Fréttir - Eyjafréttir - 29.04.1976, Blaðsíða 1
vréttfr
3. árg. Fimmtudagur 29. aprfl 1976 15. tbl.
Hljómleikar
Að undanförnu hefur Samkór Vestmannaeyja
æft af krafti fyrir hljómleikahald, sem hefjast
mun á morgun. föstudaginn 30. aprfl, kl. 9 eh.
Efnisvai er úr ýmsum áttum, s. s. þáttur úr
óperunni Amahl og næturgestirnir, Heima eftir
Oddgeir Kristjánsson og nútfmaverk eftir stjórn-
andann, Sigurð Rúnar Jónsson.
Kórnum til aðstoðar, með undirleik, verða
Guðmundur Guðjónsson, organisti. hljómsveitin
Logar og felagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja.
Þá koma einnig fram einsöngva rar.
Eins og fyrr segir, eru fvrstu hljómleikarnir
annað kvöld, föstud., en næstu hljómleikar verða
á laugardag, L maf kl. 5 sfðdegis.
,, Skó (c i<la yur“ í?'a r n askó (a n s
Ferjan sjósett
A morgun verður nýja ferjan sjósett. Hún er
smfðuð hjá Sterkoderskfpasmíðastöðinni f Kristi
ansund f Noregi. Gert er ráð fyrir að ferjan'
verði afhent tilbúin þann J5. júnf n. k. Mun hún
þá væntanlega koma hingað til Eyja um 20. júnf.
Nýja skipið mun geta flutt um 150 farþega f
hverri ferð og 75 tonn af vörum, ásamt 20 bif-
reiðum. Ef ekki er um vöruflutninga að ræða, þá
getur ferjan flutt 40 bifreiðar.
Nýja ferjan mun daglega ganga til Þorlákshafn-
ar og er áætlað að ferðin taki 2 til 2 1/2 tfma.
Þegar er byrjað að undirbúa aðstöðu fyrir
skipið hér f Eyjum og stefnt er að þvf, að að-
staða verði einnig fyrir hendi f Þorlákshöfn, er
skipið kemur til landsins.
Friðrik Oskarsson hefur verið ráðinn forstjóri
fyrir nýja skipið. Vélstjóri hefur einnig verið
ráðinn og er það Steingrfmur Haraldsson. Tsfð-
ustu viku var gengið frá ráðningu skipstjóra. Jón
Eyjólfsson var ráðinn af meirihluta stjórnar
Herjólfs hf. En eins og kunnugt er, stóð valið á
milli hans og Guðjóns Petersen fyrst og fremst.
Heimamenn komu ekki til greina.
Blaðiþ fagnar þeim merka áfanga, sem nú er
að nást til verulegra úrbóta f samgöngumálum
okkar Eyjarskeggja.
Sunnudaginn '6. ma f mun Ba rna skólinn skipu-
leggja fjölbrevtta dagskrá við allra hæfi.
Þann dag mun árleg sýning á vinnu nemenda
verða f skólanum, sérstök æskulýðsguðsþjónusta
f Landakirkju, skemmtidagskrá f Félagsheimil-
inu eða Samkomuhúsinu og útiskemmtun á skóla-
lóðinni. A innidagskránni verður m.a. fluttur
þáttur úr "Dýrin f Hálsaskógi" (brúðuleikhús),
skólakórinn syngur, nemendur leika á hljóðfæri,
fimleikasýning og ýmiskonar glens.
A útiskemmtuninni mun Lúðrasveit Vestmanna
evja leika og keppni verður f blaki milli liða frá
nemendum, kennurum og foreldrum.
r stórum dráttum verður dagskráin þannig:
kl. 10 - 20 Sýning á vinnu nemenda
kl. 11 Guðsþjónusta f Landakirkju
kl. 13 Inniskemmtun
kl. 16 Utiskemmtun
"Skóladeginum” mun ljúka kl. 20.00 með lok-
un skólasýningarinnar. Er það von allra, semað
undirbúningi standa, að bæjarbúar fjölmenni á
alla þætti dagskrárinnar.
(F r étta ti Ikynning).
□
ia
ca
ki
ca
la
GD
ca
la
ca
K1
GD
ca
Nvkomið
URVAL BORÐ- OG STANDLAMPA
URVAL FERMINGARGJAFA
HIN SIVINSÆLA OSTER-HRÆRIVEL
KOMIN AFTUR
NYJU rSLENZKU PLÖTURNAR MEÐ
BG OG INGIBJÖRGU OG EINARI VIL-
BERG KOMNAR.
□
C3
GP
C3
ca
Kf
Kl
ca
ca
ca
ca
ca
ca