Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.1981, Side 1
r
>
FRETTIR I
■ VIKUBLAÐ f
^^8. árgangur Vestmannaeyjum 12. júní 1981 23. tbl. iÁ
J
MALLORKA
(WKwm
VESTMANNAEYJAUMBOÐ:
ENGILBERT GÍSLASON
KOSTAKJÖR
SÍMI 2220 - 1318
SJÓMANNADAGURINN
Sjómenn hylla Sigmund
fyrir störf hans í þeirra þágu
Haldið verður upp á sjó-
mannadaginn með hefðbundn-
um hætti. Dansleikur verður í
Alþýðuhúsinu á föstudag frá kl.
21-01, með hljómsv. RADÍUS
en þeir leika þar líka á laugard.
Hljómsveitin ASAR frá
frá Reykjavík spilar í BÍOsal
Samkomuhússins laugard. og
sunnudag og diskótekið ÞOR-
GERÐUR verður í Nýja sal
bæði kvöldin og verður opið á
milli.
A laugardaginn verður kapp-
róður, koddaslagur, reiptog
og annað í þeim dúr, en
þeir sem ætla að taka þátt í
kappróðrinum eru beðnir að
láta skrá sig í síðasta lagi á
föstudaginn í Básum á Bása-
skersbryggju. Miðasala hefst
á laugardaginn í Básum og
hafa skipstjórar forgangsaf-
greiðslu fyrir skipshafnir sín-
ar frá klukkan 17.00 til 18.30
en þá hefst almenn miða-
afgreiðsla.
Dansað verður svo eins og
áður segir í báðum húsunum
um kvöldið frá kl. 22.00 -
02.00.
A sunnudaginn hefst dag-
skráin kl. 13.00 og verður
hátíðin þá sett af Hjalta Há-
varðssyni og mun Lúðra-
sveit Vestmannaeyja leika við
þá athöfh. Skrúðganga verður
síðan að Landakirkju en þar
verður sjómannamessa og mun
Kjartan Örn Sigurbjörnsson
messa. Að lokinni messu í
Landakirkju, verður athöfn
við minnisvarðann, þar sem
Sigmund Jóhannsson verður
heiðraður fyrir starf sitt í
þágu sjómanna. Sjómanna-
dagsráð hefuf ákveðið að til-
einka hátíðina Sigmund Jó-
hannssyni fyrir gjöf hans til
íslenskra sjómanna, en þeir
stefna nú að því að koma
uppfmningum hans í hvern
bát á landinu. Ræðumaður
verður Einar J. Gíslason.
Klukkan 16.00 á Stakka-
gerðistúninu verður skemmt-
un þar sem fram koma nokk-
rir af bestu skemmtikröftum
landsins. Omar Ragnarsson
verður með sérstaka dagskrá
sérsamda fyrir sjómannadag-
inn. Baldur Brjánsson töl'ra-
maður sýnir listir sínar.
Grétar Kjaltason eftirherma
og Jóhann Hilmisson gaman-
vísnasöngvari frá Sauðárkrók
koma einnig fram.
Verðlaunaafhending fyrir
unnin afrek dagin áður og
heiðrun aldraðra sjómanna
fer einnig fram á stakka-
gerðistúninu.
Um kvöldið verður kvöld-
skemmtun í Iþróttahöllinni
og verða þar heiðraðir afla-
kóngar, tískusýning, gaman-
vísur og gamanmál, og margt
fleira verður þar til skemmt-
unar og eitthvað við allra
hæfí.Kynnir verður Runólfur
Gislason.
Hátíðinni lýkur með balli í
Samkomuhúsinu frá kl. 00.01
til kl. 04.00.
m ► flP 1
“* jjg
§ O
Gunnlaugur Stefán Gíslason:
Sýnir í gallerí Landlyst
Gunnlaugur Stefán Gísla-
son myndlistamaður úr Hafn-
arfírði opnar í kvöld sýn-
ingu á vatnslitamyndum í
gallerí Landlyst. Gunnlaug-
ur Stefán kenndi í mynd-
listaskólanum í Vestmanna-
eyjum veturinn 1971 - ’72og
er nú kennari við myndlista
og handíðaskóla íslands.
Vestmannæyingar eru hvatt-
ir til þess að sjá sýningu
Gunnlaugs, en myndir hans
hafa vakið mikla athygli bæði
hér heima og erlendis.
Sýningin verður opin í
kvöld og á morgun föstudag
frá kl. 20.00 til 22.00 og
laugardag og sunnudag frá
kl. 14.00 til 22.00.