Akureyri - 17.05.2012, Qupperneq 6
6 17. MAÍ 2012
– LEIÐARI –
Allt þykir
skárra en iðrun
Margir velta þessa dagana fyrir sér spurningunni: Hvað er að þingmönnum? Hvurslags háttalag er
það að stunda málþóf við hvert tækifæri til að koma
í veg fyrir að smá mál sem stór fari í gegn? Hvað á
það að þýða hjá þingmönnum stjórnarmeirihlutans að
láta eins og að ríkið sé eign ríkisstjórnarinnar? Hvers
konar mannasiðir eru það hjá bæði þingmönnum
meirihlutans og minnihlutans að uppnefna annað
fólk, kalla saklausa borgara asna og fífl fyrir litlar
sakir? Og eins og skólameistari Menntaskólans á
Akureyri kemur inn á í opnuviðtali í Akureyrar-
blaðinu í dag: Hvers konar ruddamennska er það
gagnvart æsku landsins að setja orðræðuna þannig
fram að blessuð börnin fái á tilfinninguna að Ísland
sé vonlaust land.
Helsta gildi alhæfinga er að þær spara tíma. Auð-
vitað er það ekki þannig að allir þingmenn þessa
lands séu óalandi og óferjandi. Sumir þeirra eru vel
færir um að vinna vinnuna sína og gera það með prýði
frá degi til dags. Hins vegar fer mest fyrir þeim hópi
sem vælir mest. Sá hópur virðist einnig staðráðnastur
í því að ætla að vinna íslenskri þjóð sem mest ógagn.
Af því að „hinum“ verði kennt um það. Þurfa hlið-
verðir upplýsingasamfélagsins, fjölmiðlarnir, e.t.v.
að endurskoða hvað þyki fréttnæmt? Fram til þessa
hafa bölspámenn átt í andlegu ástarsambandi við
blaðamenn. Með því að hrópa krassandi setningar
sem einu sinni vöktu athygli. Nú er kannski orðið
tímabært að rétta þeim gjallarhornið sem ekki sjá
heimsendi við hvert fótmál.
Þjóðarskútan steytti á skeri, það kom gat á skip-
ið og flæddi inn sjór. Árið var 2008. Allar dælur
voru settar á fullt. Mikið þurfti að hafa fyrir því að
koma blindfullri áhöfninni frá, en þjóðinni tókst að
róa sjálfri í land og gera út nýjan túr, sumpart með
óreyndri áhöfn. Sú áhöfn hefur reynst erfið, ódælir
liðhlaupar eru þar innan um, lýðskrumarar og tæki-
færissinnar af verstu sort. En skipstjórarnir standa
enn vaktina, túrinn stendur yfir, honum lýkur ekki
fyrr en næsta vor. Það má deila um siglingarleiðina,
sjókortin og færslur í loggbókinni en hitt er ekki
dæmi um herkænsku að kasta sprengjum að byrðingi
skipsins og kvarta svo einnig undan öryggisleysi og
viðsjá á ferðalaginu.
Kannski hafa þeir sem sprengjunum kasta það
enn að leiðarljósi sem birtist okkur hjá dæmdum
stýrimönnum þjóðarskútunnar. Að fyrr skuli allt
sprengt í loft upp og krakkarnir okkar í framhalds-
skólunum líka, en að sýna vísi að iðrun. Sem þó er
það nýja upphaf sem samfélagið þarfnast.
Með ritstjórakveðju
Björn Þorláksson
AKUREYRI VIKUBLAÐ 19. TÖLUBLAÐ, 2. ÁRGANGUR 2012
ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi @ fotspor.is.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as @ fotspor.is.
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar @ fotspor.is.
Ritstjóri: Björn Þorláksson. Myndir: Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. Netfang: bjorn @ akureyrivikublad.is, Sími: 862 0856.
Umbrot: Völundur Jónsson Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 10.000 eintök. Dreifing:
10.000 EINTÖK ÓKEYPIS – AKUREYRI, PÓSTNÚMER 601, SIGLUFJÖRÐUR, ÓLAFSFJÖRÐUR, DALVÍK, GRENIVÍK OG HÚSAVÍK
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LAST fá stjórnarmenn Stapa sem hafa opinberlega talað
niður mistök starfsfólks og eigin ábyrgð í klúðri á klúðri ofan.
Að deila milljarða handvömm niður á fjölda launagreiðenda og
segja: Iss, þetta er nú bara 20.000 króna tap á kjaft er vægast
sagt... veruleikafirrt...
LAST fá þeir sem ganga illa um Kjarnaskóg, okkar annars
frábæra útivistarsvæði. Það er óþolandi hversu margir virðast ekki
víla það fyrir sér henda rusli tvist og bast um svæðið...
LAST fá hundaeigendur sem leyfa hundum sínum að ganga
örna sinna á leiksvæðinu við Bugðusíðu. Kona semn býr í Kjalarsíðu
segir að þarna séu dagmömmur með fullt af litlum börnum, en
þegar þær hafi lokið sínum vinnudegi og um helgar þá komi á
svæðið hundaeigendur með sína hunda þrátt fyrir að á húsinu
sé merki um hundabann. „Mér var alveg ofboðið um helgina og
get því ekki orða bundist, þarna var fólk að sleppa hundunum
sínum lausum, þeir gerandi þarfir sínar hér og þar um svæðið,
mígandi utan í húsið og girðingarnar. Ekki var fólkið að hafa
fyrir því að hirða upp eftir sinn hund,“ segir konan í tölvupósti
til Akureyrar vikublaðs.
LAST fá þeir sem búa þannig um hnútana að börnin okkar fái
ekki nógu góða næringu í skólamáltíðum. Kona hafði samband
við blaðið og staðhæfði að sú breyting um áramótin á Akureyri
að hafa sameiginlegan matseðil sé gott mál en almennt hafi
maturinn versnað. Oftar séu nú bollur, fars, snitsel og önnur
mikið unnin matvara.
LAST fær ökumaðurinn sem kveikti sér í sígarettu í bíl á
Hagkaupsplaninu og púaði og blés tóbaksreyknum fyrir framan
ungt barn sem var í bílnum, segir karl sem hafði samband við
blaðið. Segir hann að blessunarlega sé orðið sjaldgæft að sjá
svona ofbeldi en því meiri athygli veki það.
LÍFRÍKIÐ EYÞÓR INGI JÓNSSON
Akureyri vikublað í 19. sæti
samræmdrar vefmælingar
Vefur Akureyrar vikublaðs, akv.is, er
samkvæmt Modernus, samræmdri vef-
mælingu, í 19. sæti yfir mest sóttu vef-
síður Íslands. Þetta sýnir mæling frá
tímabilinu 7. maí til 13. maí sl.
Ef aðeins eru skoðaðir fréttamiðlar í
hópi vinsælustu vefsíðna er Mbl í fyrsta
sæti, Vísir er í öðru sæti, Dv í 3. sæti,
Pressan í 5. sæti, Rúv í 7. sæti, Eyjan í 11 .
sæti og svo kemur kemur akv.is í 19. sæti.
Vefsíða Akureyrarblaðsins er því sjöundi
vinsælasti fréttavefmiðill landsins. Akv.
is er vinsælasta vefsíðan sem starfrækt
er utan höfuðborgarsvæðis.
FJÖLBREYTNI LYKILATRIÐI
En hver er galdurinn á bak við þessa
miklu aðsókn? Sóley Björk Stefánsdóttir
er ritstjóri vefjarins: „Hluti af galdrin-
um er kannski að hafa áhuga á öllum
hliðum mannlífsins. Það hefur sárlega
vantað vefmiðil sem segir fjölbreyti-
legar norðlenskar fréttir. Það er alveg
jafn merkilegt fyrir suma að það hafi
hópur allsberra stráka hlaupið í gegnum
miðbæinn eins og það er fyrir aðra að
lífeyrissjóður hafi skorið niður réttindi
lífeyrisþega. Við erum eins misjöfn og
við erum mörg og öll höfum við áhuga
á okkar umhverfi út frá okkar eigin
forsendum“.
Hún bætir við: „Annar mikilvæg-
ur hluti er að fólk virðist hafa fund-
ið þarna vettvang til að ræða málin.
Skoðanaskiptin í athugasemdakerfinu
eru oft mjög öflug og breiður hópur
fólks sem þar tekur til máls. Auðvit-
að vill fólk ræða mannlífið og bæjar-
málin og skiptast á skoðunum. Fólk er
líka duglegt við að senda inn greinar
til birtingar og margar þeirra hafa
náð miklum vinsældum enda er heil
hersing af fólki út um allt sem hef-
ur eitthvað að segja og vill gjarnan
deila hugsunum sínum og skoðunum
með öðrum. Ég hef líka aðstoðað fólk
við að koma orðum að hlutunum ef
fólki finnst það ekki geta það nógu
vel. Nútímamiðlarnir eru tvímælalaust
tækifæri til skoðanaskipta í auknum
mæli.“ a
VIÐ HJÚIN SKRUPPUM í Mývatnssveit á laugardaginn. Mývatnssveit er jú paradís fuglaáhugamannsins. Einkennisfugl Mývatnssveitar er
húsöndin, þessi gullfallega önd, sem verpir hvergi annarsstaðar í Evrópu. Íslenski stofninn er lítill, í kring um 2000 fuglar. Hegðun húsandar er
skemmtileg á varptíma. Karlfuglinn ver óðal sitt með hörku og eru oft mikil átök. Kollan verpir oftast í hraunholum eða í varpkössum. Hún læt-
ur sér ekki alltaf nægja að verpa í eigið hreiður. Kollur verpa stundum í hreiður hjá hver annarri, til að auka möguleikann á því að ungar komist
á legg. Mikill munur er á útliti og stærð kynjanna eins og sjá má á myndinni sem tekin var á laugardag. Þegar keyrt er niður af Mývatnsheiðinni
má nær alltaf sjá húsendur á Laxánni.
VEFURINN byggir á fjölbreyttum efnistökum sem þjóna misjöfnum hópum fólks.