Akureyri


Akureyri - 17.05.2012, Blaðsíða 2

Akureyri - 17.05.2012, Blaðsíða 2
2 17. MAÍ 2012 Ríkissjóður auglýsir Hólssel til sölu Ríkissjóður hefur auglýst eftir tilboð- um í fasteignina og eyðijörðina Hóls- sel í Norðurþingi. Hólssel stendur skammt frá Grímsstöðum á Fjöllum en þar hefur Kínverjinn Huang Nubo áform um að koma á ferðaþjónustu. Ekki fæst uppgefið hvort tengsl séu milli áforma Kínverjans og sölunnar á Hólsseli en um er að ræða tveggja hæða einbýlishús sem byggt er úr timbri og holsteini ásamt hesthúsi og vélaskemmu á 34.636 m² leigulóð. Húsið er samtals 166,6 m², byggt árið 1939. Þá er hesthúsið 62 m², byggt árið 1962 og véla- og verk- færageymsla 60 m², byggð árið 1979 skv. Fasteignaskrá Íslands. Sagt er í auglýsingu að einbýlishúsið þarfnist mikils viðhalds. Brunabótamat eignarinnar er kr. 31.235.000,- og fasteignamat er kr. 5.467.000. a Saga til næsta bæjar „Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að KA-menn styddu ekki umbætur á eigin keppnisvelli en þannig virðist þetta vera núna,“ segir Hjörleifur Hallgríms Herbertsson. Hjörleifur sem situr sem vara- maður fyrir L-listann, lagði fram tillögu á fundi Fasteigna Akureyrar í síðustu viku um að aðgengi áhorf- enda að Akureyrarvelli yrði malbikað. KA nýtir nú völlinn sem heimavöll. Tillagan var felld með tveimur at- kvæðum gegn atkvæði Hjörleifs. Oddur Helgi Halldórsson greiddi atkvæði gegn tillögunni sem og Sig- ríður María Hammer. Njáll Trausti Friðbertsson D-lista og Sigfús Arn- ar Karlsson B-lista sátu hjá við af- greiðslu málsins. Með ummælum sínum á Hjör- leifur við hina síðasttöldu sem hann segir mikla KA-menn. a Óvíst að tankurinn í Mývatni sé fullur af olíu „Það hlýtur að vera samfélagsverk- efni okkar allra að bjarga þessum olíutanki,“ segir Pétur Björgvinsson, djákni á Akureyri og áhugamaður um umhverfisvernd vegna frétt- ar Akureyrar vikublaðs í síðustu viku um týndan olíutank á botni Mývatns. Fjölmargir höfðu samband við ritstjórn blaðsins í kjölfar fréttar- innar, þar á meðal fulltrúar frá köf- unarþjónustum sem lýstu hug á að finna tankinn og koma honum burt úr vatninu. Vandinn er hins vegar sá að enginn veit hverjum ætti að senda reikninginn fyrir útlögðum kostnaði við leit og brottflutning olíutanksins ef hann finnst. Jafnvel þótt viðkomandi hygðust gefa sjálfa vinnuna segja kunnugir að björgun hljóti að verða kostnaðarsöm. Tank- urinn hvarf í djúpið við vinnu vegna starfsemi Kísiliðjunnar en átta ár eru síðan fyrirtækið hætti störfum. Er helst nefnt að ríkið ætti að koma að kostnaði við björgun tanksins. Skiptar skoðanir eru meðal heimamanna í Mývatnssveit um mikilvægi þess að finna tankinn. Starfsmaður Umhverfisstofnunar við Mývatn, Bergþóra Kristjánsdóttir, hefur eftir heimamönnum að búið hafi verið að dæla töluverðu af olíu úr tankinum og því fari fjarri að tala um að 1000 lítrar séu í honum. Berg- þóra segir hugsanlegt að tankurinn hafi fyllst af vatni og sokkið þess vegna. „Ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu máli,“ segir Bergþóra. Aðrar heimildir herma að tank- urinn hafi sokkið á sprungusvæði og kunni að reynast mjög erfitt að finna hann, burtséð frá því hve mikla olíu sé að finna í honum. Einn fyrr- verandi starfsmaður Kísiliðjunnar vildi koma því á framfæri að allt hefði verið gert til að finna tankinn á sínum tíma, kafarar að sunnan hefðu m.a. verið fengnir til að leita en vandinn væri sá að þarna væri mikið magn af kísilgruggi þannig að skyggni til köfunar hafi verið afleitt. Árni Einarsson, líffræðingur við Rannsóknarstöðina við Mývatn, lítur málið alvarlegum augum. Hann telur ekki útilokað að allt að 1000 lítrar af olíu séu í tankinum. Lífríki Mývatns er viðkvæmt og einstætt sem gerir umhverfisþáttinn enn veigameiri en ella. a Léttölsauglýsingar menningarverðmæti? Unnsteinn Jónsson, framkvæmda- stjóri hjá Vífilfelli á Akureyri, er harðorður í garð innanríkisráð- herra vegna frumvarps um hert bann við áfengisauglýsingum. Í grein í Fréttablaðinu segir að ef frumvarpið nái fram að ganga muni störfum við íslenska bjór- framleiðslu fækka. Samkvæmt frumvarpinu megi ekki segja eitt aukatekið orð um íslenskan bjór eða annað áfengi opinberlega og liggi 10 milljón króna sekt við broti á því banni. „Lögunum er bersýnilega stefnt gegn því hófstillta markaðsstarfi sem íslenskir bjórframleiðendur hafa stundað í gegnum árin. Þeir hafa stutt tónleikahald á vínveitingastöð- um og fengið í staðinn að minnast á vörumerki sín. Léttölsauglýsingar hafa skemmt landanum um árabil. Tilgangurinn hefur sá einn verið að fá neytendur til að velja innlenda framleiðslu umfram erlenda og það hefur svo sannarlega tekist,“ segir Unnsteinn. Sala á íslenskum bjór nemur rúmlega 70% af allri bjórsölu hér á landi. Framleiðsla, sala og dreifing á íslenskum bjór er talin skapa um 150 störf. Tæpur helmingur þessara starfa er í Eyjafirði og á Suðurlandi. „Ekki bætir úr skák að erlendar auglýsingar um þessa sömu vöru, t.d. í sjónvarpsútsendingum, munu hafa greiðan og óheftan aðgang að landsmönnum samkvæmt lagafrum- varpinu. Mismunun milli innlendra og erlendra framleiðenda verður æpandi,“ segir Unnsteinn. a VERKFÆRI BÍLAPERUR EFNAVÖRUR VINNUFÖT og margt  eira Würth verslun, Freyjunesi 4 603 Akureyri, sími 461 4800 VERKFÆRI BÍLAPERUR EFNAVÖRUR VINNUFÖT og mARgT FLEIRA WüRTh VERsLUN, FREyjUNEsI 4 603 AKUREyRI, sÍmI 461 4800 Áfram veginn Kuldaboli hefur bitið Norð- lendinga og gesti þeirra síðustu daga. Ekki er annað í boði en að bíta á jaxlinn og ösla áfram lífsgötuna, enda veðrið sumpart spurning um hugarástand. Helga Kvam VÍFILFELL Á AKUREYRI ætli frumvarpið geri út um risavöxnu bjórdósina við Hjalt- eyrargötuna? Völundur

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.