Akureyri - 17.05.2012, Síða 1
V I K U B L A Ð
ÞESSI NÝSTÁRLEGA ÚTFÆRSLA á setbekkjum bæjarins er afurð hópvinnu nemenda af listhönnunar- og fagurlistadeildum Myndlistaskólans á
Akureyri. Þessum tiltekna bekk er hugsaður staður á horni Dalsbrautar og Akurgerðis. Verkefnið er hluti af viðamikilli vor- og útskriftarsýningu
Myndlistaskólans sem opnar klukkan 13.00 í dag og stendur fram á sunnudag. Völundur
17. MAÍ 2012
19. tölublað 2. árgangur
Gl
er
ár
to
rg
Hv
ann
ave
llir
Gl
er
ár
ga
ta
Við erum
hérALTERNATORAR OG
STARTARAR Í BÍLA
Flestar gerðir á lager.
Viðgerðir og bilanagreining.
Ásco ehf - Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri · Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is
BÍLARAFMAGN
VARAHLUTIR
RAFGEYMAR
ALPINE
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
ÁSCO
Dularfulla tvöfalda plastmálið – sjá síðu 3
Álagið hefur aukist á nemendur
Framhaldsskólum á Íslandi er ætlað að
mennta hvern nemenda fyrir um 400
þúsund króna lægri fjárhæð en bæði
yngri og efri skólastig. Þetta segir Jón
Már Héðinsson skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri. Hann segir að önnur
skólastig séu þó ekki ofhaldin af sínum
fjárveitingum. „Ég átta mig ekki alveg
á þessu og hugsa stundum ætli almenn-
ingur í landinu viti af þessu? Skólar eiga
að vera óskabörn þjóðarinnar og það á
að vænta mikils af þeim,“ segir skóla-
meistari MA sem staðhæfir að ekki hafi
verið hugsað fyrir fjárveitingu með nýjum
framhaldsskólalögum.
Þá gagnrýnir Jón Már þingmenn fyrir
það hvernig þeir leyfi sér að tala til æsku
landsins. „Brýnt er að við veltum alvarlega
fyrir okkur hvernig umræðan í þjóðfé-
laginu snertir nemendur líkt og reyndar
alla aðra landsmenn. Stöðug umræða um
að ekkert sé að gerast í þessu landi, að
enginn bregðist við neinu, að þessi svoköll-
uðu hjól atvinnulífsins fari aldrei í gang,
að þau séu stirð og óhreyfanleg, þessi
umræða hefur auðvitað áhrif á þennan
skóla eins og alla aðra skóla og við sjáum
að henni fylgir aukaálag fyrir nemend-
ur,“ segir Jón Már. Afleiðingarnar eru m.a.
þær að hans sögn að þröskuldurinn fyrir
námsálagi nemenda lækkar. Þess vegna
eigi nemendur að einhverju leyti erfiðara
með nám. Sjá viðtal bls. 12-13