Fréttir - Eyjafréttir - 29.04.1976, Blaðsíða 2
Dtg. :Eyjaprenthf. - Ábm.: Guðl. Sigurðsson.
Prentun: Eyjaprenthf. - Bárustig 9, Vm, sími
1210. ___________________________________
il 'ii
Sigurður Jónsson, bæjarfullírúi:
i tslefns 1 maí
A s. I. vetri urðu launþegasamtökin að grfpa
til verkfallsvopnsins til aðreyna að fá lagfær-
ingu á sxnum máium. Að dómi allra sanngjarnra
manna var hér um mjög hóflega samninga að
ræða og sfzt til að vera verðbólguhvetjandi. Að-
eins var samið um 6% kauphækkun f fyrsta á-
fanga. En hvað hefur gerzt? Þessari hækkun og
meira til hefur verið skellt út f verðlagið. Hvað
segja t. d. húsbyggjendur um 38% verðhækkun á
sementi? Póstnr og sfmi hefur hækkað sfn gjöld.
Iðgjald af sjónvarpi og útvarpi hefur hækkað
hressilega. Þannig gengur rfkið á undan með
Óheyriiegar hækkanir. Landbúnaðarvörur hafa
hækkað um mörg prósent umfram hækkun á
kaupi. Fiest allar aðrar vörur h3fa einnig hækk-
að. Almennt verölag f iandinu nefur hækkað um
7, 3 stig, þar af um 1, 3 stig vegna nýgerðra
kjarasamninga. Hvers vegna hin stigin? Það
verður því miður að skrifast á reikning stjórn-
valda (sennilega borga þeir nú samt minnst.af
honum - það verður hinn aimenni iaunþegi að
gera).
Um þessar mundir hafa þingfiokkarnir til um-
ræðu tillögur ríkisstjórnarinnar um nýja skatt-
lagningu, þvf töluvert vantar enn á að endar nái
saman hjá því opinbera. Lfklegast er talið, að
söluskatturinn verði hækkaður, ellegar að vöru-
gjaldið verði framlengt áfram og sennilega hækk
að um nokkur prósent. Er ekki skattheimt rfkis-
ins nóg fyrir?
Hvernig eiga launþegar með sultartekjur að
ná endum saman? Hvers vegna er aidrei spurt
að því? Nú er svo komið, að margir hafa ekki
lengur möguleika á þvf að bæta við sig meiri
næturvinnu. Hana er ekki lengur að fá. Ekki eru
kjör sjómanna heldur neitt til að hrópa húrra
fyrir. Framundan er gjaldþrot margra launþega-
heimila. Varðar stjórnvöid ekkert um það?
Það er furðurlegt, að stjórnmálamönnum skuli
aldrei detta neitt annað ráð f hug, heldur en að
stofna til nýrra skatta eða hækka bá sem fyrir
eru. Og ekki má gieyma gengisfellingunni (hún
hlýtur að koma).
Væri ekki ráð, að draga úr allri yfirbygging-
unni hjá þvf opinbera, taka til endurskoðunar
bankakerfið, athuga landbúnaðarþrýstihópinn.
Athuga hvers vegna margir aðilar f þjóðfélaginu
hafa ótakmörkuð fjárráð, búa f stórum höllum,
keyra um f margra milljón króna blikkbeljum og
ferðast margsinnis til útlanda á ári hverju, -
fyrir utan allt annað, sem þetta fólk lastur eftir
sér. - SAMT BORGAR ÞETTA "VESÆLA” FOLK
EKKI SKATTA TIL SAMFELAGSINS.
Það er krafa allra launþega, að þessi mál öll,
og fleiri, verði tekin til meðferðar og úr þeim
bætt hið bráðasta. Þá myndu kjör þeirra batna
að mun.
Augiýsrinsar * s* 1210
r' .— j BrLL OSKAST TIL KAUPS Helzt Cortina eða Austin mini. - Upp- lýsingar f s. ]2]0. aa- sam TÖKIN FUNDIR A FIMMTU- DÖGUM að Heimagötu 24. Sfmsvarinn 1140.
LITIL rBUÐOSKAST TIL LEIGU Lftil fbúð óskast til leigu f 4 mánuði. Uppl. að Skólavegi 19. BARNAVAGN TIL SÖLU Upplýsingar f sfma 136.
Verkafólk
Viðlagasjóður óskar eftir verkafólki f gjall-
hreinsun og uppgræðslu f sumar. Lágmarksald-
ur umsækjenda 16- ]7 ára.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Viðlaga-
sjóðs f Vm, Skólavegi 6, fyrir ]0. maf 1976.
Vestmannaeyjum 28.4. 1976
VIÐLAGASJOÐUR.