Fréttablaðið - 16.08.2014, Qupperneq 32
16. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Neytum og njótum
Íslenskt og amerískt
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
SUÐVESTURLAND
9
11
1
5
2
3
4
6
7
8
10
9
6
8
11
7
1. Góð gönguleið
Gjáin í Þjórsárdal er með
blómstrandi brekkum, lindum
og lækjum með litlum fossum.
Þar eru líka hellar sem gaman
er að skoða og ofan í Gjána
fellur snotur foss á tveim-
ur hæðum. Hann er í Rauðá.
Göngustígur er frá Stöng í
Gjána og tekur gangan um
fimmtán mínútur hvora leið.
2. Bændamarkaður, golf, pitsur
Að Efra-Seli í Hrunamanna-
hreppi er 18 holu golfvöllur og
við hann stendur Kaffi Sel sem
sérhæfir sig í pitsum en fleira
er í boði. Þar er líka bænda-
markaður með nýbökuðum
brauðum og kökum úr eldhúsi
staðarins, frosnum kjötvörum
og glænýju grænmeti úr sveit-
inni ásamt trémunum úr skóg-
inum, heimagerðum kertum,
hálsmenum, glervörum og fleira
handunnu góssi.
3. Rúnum ristur hellir
Laugarvatnshellir er forvitnileg
náttúrusmíð í hlíðinni skammt
vestan Laugarvatns og er hægt
að aka að honum frá Gjábakka-
vegi. Veggir hans eru úr sand-
Frá uppsveitum út á Reykjanes
Sýslurnar kenndar við Árnes og Gullbringu státa af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins og búa yfir ótal öðrum
viðkomustöðum hvort sem er í hinum blómlegu uppsveitum, á eldbrunnu Reykjanesinu eða þar á milli.
steini og eru rúnum ristir. Í
hellinum var búið um tíma, síð-
ast um 1920, og þar fæddist að
minnsta kosti eitt barn.
4. Elsta vatnsveitan
Öxarárfoss á Þingvöllum vekur
alltaf sterk hughrif þegar stað-
næmst er hjá honum. Ekki vita
allir að hann er manngerður í
upphafi. Þegar þinghald hófst
á völlunum til forna var Öxará
veitt þangað til að fá vatn á stað-
inn, en áður féll hún um Árfar
vestan Almannagjár. Öxarár-
foss er því ein elsta vatnsveita
landsins.
5. Í minningu Fischers
Fischersetrið að Austurvegi 21
á Selfossi sýnir muni tengda
skáksnillingnum Bobby Fisch-
er sem háði „einvígi aldar-
innar“ hér á landi árið 1972
og vann heimsmeistaratitilinn
af Boris Spasskí. Fischer var
síðustu æviár sín á Íslandi og
hvílir í Laugardælakirkjugarði,
skammt frá Selfossi. Fischer-
setrið er opið milli 14 og 16 til
15. september.
6. Notalegur sundstaður
Sundlaugin í Laugaskarði
í Hveragerði er í hlýlegu
umhverfi skammt frá veginum
að Garðyrkjuskólanum. Hún var
lengi stærsta sundlaug landsins.
Þar er heit, grunn setlaug, heit-
ur pottur með rafmagnsnuddi
og náttúrulegt gufubað.
7. Vitar, byggðasafn og blak
Garðskagaviti er yst á nesi sem
heitir því sérkennilega nafni
Rosmhvalanes. Þar stendur
hæsti viti landsins, 28,6 m hár,
og annar eldri og minni. For-
vitnilegt byggða- og sjóminja-
safn er á nesinu og líka blak-
völlur. Einnig er þar fjölbreytt
fuglalíf, einkum vor og haust.
5
8. Fjölskyldan
Í Þekkingarsetri
Suðurnesja í Sand-
gerði eru um 70
uppstoppuð dýr úr íslenskri
náttúru og þau er leyfilegt að
snerta. Þar er til dæmis eini
uppstoppaði rostungur lands-
ins. Svo eru lifandi sjávardýr í
búrum og safn jurta og skelja.
Heimskautin heilla nefnist sýn-
ing í setrinu um vísindamann-
inn Jean-Baptiste Charcot sem
fórst með rannsóknarskipinu
Pourquoi-Pas? við Álftanes á
Mýrum. Líkan af skipinu er til
sýnis.
Nánar á thekkingarsetur.is.
Fræðandi og skemmtilegt
9. Allt gert frá grunni á staðnum
Hendur í höfn er rómantískt og notalegt
kaffihús að Unubakka 10-12 í Þorláks-
höfn. Allar veitingar eru lagaðar frá
grunni á staðnum, úr hráefni sem sótt er
í nærumhverfið eftir föngum. Kökur og
brauð eru bökuð daglega og úrval er af
glútenlausum veitingum. Innviðir staðar-
ins eru komnir til ára sinna en hafa nú
fengið nýtt hlutverk. Opið er frá 12 til 18
nema föstudaga til sunnudaga frá 11 til 19
og tekið á móti hópum utan þessa tíma.
10. Eldað í sögufrægu húsi
Tryggvaskáli á bökkum Ölfusár á Selfossi
er a’la carte veitingastaður sem leggur
áherslu á vandaða matreiðslu með fókus
á hráefni úr héraði. Þar samtvinnast
íslenskar og erlendar matarhefðir. Skál-
inn er elsta húsið á Selfossi, byggður árið
1890, og þaðan er einstakt útsýni yfir ána.
Opið er frá klukkan 17.30 til 22.
10
Útivist og afþreying
Gönguferð, sund, skáksafn, hellaskoðun og heimsókn í vita
BRÚARFOSS Einn af þremur fossum í Brúará sem er bergvatnsá á mörkum Biskupstungna annars vegar og Laugardals og Grímsness hins vegar og fellur í Hvítá neðan
Skálholts. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM