,“ sagði Razak á blaðamannafundi í gær. „Það er því með djúpri sorg og eftirsjá sem ég verð að upplýsa ykkur um að samkvæmt þessum nýju gögn- um hafnaði flug MH370 í sunnan- verðu Indlandshafi.“ Aðstandendum bæði farþega og áhafnar vélarinnar var tilkynnt um þetta með smáskilaboðum í síma. Þar segir að gera þurfi ráð fyrir því að vélin hafi farist og enginn komist lífs haf. Mikil sorg og reiði braust út í kjölfarið meðal aðstandenda, sem biðu frétta á hóteli í Pek- ing. Fréttirnar fengu svo mikið á suma þeirra að sjúkraflutninga- menn þurftu að flytja þá burt á sjúkrabörum. Margir aðstandendanna áttu erfitt með að leggja trúnað á full- yrðingar malasískra stjórnvalda og bíða þess að brak úr vélinni finnist. Nokkrir hlutir, sem líkur eru taldar á að geti verið brak úr vél- inni, hafa sést á floti í hafinu á nokkuð stóru svæði suðaustur af Ástralíu. Bæði skip og flugvélar hafa verið notuð við leitina en í gær hafði ekki enn tekist að ná neinum þessara hluta um borð í skip og staðfesta hvaðan hann kæmi. Enn hafa engar skýringar held- ur fengist á því af hverju vélinni var snúið af leið stuttu eftir flug- tak frá Kúala Lúmpúr, um svipað leyti og allt fjarskiptasamband við hana rofnaði. Alls voru 239 manns um borð í vélinni, þar af 227 farþegar sem flestir voru frá Kína. gudsteinn@frettabladid.is HJARTASTUÐTÆKI Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is F A S TU S _H _1 0. 02 .1 4 Powerheart er alsjálfvirkt hjartastuðtæ leiðbeinandi fyrirmæli á íslensku til notandans ásamt því að birta leiðbeinandi texta á skjá. Fjögurra ára ábyrgð á rafhlöðu. Veggfesting fylgir með. Verð kr. 229.000,- m.vsk. ki sem gefur • Nauðsynlegt tæki þegar sekúndur skipta máli • Alsjálfvirkt hjartastuðtæki með fyrirmæli á íslensku EGYPTALAND, AP Dómstóll í Egyptalandi dæmdi í gær 529 manns til dauða. Allir eru þeir að sögn stjórnvalda stuðningsmenn Mohammeds Morsi og Bræðralags múslima. Mennirnir voru dæmdir sekir um margvíslega glæpi, þar á meðal morð á lögreglumanni, líkamsárásir og eignaspjöll. Réttarhöldunum var hraðað í gegnum dómskerfið en dómarnir urðu mun þyngri en reiknað var með. Síðastliðið sumar steypti egypski herinn Mohammed Morsi af stóli forseta Egyptalands. Hann var svo í kjölfarið handtekinn ásamt hundruðum stuðningsmanna Bræðralags múslima. Á meðal hinna handteknu eru margir hátt settir liðsmenn Bræðralagsins, en enn á eftir að fella dóm yfir nærri 600 manns til viðbótar. - gb Dómstóll í Egyptalandi tekur hart á bræðralagsmönnum: Hundruð dæmd til dauða ÞUNGIR DÓMAR Ættingjar hinna dæmdu bregðast við fréttunum fyrir utan dóms- húsið í Kaíró í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Vilmundur Jósefsson, fyrrverandi formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur boðið sig fram í stjórn Vodafone. Allir núverandi stjórnarmenn félags- ins sækjast eftir endurkjöri og því ljóst að ekki verður sjálfkjörið í stjórn. Stjórnarmenn eru: Anna Guðný Aradóttir, Erna Eiríks- dóttir, Heiðar Már Guðjónsson, Hildur Dungal, Hjörleifur Pálsson stjórnarformaður og Vilmundur Jósefsson. Kosið verður í stjórn Vodafone á aðalfundi sem fer fram á Hilton Nordica á miðvikudaginn. - fbj Sex í framboði í fimm sæti: Kosið í stjórn EFNAHAGSMÁL Heildartekjur sveitarfélaga hafa aukist jafnt og þétt frá árinu 2010. Þetta kemur fram í samantekt um þróun fjármála sveitarfélaganna sem innanríkisráðuneytið lét taka saman. Fjárhagsáætlanir 2014 gera ráð fyrir að heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélaga verði um 825 milljarðar í A- og B-hluta. Litið til þróunar skulda- hlutfalls kemur fram að frá árinu 2010 hefur skuldahlutfall- ið farið lækkandi. - fbj Gert ráð fyrir hagnaði í ár: Tekjur aukast A task force of aircraft and ships has been sent to the southern Indian Ocean to determine if objects spotted by satellite are debris from Flight MH370 Task force includes Australian and New Zealand P-3 Orion aircraft, and U.S. Navy P8 Poseidon Search area P-3 Orion 2,5 00k m M A L A Y S I A © GRAPHIC NEWS Heimild: Ástralska sjóöryggiseftirlitið Skip og flugvélar frá Ástralíu, Kína og fleiri löndum eru notuð við leitina að malasísku farþ gaþotu ni sem týnd hefur verið í 18 daga. Meðal leitarvéla er P-3 Orion flugvélar frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi Peking Canberra Kúala púrLúm Perth Áætluð g ðleiflu t ð tSás sí as á sheá rats r nj is bSam and rofnaði Miðbaugur ndlands-I haf rma satIn - rervihnöttug L itar- svæði rion . Á s t r a l í a a l a s í a K í n a Brak hefur sést bæði úr lofti og á gervitunglsmyndum Leitin heldur áfram Brak sem gæti verið úr vélinni Um 24m Engin von um að neinn finnist á lífi Ný greining á gervitunglsgögnum staðfestir að malasíska farþegaþotan hrapaði í hafið. Aðstandendum farþega og áhafnar vélarinnar var tilkynnt um það í smá- skilaboðum. Leit að braki úr vélinni heldur áfram í hafinu suðvestur af Ástralíu. SORGARTÍÐ- INDI Aðstand- endur þeirra sem fórust fengu í gær endanlega staðfestingu á því að vélin hefði hrapað í hafið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.